07. feb. 2010 - 16:45
Sveinn Andri beinir spjótum að Árna Þór: Er Vinstri græn græðgisvæðing betri en önnur?

Sveinn Andri Sveinsson.
Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og Pressupenni beinir spjótum sínum að Árna Þór Sigurðssyni og félögum hans í Vinstri grænum í nýjasta Pressupistli sínum. Sveinn Andri fjallar um Vinstri græna græðgisvæðingu og nefnir í því samhengi t.d. sölu Árna Þórs á hlutabréfum í SPRON á hárréttum tíma.
„Fáir hafa verið duglegri við það, en þingmenn Vinstri grænna, að gagnrýna það sem kallað er græðgisvæðing. Þetta hugtak var líklega búið til af einhverjum þingmanna þessa flokks, gott ef það var ekki Ögmundur Jónasson sem fyrst kom fram með það.“ Sveinn Andri segir að mikilvægt að stjórnmálamenn séu samkvæmir sjálfum sér og berjist ekki einungis fyrir breytingum sem þeim henta.
„Einn er sá þingmaður Vinstri grænna sem hátt hefur látið og fordæmt hina svokölluðu græðgisvæðingu en það er Árni Þór Sigurðsson.“
Sveinn rifjar upp er Árni sat í borgarstjórn Reykjavíkur og sat m.a. í stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og fékk greitt fyrir það. Einnig rifjar hann upp þegar Árni keypti stofnfjárbréf í SPRON á vildarkjörum og seldi þau á hárréttum tíma, eða rétt áður en bréfin voru skráð í kauphöllina.
Sveinn segir eftir standa samviskuspurningu sem Árni Þór og félagar í Vinstri grænum þurfi að svara. „Er það bara gott og blessað að kjörinn fulltrúi í trúnaðarsambandi við hinn almenna borgarbúa, nýti sér þá aðstöðu sem kosning hans til þessara trúnaðarstarfa hefur veitt honum, til þess að hagnast um milljónatugi? Er vinstrigræn græðgisvæðing kannski eitthvað betri en önnur? Hvert er svar siðapostulans Ömma frændi við þessari spurningu?“
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.
02.sep. 2010 - 22:15
Sumir einstaklingar hér á jörð eru þannig af Guði gerðir að þeim tekst í sífellu að koma sér í aðstæður sem ætti varla að vera hægt að koma sér í.
02.sep. 2010 - 21:33
Er smá haustlykt í loftinu? Eða hugsanir um vetur og kulda allsráðandi? Ekki á Íslandi, því á Íslandi eru heitar sundlaugar opnar allt árið, skrifar maður sem safnar íslenskum laugum.
02.sep. 2010 - 21:09
Gunnar Bender
,,Síðasta holl sem fór í Jónskvísl Sýrlæk fékk 14 sjóbirtinga, þar af var 9 gefið líf. Hollið þar á undan fékk 8 sjóbirtinga," sagði Rafn A. Guðjónsson er við inntum hann frétta af veiðinni í Jónskvíslinni.
02.sep. 2010 - 20:15
Breskur eiginmaður liggur undir grun um að hafa kyrkt konu sína þegar hún komst að því að hann hafði verið henni ótrúr með að minnsta kosti tveimur öðrum konum.
02.sep. 2010 - 19:30
Íslenskir strætisvagnabílstjórar trylltust algjörlega þegar úrslit voru kunngjörð í Norðurlandamóti strætisvagnabílstjóra.
02.sep. 2010 - 18:00
Eftir að myndband fór í dreifingu um netheima, með stúlku að þrykkja hvolpum í á, varð allt vitlaust. Ýmsir þrýstihópar létu til sín taka og há peningaverðlaun voru boðin þeim sem gæti nafngreint hana.
02.sep. 2010 - 17:07
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 16:50
Fangar á Litla Hrauni sýna verk sín og selja á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Fangavörður segir margt verða til að gleðja augað á sýningunni því að margir fangar sýni og sanni að í þeim býr hreinræktaður listamaður sem fengið hefur tækifæri til að brjótast út.
02.sep. 2010 - 15:18
Myndband af hundruð vatnakarfa takast hátt á loft þegar hraðbát er siglt framhjá hefur vakið mikla athygli í netheimum. Veiðistangirnar um borð voru gersamlega óþarfar.
02.sep. 2010 - 14:39
Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 13:03
Verður ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna betri með nýjum ráðherrum? Hvað finnst lesendum Pressunnar?
02.sep. 2010 - 12:18
Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49
Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:34
Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:23
Knattspyrnuhetjan Eiður Guðjohnsen segir að það hafi verið auðveld ákvörðun að kveðja heimsborgaralega lifnaðarhætti í Mónakó og snúa aftur í ensku úrvalsdeildina sem liðsmaður Stoke City.
02.sep. 2010 - 10:10
Guðbjartur Hannesson verður nýr ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
02.sep. 2010 - 09:53
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
02.sep. 2010 - 09:10
Þingflokkur Samfylkingarinnar er að hefja síðasta fund sinn fyrir ríkisráðsfund vegna breytinga á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar. Fundurinn er haldinn á hótel Loftleiðum og þar fer einnig fram flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar kl. 10.
02.sep. 2010 - 08:00
Snæfríður Ingadóttir
Hómópatinn Svana Ingvaldsdóttir hefur sett á markað sérstakar remedíublöndur sem hjálpa ferðalöngum að takast á við ýmsa kvilla sem fylgja ferðalögum. Blöndurnar taka á vandamálum á borð við flughræðslu, matareitrun, flugnabiti, sólbruna og fótapirringi.