08. feb. 2010 - 18:47
Stjórnmálafræðingur spáir ríkisstjórnarslitum á næstu mánuðunum

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J ræðast við. Getty Images
Stjórnmálafræðingurinn Stefanía Óskarsdóttir segir ríkisstjórnina sýna ýmis þreytumerki og að innan Samfylkingarinnar sé farið að bera meira á óánægjuröddum með samstarfið en áður hefur heyrst þaðan. Hún spáir því að gengið verði til kosninga innan nokkurra mánaða.
Þetta kom fram í máli Stefaníu í fréttaskýringaþættinum Speglinum á RÚV í kvöld. Stefanía segir það tvímælalaust veikja ríkisstjórnina að þurfa að gefa eftir í Icesave deilunni. Ef hægt er eftir allt saman að ná betri samningum en forsvarsmenn ríkisstjórnarflokkanna lögðu fram og sögðu að væri eina mögulega lausnin úr deilunni er ljóst að þeir hafi ekki haft rétt fyrir sér. Slíkt hlýtur því að veikja þá flokkana enda auðvelt að færa rök fyrir því að þeir hafi haft rangt fyrir sér.
Þegar forsetinn ákvað að senda Icesave frumvarpið til þjóðaratkvæðis var ljóst að annaðhvort stjórn eða stjórnarandstaða þyrfti að bakka. Stefanía segir ljóst að stjórnarandstaðan hafi ekki bakkað og að heldur hafi bæst í málflutning þeirra. Trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar fer þverrandi á meðan kjósendur telji hægt að ná fram betri samningum en ríkisstjórnin samþykkti.
Stefanía segir ljóst að einhverjar breytingar eigi eftir að verða á ríkisstjórninni á næstu mánuðum en að ólíklegt megi telja að einhver stjórnarandstöðuflokkanna verði dreginn inn í nýtt samstarf. Flokkarnir þurfa að ganga til kosninga og endurnýja umboð sitt.
16.mar. 2010 - 21:50
Karlar og konur hafa deilt í tugi ára um hvort kynið sé betra að keyra. Sumir segja karlar, aðrir segja konur og enn aðrir hallast að því að enginn munur sé þar á. Myndbandið sem fylgir hér á eftir sýnir dæmi nokkurra kvenmanna við stýrið.
16.mar. 2010 - 21:21
Mikið álag á vefsíðunni karlarogkrabbamein.is varð til þess að vefsíðan lá tímabundið niðri um síðustu helgi. Mottukeppnin hefur slegið rækilega í gegn en milljónum króna hefur nú þegar verið heitið á þúsundir keppenda. Í liðakeppninni standa Logos menn efstir en Rúnar Sigurðsson hefur fengið hæst áheit einstaklinga.
16.mar. 2010 - 20:13
Öll umræða um kaupaukakerfi í Landsbankanum er algerlega ótímabær þar sem engu slíku kerfi hefur verið komið upp og engin útfærsla samþykkt. Töluverð umræða upphófst á Alþingi í dag þegar stjórnarliðar gagnrýndu hugmyndir um bónusgreiðslur til bankastarfsmanna. Guðlaugur Þór gagnrýndi Landsbankann sérstaklega og sagði hann hafa komið umræðunni af stað.
16.mar. 2010 - 20:05
Sænskir dómstólar hafa komist að þeirri niðurstöðu að stjórnarskrá landsins heimili ekki að samtökum á borð við Hells Angels og Bandidos verði bannað að klæðast merktum flíkum á vínveitingahúsum. Telur dómstóllinn að með því séu sjálfsögð mannréttindi meðlima samtakanna brotin.
16.mar. 2010 - 19:15
Kylfingurinn Tiger Woods tilkynnti í dag að hann sé tilbúinn til þess að snúa aftur í golfheiminn. Kylfingurinn hefur átt erfiða daga síðan hann keyrði á brunahana fyrir utan heimili sitt í nóvember síðastliðnum. Nú virðist sem lífið sé að færast í eðlilegt horf hjá snillingnum og margir sem bíða spenntir.
16.mar. 2010 - 18:25
Lögreglan í Macomb sýslu í Michigan-fylki í Bandaríkjunum vissi ekki sitt rjúkandi ráð þegar hún fékk í vörslu sína þriggja ára dreng sem skilinn hafði verið eftir í afmælisveislu á veitingastað. Drengurinn gat ekki gert grein fyrir sér og enginn vitjaði hans fyrr en tveimur dögum síðar.
16.mar. 2010 - 17:45
Kristján L. Möller, samgönguráðherra, er ekki á því að beita sértækum aðgerðum til að lækka bensínverð í landinu, þrátt fyrir að hafa kallað eftir slíkum aðgerðum þegar hann var í stjórnarandstöðu. Hann vonast til að bensínverð lækki eftir að samið verður um Icesave.
16.mar. 2010 - 17:40
Höldur-Bílaleiga Akureyrar og Suzuki bílaumboðið á Íslandi hafa skrifað undir kaup bílaleigunnar á að minnsta kosti 175 nýjum bílum af tegundunum Suzuki Swift og Suzuki Grand Vitara og hugsanlega verður bílunum fjölgað eitthvað þegar nær dregur sumri.
16.mar. 2010 - 17:05
„Það er þannig að hæstvirtur fjármálaráðherra samdi sérstaklega um það að það yrði árangurstengt launakerfi í ríkisbankanum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur réttast að Alþingi fjalli fyrst um bónusa Landsbankans áður en hjólað verður í aðra banka.
16.mar. 2010 - 16:04
Skorað hefur verið á forseta Íslands að taka þátt í átakinu karlar og krabbamein og láta sér vaxa yfirvaraskegg. En hvernig myndi forsetinn líta út með mottu?
16.mar. 2010 - 15:00
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að hefðbundnar vinaþjóðir hafi snúið baki við Íslendingum, sem treysti nú á Þjóðverja að aðstoða landið í þeim vandræðum sem nú steðja að landi og þjóð.
16.mar. 2010 - 14:13
Bónusgreiðslur til starfsmanna bankanna voru fordæmdar á Alþingi í dag. Lagt var til að þær yrðu annað hvort skattlagðar upp í rjáfur eða sett verði lög til að banna þær. Formaður viðskiptanefndar vill að Alþingi hóti að setja lög um afskriftir til skulda heimilanna til að fá uppgefið hvert svigrúmið er.
16.mar. 2010 - 12:58
Ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan funda í dag með Lee Buchheit sem fer fyrir íslensku samninganefndinni í Icesave-málinu. Enginn formlegur fundur hefur verið boðaður með Hollendingum og Bretum. Ríkisstjórnin kannast ekki við að boltinn sé hjá Íslendingum í deilunni.
16.mar. 2010 - 12:32
Skattayfirvöld höfðu tvívegis gert tillögur um viðamiklar umbætur til að koma í veg fyrir skattaundanskot í bankakerfinu. Forsætisráðherra segir ljóst að enginn áhugi hafi verið hjá Sjálfstæðisflokknum að ráðast í slíkar umbætur þegar hann stjórnaði fjármálaráðuneytinu.
16.mar. 2010 - 11:59
Rökstuddur grunur leikur á að gömlu bankarnir hafi komið milljörðum króna undan skatti áður en þeir féllu. Ríkisstjórnin ætlar að koma á fót sérstakri sveit á vegum skattrannsóknarstjóra til að rannsaka umfangið.
16.mar. 2010 - 11:48
Fólksfækkun varð á landinu á árinu 2009 í fyrsta sinn frá árinu 1889. Brottfluttir útlendingar valda miklu um þessa fækkun. Íslendingum heldur áfram að fjölga.
16.mar. 2010 - 11:15
William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, sem í gær var ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland, gerði tillögu til Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í október 2008 um að fella íslenska banka undir Straum í því skyni að komast að samkomulagi við erlenda kröfuhafa og tryggja eðlilegt greiðsluflæði frá Íslandi til útlanda.
16.mar. 2010 - 10:47
HönnunarMars, íslensk hönnunarhátíð fer fram í annað skipti á Íslandi, frá næsta fimmtudegi til sunnudags. Markmið hátíðarinnar er að kynna fyrir gestum nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun. Grasrót íslenska hönnunarsamfélagsins, yfir 500 einstaklingar, tekur þátt á hátíðinni og við skipulagningu ríflega 100 viðburða hennar.
16.mar. 2010 - 10:29
Bílaleiga Akureyrar-Höldur ehf. hefur samið við HEKLU um kaup á 200 nýjum Volkswagen og Skoda bifreiðum sem afhentar verða á vormánuðum.
16.mar. 2010 - 10:23
Fjölskyldufaðirinn og stjórnarformaðurinn Kristján Gíslason, segir í opnu bréfi til forsætisráðherra Danmerkur í danska fjármálablaðinu Börsen í dag, að Íslendingar skilji ekki af hverju Danir lyfta ekki litla fingri til hjálpar frændþjóð sinni. Íslendingar hafi heldur ekki skilið hvernig Íslendingar eignuðust þjóðargersemar í Danmörku.