07. feb. 2010 - 08:55
Nýjustu breytingar á Facebook: Hvers vegna og hvað þýða þær fyrir notendur?

Svona lítur myndasvæði Facebook út eftir nýjustu breytingar.
Allir alvöru notendur samskiptavefjarins Facebook hafa tekið eftir því að nýlega hafa átt sér stað breytingar á fyrirkomulagi innan hans. Breytingarnar miða að því að fækka skrefum sem notendur þurfa að taka innan vefjarins en einnig að viðhalda sí-notendavænu umhverfi sem er yfirlíst stefna Facebook.
Meðal annars er nú hægt að senda skilaboð til annarra notenda beint af aðalsíðunni, í stað þess að þurfa að opna nýjan glugga til þess. Auk þess reynist notendum nú auðveldara að leita að upplýsingum innan sinnar eigin Fésbókar. Eftir nýjustu betrumbætur er hægt að fá bæði beinar útsendingar á fréttum frá vinum en einnig lista yfir vinsælustu fréttirnar (eins og statusa eða tengingu við aðrar fréttir).
Netsíðan
Telegraph fjallar ítarlega um málið og vitnar m.a. í starfsmann samskiptavefjarins. „Við erum að bæta við ýmsum búnaði sem er hannaður til þess að betrumbæta daglega upplifun notenda,“ segir Facebook-verkfræðingurinn Jing Chen um nýju breytingarnar.
„Til dæmis þegar þú færð Facebook ábendingu um það að einhver hafi skrifað á vegginn þinn eða merkt þig á mynd, þá sérðu rauða bólu uppi í vinstra horninu, nálægt leitarvélinni. Þegar þú klikkar á bóluna, sérðu box sem fellur niður með síðustu ábendingum.“ Chen segir að sífelld framþróun og nýsköpun sé það sem Facebook standi fyrir og þess vegna megi notendur búast við öðrum eins breytingum áður en langt um líður - allt í þeim tilgangi að gera vel við þær milljónir fólks sem nýtir sér vefinn daglega.
10.mar. 2010 - 22:10
Auglýsingar verða sífellt beittari og meira skapandi eftir því sem tækninni fleygir fram. Eftir því sem meira framboð er af þeim verður væntanlega erfiðara að koma skilaboðum áleiðis og hitta í hjartastað neytenda. Oftar en ekki grípa auglýsingahönnuðir því til ógnvekjandi auglýsinga og hárbeitts myndmáls til þess eins og neytendur skilji alvöru málsins. Það liggur fyrir að tilgangur þannig auglýsinga er að hreyfa við fólki og oft á tíðum skapa hjá þeim hræðslu með þeim skilaboðum sem eru send.
10.mar. 2010 - 21:23
Birkir Jón Jónsson, þingmaður, varaformaður Framsóknarflokksins og Pressupistill segir það undarlegt að framsóknarmenn, sem talað hafa fyrir hvað mestri samstöðu á Alþingi, séu nú sakaðir um að vera ekki heilir í sínum málaflutningi. Birkir segir það umhugsunarefni, í ljósi krafna um breytt vinnubrögð Alþingis, að ekkert hafi breyst eftir fjármálahrunið. Hann býst ekki við breytingum af hálfu Jóhönnu forsætisráðherra og Steingríms fjármálaráðherra sem hafa samtals setið á Alþingi í 60 ár.
10.mar. 2010 - 20:49
Einhvern tíma var sagt um Chuck Norris að hann pissi ekki nafn sitt í snjóinn eins og aðrir, heldur í steypu. Það getur hann eflaust ennþá þótt hann fagni 70 ára afmæli sínu í dag, enda harðari menn vandfundnir.
10.mar. 2010 - 20:00
Menningarverðlaun DV voru veitt síðdegis í dag í Iðnó en þau hafa verið haldin síðan 1978. Keppt var í 10 flokkum um verðlaun. Fornleifastofnun Íslands, Daníel Bjarnason, tónlistarmaður, Vík Prjónsdóttir, aðstandendur sýningarinnar Jesú litli, Listasafn Reykjavíkur, kvikmyndagerðarkonan Þórunn Hafsteð og hljómsveitin Hjálmar voru meðal þeirra sem verðlaunuð voru.
10.mar. 2010 - 19:27
Breytingar munu eiga sér stað innan ríkisstjórnarinnar öðru hvoru megin við páska en mikill kapall gæti fylgt þeim í kjölfarið. Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálafræðingur segir að breytingar hljóti að verða á ríkisstjórninni fyrr en seinna áður en hún fer að tapa miklu fylgi sem hann segir að geti verið í spilunum.
10.mar. 2010 - 19:16
Útlit og hönnun forsíða tímarita getur haft gríðarlega mikið um það að segja hvort og í hve stóru upplagi viðkomandi blað selst. Þannig getur sama tímarit selst í mjög mismunandi magni, allt eftir því hvernig forsíðan lítur út. Árið 2009 virðist það hafa verið poppgoðið Michael Jackson sem seldi flest tímarit í Bandaríkjunum sem og sniðugar grafískt-hannaðar forsíður með þekktum aðilum framan á miðað við upplýsingar frá tímaritaútgefandanum Min Online.
10.mar. 2010 - 18:43
Ægir Þór Eysteinsson, fréttamaður á RÚV, segir enga ástæðu til annars en að standa við fréttaflutning sinn af málefnum Jóns Þorsteins Jónssonar, fyrrum stjórnarformanns Byrs. Sérstakur saksóknari hefur lánveitingar sparisjóðsins til stjórnenda hans til skoðunar.
10.mar. 2010 - 18:10
Ráðamenn í Pecica í Rúmeníu eru orðnir langþreyttir á fyllibyttum sem hafa valdið ómældu tjóni í umferðinni. Hafa þeir komið upp umferðarskiltum á tíu stöðum í borginni þar sem varað fer við drukknum vegfarendum.
10.mar. 2010 - 17:00
Lögregla og félagsmálayfirvöld í Bretlandi gáfu í dag út opinbera afsökunarbeiðni eftir að kerfið lét hjá líða að skerast í mál fjölskyldu sem mátti þola líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi í þrjá áratugi. Á þessum tíma barnaði maðurinn dætur sínar tvær alls 19 sinnum og barði þær ítrekað.
10.mar. 2010 - 16:42
Þau Rakel Marín Konráðsdóttir og Viktor Blær Hafþórsson verða í hópi þeirra barna sem leiða leikmenn Manchester United inn á Old Trafford í leik liðsins gegn AC Milan í Meistaradeild Evrópu. Verða þau fyrstu Íslendingarnir sem njóta þess heiðurs.
10.mar. 2010 - 15:20
Formenn stjórnarflokkanna segjast klára Icesavesamningana upp á eigin spýtur velji stjórnarandstaðan að hlaupast á brott frá þeirri vinnu. Þeim beiska kaleik geti ábyrg ríkisstjórn ekki vikið frá sér.
10.mar. 2010 - 14:41
Fjármálaeftirlitið kannar nú hæfi stjórnarmanna móðurfélags Arion banka en ný stjórn bankans tekur ekki til starfa fyrr en því mati er lokið - og þá hæfi mögulegra stjórnarmanna bankans.
10.mar. 2010 - 14:10
Að minnsta kosti fimm sænsk sjúkrahús neita nú að gera stórar aðgerðir á reykingamönnum. Fylgikvillar séu of margir og vandamál sem fylgir reykingamönnum séu einfaldlega of mikil.
10.mar. 2010 - 13:15
„Það hlýtur að vera einsdæmi að svona stórt málverk sé selt aðeins einum degi eftir að það er afhjúpað,“ segir listamaðurinn Hjalti Parelius Finnsson sem málaði málverk sem túlkar þjóðfélagsástandið í dag. Verkið var selt um helgina og var kaupandinn Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi.
10.mar. 2010 - 12:00
Breska stórblaðið Financial Times segir að forseti Íslands gefi í skyn að Bretar ættu að vingast við Íslendinga, ekki þvinga þá í Icesave-málum í ljósi þess að Kínverjar og Indverjar séu farnir að sýna Íslandi áhuga þar sem siglingaleiðin yfir norðurskautið sé að opnast.
10.mar. 2010 - 11:48
Fjársvikamaður krafðist þess að lögreglan í Reykjavík setti sig í fangelsi. Lögreglan þurfti að beita fortölum til að losna við hann af lögreglustöðinni.
10.mar. 2010 - 11:05
Helmingur íslensku þjóðarinnar hefur látið bólusetja sig við svínaflensu. En betur má ef duga skal. Sóttvarnarlæknir kallar þá lægð sem svínaflensan er í „svikalogn“. Hún blossi aftur upp síðsumars eða í haust.
10.mar. 2010 - 10:55
Fyrrverandi stjórnarformaður Byrs segir rangfærslur hafðar uppi um lánveitingar til fyrrum eigenda. Himinn og haf sé milli þess að skulda 3 milljarða eða 418 milljónir. Hann skilji sárindi stofnfjáreigenda hann hafi sjálfur tapað miklu.
10.mar. 2010 - 09:49
Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone, segir að Ísland hafi verið komið á svartan lista í september 2007, ári áður en hrunið varð. Erlendir bankar hafi ekki lengur viljað fjármagna íslensk fyrirtæki.
10.mar. 2010 - 08:43
Tvær sálir voru seldar saman í einni flösku á uppboði á Nýja-Sjálandi fyrir ríflega 254.000 íslenskar krónur. Sálirnar voru að sögn Avie Woodbury, uppboðshaldarans, gómaðar inni á heimili hennar og settar í flöskuna. Í flöskunni var einnig heilagt vatn sem ku hafa dregið úr orku andanna.