02. ágú. 2011 - 18:10
Skærasta klámstjarna Dana látin: Hundelt af mafíunni - Faldi sig í fjöllunum - MYNDIR
Ein skærasta klámstjarna Danmerkur fyrr og síðar, Jeanette Dyrkjær, lést á dögunum úr hjartaáfalli. Jeanette átti svo sannarlega skrautlegan feril. Hún varð milljónamæringur á 9. áratugnum en var ótrúlega fljót að sólunda auðævum sínum.
Jeanette stóð á hátindi ferils síns árið 1983 þegar hún var 20 ára gömul. Hún var þá kosin "gæludýr ársins" af Penthouse karlatímaritinu. Þessi titill færði henni eina milljón dollara, en þeim peningum sólundaði hún á skömmum tíma. Síðar flutti hún til Bandaríkjanna til að komast inn í klámiðnaðinn þar í landi og breytti hún nafni sínu til að eiga meiri möguleika á að slá þar í gegn, fyrst í Jeanette Starion og síðar í Jean Afrique.
Eftir að hafa starfað í nokkur ár í klámmyndaiðnaðinum í Bandaríkjunum kynntist hún eiginmanni sínum, Erwin Ray Viser, sem einnig var klámstjarna.
Það var eiginmaðurinn sjálfur sem var viðstaddur þegar Jeanette lést á heimili þeirra hjóna. Hún fékk hjartaáfall á föstudaginn síðastliðinn og var úrskurðuð látin við komuna á sjúkrahúsið.
Um fráfall eiginkonu sinnar segir Erwin við danska blaðið Extra bladet:
Ég fór í líkhúsið og ég sá á andliti hennar að henni var létt. Hún lést hamingjusöm. Í þau tuttugu ár sem við vorum saman elskuðum við hvort annað meira en við höfum elskað nokkurn annan. Hún var allrabesti vinur minn.
Þegar hjónin kynntust var Erwin starfandi klámmyndaleikari í Bandaríkjunum:
Ég var fyrsti kærastinn hennar og við urðum ástfangin. Ég kippti henni strax út úr klámmyndaiðnaðinum, af því að mafían var að elta hana. „Fólkið mitt“ var reitt, við urðum að flýja og því bjuggum við uppi í fjöllum í allavega þrjú ár,
segir Erwin og bætir því við að á þeim tíma hafi Jeanette verið með barni. Á þeim tíma fengu þau heimsókn frá dönskum blaðamanni, sem mælti með því að Jeanette flytti með Erwin til Danmerkur
Jeanette vildi það ekki í fyrstu, en ég sagði henni að það væri fyrir bestu, því þar yrðum við örugg.
Svo fór að þau fluttu til Danmerkur þar sem þau eignuðust tvo drengi. Barnaverndaryfirvöld tóku hins vegar báða drengina úr umsjá þeirra hjóna og komu fyrir hjá fósturforeldrum. Þeir eru 17 og 19 ára í dag, en Erwin og Jeanette höfðu misst allt samband við þá.
Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.
22.maí 2012 - 17:23
Tveir fangar á Litla Hrauni hafa verið færðir í einangrunarvist á Litla Hrauni, grunaðir um að hafa veitt fanga alvarlega áverka með þeim afleiðingum að hann lést í fyrri viku.
22.maí 2012 - 17:00
Gunnar Birgisson, fyrrum stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Kópavogs, og Sigrún Ágústa Bragadóttir framkvæmdastjóri sjóðsins, voru í dæmd til greiðslu 150.000 kr. sektar hvor fyrir ranga upplýsingagjöf til Fjármálaeftirlitsins. Málskostnaðurinn nam yfir átta milljörðum kr. og var hann að mestu greiddur úr ríkissjóð. Gunnar segir að dómurinn hafi komið sér á óvart.
22.maí 2012 - 15:51
Sjálfur tel ég að tólf ár séu eðlilegur og jafnvel æskilegur tími í þessu embætti og er það drjúgur spölur í starfsævi manns, sagði dr. Kristján Eldjárn í nýársávarpi sínu 1. janúar 1980, er hann tilkynnti þjóðinni að hann hygðist hverfa úr embætti eftir tólf ár á forsetastóli.
22.maí 2012 - 15:00
Nýlega var ákveðið að loka 16 kirkjum í Kaupmannahöfn og margar kirkjur hafa einnig verið lokaðar á Jótlandi. Ástæðan er sú að prestar messa í síauknum mæli fyrir tómum bekkjum. Í Árrósum hefur fasteignasali nú þegar selt þrjár kirkjur sem tilheyra fríkirkjusöfnuðinum þar í landi og segir hann mikinn áhuga á kaupum á hefðbundnum þjóðkirkjum einnig.
22.maí 2012 - 14:10
Uppboðshaldari hjá Bruun Rasmussen í Danmörku segir í viðtali við Jyllandsposten að hann efist um að nokkur Dani hafi bolmagn til að eignast taflborð, taflmenn, skákklukku og borð sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Munirnir verða boðnir upp hjá Bruun Rasmussen 14. júní næstkomandi.
22.maí 2012 - 12:11
„Ef hótun af þessum toga á að vera trúverðug þarf samfélagið að vera tilbúið að hóta höftum til áratuga. Hver er tilbúinn til þess?“ spyr Árni Páll Árnason, þingmaður og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra sem telur svokallaða „íslensku leið“ Róberts Wessman óraunhæfa.
22.maí 2012 - 11:29
Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,1% á síðastliðnum tólf mánuðum. Í mars hafði hann ekki verið jafnmikill síðan á hinu mikla neysluári 2007. Íslandsbanki telur hins vegar blikur á lofti og telur að verðlag hækki mun hraðar en laun þegar líður fram á haustið.
22.maí 2012 - 10:45
Hraðakstursbrotum og fíkniefnabrotum hefur snarlega fjölgað fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Í fyrra voru skráð 494 fíkniefnabrot á landinu fyrstu fjóra mánuðina en 650 fyrstu fjóra mánuði þessa árs.
22.maí 2012 - 09:30
72,4% allra sem svöruðu spurningum í skoðanakönnun Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, aka sjálfir til og frá vinnu.
22.maí 2012 - 07:45
Ríkisolíufélag Noregs, Statoil, leggur nú mesta áherslu á aukna nýtingu úr þeim olíusvæðum þar sem vinnsla fer fram. Frá árinu 2010 til 2011 jókst nýtingin úr 49% í 50%. Þetta virðist lítil aukning en hún skilaði samt gríðarlegum verðmætum í ríkiskassann norska.
21.maí 2012 - 21:00
Það er þekkt að allt að 6 metrar langir bandormar geta lifað góðu lífi í innyflum fólks en í ljós hefur komið að lirfur þeirra eru jafnvel enn skaðlegri. Þær komast í heila manna og geta þar nærst á heilavefjum án þess að hýsillinn verði þess var. Heilabandormar, sem einnig kallast innsíklar, herja gjarnan á miðtaugakerfið og eru til umfjöllunar í nýjasta hefti Discover Magazine.
21.maí 2012 - 18:43
Hagfræðingarnir Ólafur Ísleifsson og Lilja Mósesdóttir, sem einnig er alþingismaður, fagna hugmyndum Róberts Wessman um svokallaða íslenska leið í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Lilja segir erlendra krónueign valda stöðugum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar og það þýði rýrnun lífskjara og hærri verðbólgu.
21.maí 2012 - 18:00
Sá óvenjulegi atburður varð í dag að það slokknaði á Ólympíukyndlinu aðeins þremur dögum eftir að hann kom til Englands. Kyndillinn var við hlið hjólastóls David Folletts, sem er meistari í badminton fatlaðra.
21.maí 2012 - 16:58
Bjölluónæði er hvimleitt og ekki síst ef það á sér stað að næturlagi. Lögreglan er stundum kölluð til í slíkum málum og svo var einmitt raunin þegar íbúum fjölbýlishúss í Kópavogi var nóg boðið.
21.maí 2012 - 15:00
Verð á hlutabréfum í Facebook féll um 12% frá upphaflegu sölugengi þegar Nasdaq markaðurinn opnaði í dag. Upphaflegt gengi var 38 dollarar á hlut en strax við upphaf viðskipta féll það niður í 33,28 dollara.
21.maí 2012 - 13:45
Mistur hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu í gær og dag, 20. og 21. maí. Um er að ræða svifryk sem berst frá öskufallssvæðinu fyrir austan fjall.
21.maí 2012 - 12:45
Nokkrir helstu leiðtogar heims hittust á leiðtogafundi G8-ríkjanna í Camp David um síðustu helgi. Þeir stóðust ekki mátið og horfðu á vítaspyrnukeppnina í úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta á milli Bayern Munchen og Chelsea sem fram fór í Þýskalandi sl. laugardag.
21.maí 2012 - 11:30
Veiking á gengi krónunnar heldur áfram að gera okkur Íslendingum lífið leitt og nú hafa Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag, mánudaginn 21. maí 2012.
21.maí 2012 - 10:33
Hægt er að kaupa flugfarmiða til London og tilbaka eftir fjórar vikur á 31.400 krónur með Iceland Express. Ef flugið hefði verið bókað 21. mars sl. þá hefði WOW air verið ódýrasti kosturinn og verðið 39.544 krónur. Það borgar sig því ekki alltaf að kaupa flugmiðann með löngum fyrirvara.
21.maí 2012 - 09:29
Stjórnvöld í Quebec-fylki samþykktu um helgina neyðarlög til að koma hömlum á stúdentaóeirðirnar sem hafa geisað síðan um miðjan febrúarmánuð. Lögin fela í sér lokun nokkurra háskóla og fjársektir sem nema allt að fjórum milljónum króna fyrir mótmæli.
21.maí 2012 - 08:22
Stjórn Íslenskrar ættleiðingar hefur sent Innanríkisráðuneytinu tilkynningu um að ganga þurfi á varasjóð félagsins. Þær ráðstafanir kunna að hafa í för með sér að þegar félagið verður lagt niður verða ekki öruggar rekstrarforsendur til að ljúka málum er kunna að vera til meðferðar á vegum félagsins á þeim tíma.
20.maí 2012 - 23:51
Robin Gibb, einn hinna þriggja heimsfrægu Gibb-bræðra í hljómsveitinni Bee Gees er látinn, 62 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein.
20.maí 2012 - 20:55
Íslendingar hafa fengið um 11 milljörðum króna meira úr styrkjasjóðum eða áætlunum Evrópusambandsins en þeir hafa greitt til þessara sömu sjóða.
20.maí 2012 - 19:27
Aldrei í sögunni hafa útlán verið jafnmikil í Noregi og núna, í miðri efnahagskreppu allrar Evrópu. Norsk heimili hafa aldrei haft meiri á milli handanna en skuldirnar hafa aldrei verið hærri.
20.maí 2012 - 17:30
Desmond Hatchett, 33 ára gamall maður frá Knoxville, Tennesee, hefur farið þess á leit við stjórnvöld að þau hjálpi honum við framfærslu á 30 börnum sem hann á með 11 konum.
20.maí 2012 - 16:00
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir gríðarlega tekjumyndun hafa verið síðastliðin fjögur ár í sjávarútvegi og greinin standi vel undir því að leggja meira af mörkum til eigenda auðlindarinnar.
20.maí 2012 - 14:00
Ísraelar hafa þróað öfluga njósnavél í formi fiðrildis sem getur flogið á bakvið óvinalínur og sent mynd á rauntíma. Fiðrildið vegur einungis 20 grömm og getur sent myndir innan úr byggingum.
20.maí 2012 - 12:24
Birgitta Jónsdóttir, þingkona, hefur ásamt sex öðrum, unnið mál gegn bandarískum stjórnvöldum fyrir rétti í New York vegna nýrra laga þar í landi sem hópurinn segir að gefi Bandaríkjaher heimild til að handtaka almenna borgara hvar sem er í heiminum og hneppa þá í varðhald án dóms og laga.
20.maí 2012 - 11:39
Tölvufyrirtækið Google hefur tilkynnt um nýja breytingu á hinni geysivinsælu leitarvél sinni. Með aukinni gervigreind og nýjungum í forritun er hugmyndin að koma með leitarvél sem muni geta hugsað meira eins og manneskja.
20.maí 2012 - 10:36
Markmið fjárfestingaáætlunar fyrir Ísland (2013-2015) sem kynnt hefur verið er að styðja við hagvöxt og fjölbreytni í atvinnulífi. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja áætlunina lið í nýrri sókn eftir efnahagshrunið og henni sé ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt.
20.maí 2012 - 09:18
Björgunarskip og bátur Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Snæfellsbæ var kallað út um þrjúleytið í nótt vegna rækjuskips sem var orðið vélarvana um 5 sjómílur norðan við Rif. Leki hafði komið að skipinu og þegar björgunarsveitarmenn komu að skipinu var tæplega eins metra hár sjór í vélarrúmi.
19.maí 2012 - 22:39
Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og forsetaframbjóðandi kveðst hálfklökk yfir öllum þeim fallegu og góðu kveðjum sem henni og Svavari Halldórssyni sambýlismanni hennar hafa borist í tilefni af fæðingu lítillar dóttur í gær.
19.maí 2012 - 21:52
Það var sem skrifað í skýin að Chelsea myndi vinna sinn fyrsta sigur í Meistaradeildinni eftir ævintýralega og dramatíska sigurgöngu í vetur og í úrslitaleiknum gegn Bayern Munchen í kvöld voru lukkudísirnar enn og aftur á bandi þeirra bláklæddu og Chelsea sigraði Bayern í vítaspyrnukeppni eftir framlengdan leik.
19.maí 2012 - 15:30
Netöryggi, netleynd, grænn rekstur tölvukerfa, stuðningur við rannsóknarstarfsemi og Netið sem frumkvöðlavettvangur eru meðal þess sem fjallað verður um á stórri ráðstefnu Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu (TERENA) sem fram fer í Háskólabíói í næstu viku.
19.maí 2012 - 12:45
Tveir mikilvægir leiðtogafundir eru haldnir í Bandaríkjunum um helgina. Fyrri fundurinn er leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims (G8) og að honum loknum tekur við leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Chicago.
19.maí 2012 - 10:44
„Hringt var í föður minn úr skólanum þegar ég var sex ára. Kennarinn sagði pabba að hann ætti mjög heimska dóttur sem truflaði kennsluna. Vinsamlegast ekki senda hana aftur í skólann. Pabbi sagði, ók. Ég var sátt, því ég vildi ekkert endilega fara aftur í skólann og var svo lánsöm að hann kenndi mér sjálfur og svo fékk ég einkakennslu heima. Við vorum svo lánsöm að hafa efni á því.“
19.maí 2012 - 08:58
Búið er að tryggja áframhaldandi rekstur Vinjar, athvarfs fyrir geðsjúka, með samningi milli Rauða krossins, velferðarráðuneytisins, Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Vinafélags velunnara Vinjar, sem undirritaður var í gær. Velferðarráðuneytið leggur samtals tæplega 21 milljón króna til rekstursins til ársloka 2014.
18.maí 2012 - 20:34
Flugvél Icelandair sem snúið var við skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli lenti heilu og höldnu klukkan 21:15. Vélinni var snúið við skömmu eftir flugtak eftir að í ljós kom að lendingarbúnaður vélarinnar hafði skemmst. Lendingin tókst með afbrigðum vel.
18.maí 2012 - 20:00
Kína er vinsælli meðal almennings en Bandaríkin, eftir því sem ný skoðanakönnun leiðir í ljós. 24.000 manns út um allan heim voru spurðir hvort þessi lönd og önnur hefðu áhrif til góðs eða ills í heiminum.
18.maí 2012 - 18:00
Hugmynd að viskíframleiðslu og byggingu verksmiðju til slíkrar framleiðslu á Austurlandi þótti besta viðskiptahugmyndin á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem fram fór um síðustu helgi í Fjarðabyggð. Hugmyndin er hugarfóstur Gillian „Dillý“ Haworth.
18.maí 2012 - 16:00
Tvær tillögur um óháð mat á því hvort lög um verðbréfaviðskipti og innherjaupplýsingar hafi verið brotin voru felldar á ársfundi Lífeyrissjóðs Festu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að fulltrúar atvinnurekenda í sjóðnum hafi tífalt atkvæðavægi á móti fulltrúum sjóðsfélaga.
18.maí 2012 - 15:20
Margir þekkja þá óþægilegu tilfinningu að hafa læst sig úti. Öllu sjaldgæfara er að fólki sé óvart læst inni en kemur þó fyrir. Sú var einmitt raunin með ónefnda konu á höfuðborgarsvæðinu en konan býr í fjölbýlishúsi.
18.maí 2012 - 14:10
Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og frambjóðandi til forseta Íslands og Svavar Halldórsson sambýilismaður hennar eignuðust dóttur í morgun og heilsast móður og barni vel.
18.maí 2012 - 13:00
Danska ríkisstjórnin og verkalýðsfélög hafa komist að samkomulagi um að sleppa úr tveimur frídögum á hverju ári og skapa með því 20.000 ný störf. Með þessu móti á danski ríkissjóðurinn einnig að gildna um heila 80 milljarða króna á ári. Fækkun frídaga hefur aldrei komið til umræðu hér á landi en vilji er fyrir því innan Samtaka atvinnulífsins að færa til frídaga, einkum þá sem koma upp á fimmtudögum.
18.maí 2012 - 12:00
Nýr efnisþáttur, Bílapressan, hefur göngu sína á Pressunni á hádegi í dag. Eins og nafnið gefur til kynna verður þar fjallað um bíla og bílatengt efni út frá sjónarmiðum bíleigenda og bílkaupenda.
18.maí 2012 - 11:00
90% fjölgun hefur orðið á reiðhjólaslysum frá árinu 2002. 70% allra þessara slysa eru á höfuðborgarsvæðinu.
18.maí 2012 - 09:33
Framboð Þóru Arnórsdóttur til forseta hefur rekið á reiðanum í tvær vikur. Enginn virðist passa sjoppuna meðan hún er í fæðingarfríi, segir fyrrverandi ritstjóri sem fullyrðir að forsetaefni getur aldrei verið i fríi af neinu tagi.
18.maí 2012 - 09:05
Það sem af er máímánuði er álagning olíufélaganna á bensín 6-7 krónum yfir meðalálagningu síðustu ára aðteknu tilliti til vísitölu neysluverðs og gengis dollars gagnvart krónunni.
18.maí 2012 - 07:55
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, hringir bjöllunni þegar Nasdaq markaðurinn opnar í. Ástæðan er sú að Facebook er loks að fara á markað og það fyrir metfé. Zuckerberg og félagar meta fyrirtækið á 104 milljarða dollara, 13 þúsund milljarða króna.
17.maí 2012 - 19:46
Evrópa er á barmi efnahagshruns sem kann að hafa víðtækar afleiðingar um allan heim, svo sannarlega líka hér á landi. Forsætisráðherra segir dómsdag nálgast; Grikkland er stjórnlaust og þar líkt og á Spáni óttast menn víðtæk áhlaup á banka næstu daga þar sem landsmenn vilja fremur geyma reiðufé undir koddanum en á ótraustum bankabókum fjármálastofnana sem óvíst er hvort lifa næstu daga af.