08. feb. 2010 - 12:18

Lee Buchheit verður íslenskum stjórnvöldum til ráðgjafar í hugsanlegum Icesave-viðræðum

Stjórn og stjórnarandstaða hafa fundað stíft undanfarnar vikur til að ná samstöðu um næstu skref í Icesave-málinu.

Stjórn og stjórnarandstaða hafa fundað stíft undanfarnar vikur til að ná samstöðu um næstu skref í Icesave-málinu. Pressan.is/Magnús

Ákveðið hefur verið að leita til Lee Bucheit um að verða íslenskum stjórnvöldum til ráðgjafar í mögulegum samningaviðræðum við Breta og Hollendinga í Icesave-málinu. Þetta var niðurstaða fundar milli stjórnar og stjórnarandstöðu í morgun.

Buchheit er sérfræðingur í samningatækni og alþjóðalögum og hefur sérhæft sig í þjóðarskuldum. Hins vegar er ekki enn komið á hreint hvort Bretar og Hollendingar fallast á að hefja samningaviðræður í ný. Þreifingar þess efnis hafa þó verið í gangi á síðustu vikum. Enn er stefnt að því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave þann 6. mars.

Fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu funda aftur á morgun.




12.mar. 2010 - 10:18

Kanadískir þingmenn halda selaveislu: Stuðningurinn við selveiði hefst á matardisknum

Þingmenn í Kanada gæddu sér á selskjöti í vikunni til að mótmæla dýraverndarsinnum og Evrópusambandinu sem hefur bannað innflutning á selafurðum.
12.mar. 2010 - 09:32

Eyjafjallajökull tútnar út og skelfur: Stöðug kvikuinnskot en ekki komið að gosi

Jarðskjálftakort Veðurstofu Íslands frá í morgun Stöðug kvikuinnskot eru undir Eyjafjallajökli og eldfjallið tútnar út. Skjálftar um 3 stig mældust síðdegis í gær og í síðustu viku, en að öðru leyti er smáskjálftavirkni viðvarandi, aðallega á 7-11 km dýpi. Á meðan er ekki búist við að fari að gjósa.
12.mar. 2010 - 08:46

Icesave lykillinn að frekari stuðningi: Fleygur í samstöðu norrænu frændþjóðanna

Þrátt fyrir að Norðmenn hafi létt á þrýstingnum á Íslendinga að ganga frá Icesave-deilunni áður en frekari lánafyrirgreiðsla fæst sitja hinar norrænu þjóðirnar enn við sinn keip. Á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda í gær kom fram að frágangur Icesave-málsins er forsenda fyrir meiri stuðningi.
12.mar. 2010 - 07:41

Lán færð yfir í ríkisbankana á hálfvirði: Ungur lyfjafræðingur vill hlut í því en fær ekki svar

Arionbanki naut mestra afskrifta þegar lán til viðskiptavina voru færð yfir í nýju bankana. Valdís Beck, liðlega þrítugur lyfjafræðingur og markaðsfulltrúi, sendi bankanum fyrirspurn fyrir mánuði og spurði hvort hún fengi ekki að njóta afslátta bankans í neinu. Ekkert svar hefur borist.
12.mar. 2010 - 07:00

Unglingahræður skerða mannréttindi ungmenna: Evrópuráðið vill þær burt

Unglingahræðan fælir burt ungt fólk undir tvítugu Óvelkomin ungmenni í verslanamiðstöðvum, meðal annars í Bretlandi, eru fæld burt með tæki, eins konar unglingahræðu, sem gefur frá sér óþægilegt hljóð. Evrópuríki eru nú hvött til að fjarlægja þessi tæki þar sem þau þykja skerða mannréttindi ungs fólks.
11.mar. 2010 - 22:17

Er eitthvað vandræðalegra en að vera handjárnuð í grímu-búningum? Hlægilegar MYNDIR

Trúðurinn tekinn úr umferð. Það er nógu slæmt fyrir einstaklinga að vera handjárnaðir af lögreglu eða öðrum yfirvöldum í eðlilegum klæðnaði. Hvað þá að vera handjárnaðir uppáklæddir sem Spiderman, lukkudýr einhvers íþróttaliðs eða bara í gervi Mjallhvítar, vinkonu dverganna sjö? Svo ekki sé talað um ef einstaklingur er í heilgalla sem trúður.
11.mar. 2010 - 21:06

Vill fá „neyðarhnapp“ á Facebook strax í notkun: Til varnar ung- mennum gegn barnaníðingum

Umræða um neyðarhnapp á samskiptavefnum Facebook hefur komið upp á Bretlandseyjum í kjölfar sífellt fleiri dæmi um barnaníðinga sem nýta sér samskiptamátann til þess að komast í tæri við ungmenni.
11.mar. 2010 - 20:41

Skaut harkalega á þingheim: Ættu að eyða minni tíma í karp í ræðustól og fjölmiðlum

Margrét Kristmannsdóttir. Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ skaut harkalega á þingheim á aðalfundi samtakanna í dag. Margrét sagði það einfeldni að halda að 63 þingmenn þjóðarinnar, með takmarkaða reynslu af atvinnulífinu, kæmi Íslendingum upp úr kreppunni. Þá sagði hún að Vinstri grænir þyrftu að ákveða hvorum megin við borðið þeir væru og að þingmenn ættu að eyða minni tíma í innihaldslaust karp og viðræður við fjölmiðla í tímabundnum vinsældarkosningum.
11.mar. 2010 - 19:55

Leikstjóri hundruða klámmynda vill á þing: Aðalbaráttumál hennar verða jafnréttismál

Anna Arrowsmith, sem hefur sérhæft sig í gerð mörg hundruð klámmynda, býður sig fram til setu á breska þinginu fyrir flokk frjálslyndra demókrata í kosningum í vor. Kjördæmi Arrowsmith er Kent. Hún biður kjósendur að dæma hana af skoðunum sínum í málum tengdum kvenréttindum, en ekki af störfum sínum í klámmyndaiðnaðinum.
11.mar. 2010 - 19:24

Verkfalli flugumferðastjóra aflýst: Löggjöf stjórnvalda spilaði inn í segir formaður

Flugumferðastjórar aflýstu í kvöld verkfalli sínu sem átti að hefjast kl. 7 í fyrramálið. Eins og Pressan greindi frá átti ríkisstjórn landsins að funda um málið kl. 19:30 og setja lög um vinnudeiluna. Ottó Eiríksson, formaður flugumferðastjóra segir í samtali við Pressuna að verkfall geti enn skollið á næstkomandi miðvikudag.
11.mar. 2010 - 18:55

Dæmdur fyrir að stela 15 tonnum af áburði: Varði sig með því að þýfið væri einskis virði

Starfsmaður Fóðurblöndunnar var í dag sakfelldur í Hæstarétti fyrir þjófnað á 15 tonnum af gölluðum áburði hjá fyrirtækinu og gefið skyldfólki sínu. Starfsmaðurinn sagði að áburðurinn hefði verið ónýtur og gæti því ekki verið andlag þjófnaðar.
11.mar. 2010 - 18:16

Ríkisstjórnin missir þolinmæðina gagnvart flugumferðarstjórum: Lög sett á verkfall í kvöld

Ríkisstjórnin virðist hafa misst þolinmæðina gagnvart verkfalli flugumferðarstjóra, því ríkisstjórnin kom óvænt saman til fundar nú kl. 18 í kvöld og Alþingi hefur verið kallað saman kl. 19:30 vegna fyrirhugaðrar lagasetningar á vinnudeiluna.
11.mar. 2010 - 18:13

Sigurjón M. Egilsson dæmdur fyrir meiðyrði í fyrsta sinn: Hundfúll, fór í golf

Sigurjón M. Egilsson Hæstiréttur dæmdi í dag Sigurjón M. Egilsson, fyrrverandi ritstjóra DV, fyrir ærumeiðandi ummæli í garð sakbornings í kókaínmáli. Hann segist oft hafa verið kærður fyrir meiðyrði en ekki dæmdur fyrr en nú.
11.mar. 2010 - 17:02

Hæstiréttur dæmir blaðakonu og ritstjóra fyrir meiðyrði í DV: Þetta er ótrúlegt, segir Erla Hlynsdóttir

Hæstiréttur dæmdi í dag Sigurjón M. Egilsson, fyrrverandi ritstjóra DV, og Erlu Hlynsdóttur blaðamann fyrir ærumeiðingar í garð Rúnars Þórs Róbertssonar, eins sakborninga í kókaínmáli sem Erla fjallaði um. Hæstiréttur sneri þar með sýknudómi héraðsdóms.
11.mar. 2010 - 16:30

Lögreglan í Danmörku lýsir eftir prumpkallinum: Hefur misboðið sjö konum frá því í haust

Prumpkallinn hefur eignast aðdáendasíðu á Facebook í Danmörku Sjö konur hafa tilkynnt lögreglu á Norður-Sjálandi að maður, sem í dönskum fjölmiðlum er kallaður prumpkallinn, hafi áreitt þær með því að biðja um að þær leysi vind á sig. Lögreglan hvetur prumpkallinn til að gefa sig fram svo að hægt verði að veita honum viðeigandi sálfræðimeðferð.
11.mar. 2010 - 14:35

Sjálfsvíg ungmenna í Hafnarfirði: Foreldrar hvattir til að huga vel að líðan barna sinna

Í kjölfarið á sjálfsvígum tveggja ungmenna í Hafnarfirði með skömmu millibili hafa skóla- og félagsmálayfirvöld í bænum sent út hvatningu til foreldra um að huga sérstaklega vel að líðan barna sinna og hegðun. Þá er boðin fram aðstoð ef ástæða þykir til að hafa áhyggjur.
11.mar. 2010 - 14:23

Ráðgátan um „bölvaða brauðið“ upplýst: CIA setti LSD í brauð þorpsbúa í tilraunaskyni

Þann 16. ágúst 1951 gengu íbúar í Pont-Saint-Esprit af göflunum. Hefur komið í ljós að þeir voru undir áhrifum LSD. Upplýst hefur verið hvað varð til þess að íbúar í franska þorpinu Pont-Saint-Espirit gengu af göflunum dag einn árið 1951. Bandaríska leyniþjónustan, CIA, setti ofskynjunarlyfið LSD í brauð þorpsbúa í tilraunarskyni. Íbúar þorpsins glíma enn við afleiðingarnar.
11.mar. 2010 - 14:10

Reitir fasteignafélag semur við verkfræðistofuna EFLU: 25.000 fermetra skrifstofugarðar

Frá undirritun samninga. EFLA verkfræðistofa og Reitir fasteignafélag hafa skrifað undir samning um leigu á 3800m2 húsnæði í nýjum skrifstofugörðum Reita að Höfðabakka 9. EFLA sem er eitt stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins er nú með aðstöðu á fjórum stöðum í Reykjavík en mun sameina þær í eina starfsstöð í húsnæðinu að Höfðabakka.
11.mar. 2010 - 13:30

Auglýsingaherferð gegn fyrningarleið: „Ég myndi aldrei standa svona að þessu“

Ein auglýsingin af átta sem birtist í Viðskiptablaðinu í dag. „Ég myndi aldrei standa svona að þessu,“ segir Sigurður Sveinn Sverrisson, sem fer með upplýsinga- og kynningarmál hjá LÍU, er hann var spurður út í viðamikla auglýsingaherferð gegn fyrningarleiðinni í Viðskiptablaðinu. Hann segir blaðið sjálft eiga frumkvæði að herferðinni.
11.mar. 2010 - 13:13

Utanríkisráðherra sendir sænskum ráðherra tóninn: Afbakar staðreyndir um Icesave

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra er óhress með sænsk stjórnvöld Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fer háðulegum orðum um fjármálaráðherra Svía í viðtali við sænskt dagblað. Hann segist vera miður sín yfir því að svo virtur stjórnmálamaður afbaki staðreyndir um þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 07.3.2010
Þegar mér stóð ekki
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 08.3.2010
Eitruð leikföng!
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
Böðlar kerfisins
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 07.3.2010
Strákar, engan svona aumingjaskap!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Magnús Geir Eyjólfsson
Magnús Geir Eyjólfsson - 08.3.2010
Ginningarfífl flokkanna
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Fleiri pressupennar
Barnapressan
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Snæfríður Ingadóttir - 09.3.2010
Staðarskáli - svo miklu meira en pissustopp – MYNDIR
Teitur Guðmundsson - 08.3.2010
Eitruð leikföng!
Sjá meira


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit