08. feb. 2010 - 17:17

Sigurður Kári: Gunnlaugur er ekki vinur minn og hef aldrei séð hann í starfi flokksins

Sigurður Kári, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar.

Sigurður Kári, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar. xd.is

Sigurður Kári Kristjánsson, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins, kannast ekki við að vera vinur Gunnlaugs Erlendssonar. Hann kannast heldur ekki við að hafa séð Gunnlaug bregða fyrir í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins.

Greint var frá því í morgun að breska lögfræðistofan Mishcon de Reya hafi rukkað Alþingi um 25 milljónir króna vegna álits í Icesave-málinu. Þar af fóru 10 milljónir til Gunnlaugs fyrir milligöngu hans í málinu. Í frétt DV í morgun er Gunnlaugur sagður virkur í Heimdalli, félagi ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem og vinur Sigurðar Kára.

Sigurður Kári kannast hins vegar ekki við að vera vinur Gunnlaugs, í pistli sem hann skrifar á heimasíðu sína. Kannast hann heldur ekki við að þeir tilheyri sama vinahópi. Þá segist Sigurður Kári ekki muna til þess að Gunnlaugur hafi starfað fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

„Ég hygg að fáir hafi á liðnum árum tekið jafn mikinn þátt í starfi ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins og ég.  Þó nokkuð sé um liðið hef ég bæði átt sæti í stjórn Heimdallar og auk þess verið formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.

Á mínum langa ferli innan raða ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins hef ég ekki orðið var við að Gunnlaugur Erlendsson hafi verið þar virkur þátttakandi, þó Jóhann (Hauksson, blaðamaður á DV, innsk. blaðam.) haldi öðru fram.  Raunar minnist ég þess ekki að hafa séð honum svo mikið sem bregða fyrir í störfum hreyfingarinnar.“

 

Sigurður Kári segir jafnframt liggja í augum uppi að hann, sem aðstoðarmaður formanns stjórnarandstöðuflokks, hafi ekkert haft með samningagerð fyrir hönd Alþingis eða fjárlaganefndar að gera.

 



16.mar. 2010 - 10:29

HEKLA selur Bílaleigu Akureyrar tvö hundruð nýjar Skoda og Volkswagen bifreiðir á einu bretti

Forsvarsmenn Bílaleigu Akureyrar-Hölds ehf. og HEKLU innsigla samninginn Bílaleiga Akureyrar-Höldur ehf. hefur samið við HEKLU um kaup á 200 nýjum Volkswagen og Skoda bifreiðum sem afhentar verða á vormánuðum.
16.mar. 2010 - 10:23

Opið bréf til Lars Lökke: Skildum heldur aldrei hvernig við gátum keypt danskar þjóðargersemar

Bréf Kristjáns í Börsen í dag Fjölskyldufaðirinn og stjórnarformaðurinn Kristján Gíslason, segir í opnu bréfi til forsætisráðherra Danmerkur í danska fjármálablaðinu Börsen í dag, að Íslendingar skilji ekki af hverju Danir lyfta ekki litla fingri til hjálpar frændþjóð sinni. Íslendingar hafi heldur ekki skilið hvernig Íslendingar eignuðust þjóðargersemar í Danmörku.

 


16.mar. 2010 - 10:01

ABBA fyrsta hljómsveitin utan hins enskumælandi heims í Frægðarhöll rokksins

Sænska hljómsveitin ABBA var tekin inn í frægðarhöll rokksins, Rock and roll Hall of Fame, í nótt ásamt Genesis, Jimmy Cliff, The Hollies og The Stooges.
16.mar. 2010 - 08:48

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill að fjármálaráðherra segi af sér: Sjálfum sér og öðrum til ama

Kristján Þór Júlíusson Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sé þreyttur maður, sjálfum sér og öðrum til ama, og eigi að víkja.
16.mar. 2010 - 08:04

Fjármálaráðuneytið: Bankahrunið jók skuldir ríkisins um 866 milljarða króna

Heildarskuldir ríkissjóðs næstum fjórfölduðust við bankahrunið. Þær voru 310 milljarðar króna árið 2007 og fóru í 1176 milljarða 2009. Heildarskuldir ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu voru 78% í lok árs 2009.
16.mar. 2010 - 07:36

Lyfjastofnun lætur innkalla fræðsluhefti um sykursýki: Icepharma fór ekki að lyfjalögum

Lyfjastofnun bannar dreifingu á kynningar- og fræðsluhefti um sykursýki frá Icepharma og krefst þess að það verði innkallað. Þá fer Lyfjastofnun fram á að Icepharma sendi út leiðréttingu á upplýsingum í heftinu um meðferðarmarkmið í blóðsykurstjórn.
16.mar. 2010 - 07:00

Óvænt hliðaráhrif heilablóðfalls: Missti hæfileikann til að segja nei - Kominn með 10 gsm samninga

Tæplega sextugur Breti varð fórnarlamb sílasömumanna af því að hann gat ekki sagt nei takk Hratt gengur á sparifé Davids Stopher, tæplega sextugs Breta, sem missti eiginleikann til að segja nei takk við ágenga sölumenn efir að hann fékk heilablóðfall. Hann lét pranga inn á sig tíu farsímum samtímis þótt hann noti aðeins einn.
15.mar. 2010 - 22:32

Sumar myndir þarfnast einfaldlega frekari útskýringa: 10 óskiljanlegar uppákomur

Svona á ekki að leggja bílum. Með tilkomu internetsins rata fyrir sjónir almennings myndir sem ekki með nokkru móti er hægt að útskýra án þess að vita söguna á bak við þær. Spakmælið að myndir segja meira en þúsund orð fellur í þessum tilvikum um sjálft sig.
15.mar. 2010 - 21:58

Bandaríkjamenn æfir yfir framgöngu Ísraela - Er áralöng vinátta þjóðanna fyrir bý?

Benjamin Netanyahu hefur tekist að reita bandarísk stjórnvöld til reiði. Bandaríska ríkisstjórnin er æf yfir framgöngu Ísraela sem í síðustu viku kynntu áförm sín um stækkun ísrealskrar byggðar í Jerúsalem, á svæði sem Palestínumenn telja sig eiga rétt á. Ísraelar kynntu áform sín meðan á opinberri heimsókn varaforseta Bandaríkjanna og túlka menn það sem mikla móðgun við bandarísk stjórnvöld.
15.mar. 2010 - 20:45

Þráir heitast af öllu að verða titluð þyngsta kona heims: Vegur 272 kíló og er ekki hætt

Donna Simpson segist gera sér grein fyrir skaðsemi offitunnar en lætur sér fátt um finnast. Helsti draumur bandarískrar húsmóður er að verða þyngsta kona veraldar. Hún er nú þegar þyngsta kona veraldar sem fætt hefur barn. Í dag vegur hún 272 kíló en dreymir um að ná 450 kílóa markinu. Hún heldur úti vefsíðu þar sem fólk borgar sig inn til að horfa á hana borða.
15.mar. 2010 - 20:02

Félagsmálaráðherra: Auðvelda þarf fólki að sleppa undan skuldum sem það ræður ekki við

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir nauðsynlegt að gera fólki auðveldara að sleppa undan þeim skuldum sem það ræður ekki við að greiða. Hann segir fyrirtækin sem lánuðu almenningi fyrir bílakaupum hafa afgreitt lánaumsóknir á örfáum mínútum og aldrei tekið mið af greiðslugetu lánþegans, því eigi fyrirtækin að axla sína ábyrgð.
15.mar. 2010 - 19:12

Breska fjármálaeftirlitið kærir hjón fyrir innherjasvik: Eftirlitið aukið til mikilla muna

Breska fjármálaeftirlitið hefur eflt starfsemi sína til muna undanfarna mánuði. Breska fjármálaeftirlitið hefur ákært hjón fyrir innherjasvik sem áttu sér stað á árunum 2000 - 2009. Eiginmaðurinn starfaði í breskum fjárfestingarbönkum á þessum árum og er grunaður um að hafa nýtt sér upplýsingar sem hann fékk vegna starfs síns til að hagnast á hlutabréfakaupum. Maðurinn vann í nokkur ár hjá Dresdner Capital en síðasta árið hjá fjárfestingarbankanum Shore Capital.
15.mar. 2010 - 18:18

Í farbann fyrir að valda barni alvarlegum áverkum: Fóstur- faðirinn eftirlýstur í Póllandi

Erlendir foreldrar lítils barns sem talið er að hafi skaðast af því að vera hrist harkalega, hafa verið úrskurðaðir í farbann. Fósturfaðir barnsins er eftirlýstur í Póllandi fyrir ofbeldisglæpi og og fjársvik.
15.mar. 2010 - 18:15

Stefnir í skort á krabbameins- læknum: „Stefnir víða í óefni,“ segir formaður Læknafélagsins

Tveir krabbameinssérfræðingar hafa sagt upp á LSH. Tveir krabbameinslæknar hafa sagt upp störfum á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og verða þeir báðir hættir störfum í september. Hafa þeir fengið vinnu í útlöndum. Formaður Læknafélags Íslands segir sérfræðilækna horfa í æ meiri mæli til útlanda og að víða stefni í óefni innan heilbrigðiskerfisins.
15.mar. 2010 - 17:33

Hollendingar bíða eftir Íslendingum í Icesave: Við erum tilbúnir - hvar eru tillögurnar?

Jan Kees de Jager og Steingrímur J. eru sammála um að boltinn sé hjá Íslandi Ekki stendur á Hollendingum og Bretum að hefja viðræður að nýju við Íslendinga um lausn á Icesave-málinu. Hins vegar sé enn beðið eftir tillögum frá Íslandi.
15.mar. 2010 - 16:44

William Fall fyrrverandi forstjóri Straums: Ráðinn í lykilstöðu hjá Royal Bank of Scotland

William Fall, fv. forstjóri Straums. William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, hefur verið ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland. Er Fall ætlað að æðsti yfirmaður alþjóðasviðs samsteypunnar (e. Global Head of Financial Institutions Group).
15.mar. 2010 - 16:21

Bensínhækkanir: Engin mótmælir nú en allt varð vitlaust þegar lítrinn fór yfir 150 kr

Dropinn þykir dýr og þykir mörgum nóg um. Það hefur varla farið framhjá neinum manni að bensínlítrinn er í dag kominn yfir 200 krónur á flestum bensínstöðvum landsins. Öfugt við það sem gerðist árið 2000, þegar lítrinn fór fyrst yfir 100 krónur, hefur lítið örlað á kröfum um lækkaðar álögur. Meðal þeirra sem létu hæst heyra í sér á þeim tíma var núverandi forsætisráðherra.
15.mar. 2010 - 15:09

Wikileaks: Birtir kröfuhafaskrá Kaupþings í heild sinni - boðar frekari birtingu trúnaðargagna

Upplýsingaveitan Wikileaks birtir í dag 512 blaðsíðna kröfuhafalista Kaupþings og boðar um leið að frekari birting trúnaðargagna sé væntanleg.
15.mar. 2010 - 14:15

Vandræðaleg mistök í bæklingi: Bók um kynlífsleikföng í auglýsingu um barnavörur

Bókin Sex Toys á gólfinu í auglýsingu um Hannah Montana sængurver Unnið er að því að innkalla tugþúsundir auglýsingabæklinga frá norska fyrirtækinu Princess eftir að það uppgötvaðist að í auglýsingu fyrir barnasængurföt að þar liggur bók um kynlífsleikföng.
15.mar. 2010 - 12:55

Stendur hrunskýrslan ekki undir væntingum? Stjórnsýsluúttekt en ekki neinn Stóridómur

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið verður „stjórnsýsluúttekt samin af sérfræðingum í stjórnsýslu“, segir heimildarmaður Pressunnar. Í nefndina vanti fólk með bakgrunn úr viðskiptum. Skýrslan er að koma úr prentun og á meðan er rannsóknarnefndin þögul sem gröfin.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit