08. feb. 2010 - 14:55

Sarah Palin hefur farið mikinn undanfarið. Hún er nú stjórnmálaskýrandi hjá Fox News auk þess sem hún gaf út bók á dögunum, Going Rouge, sem selst hefur í bílförmum. Getty images
Fyrir einungis ári síðan var hugtakið „Teboðið“ einungis hluti af sögu Ameríku og liður í sjálfstæðisbaráttu hennar. Í dag hafa grastrótarsamtök róttækustu hægri manna Ameríku tekið þetta hugtak upp á sína arma og hafa hafið krossferð til að endurheimta hin „gömlu gildi Ameríku“ á ný. Meðal þeirra sem fara fyrir hópnum er Sarah Palin.
Boðskapur samtakanna er í raun einfaldur. Það er verið að eyðileggja Ameríku og allt það sem hún stendur fyrir. Ríkisstjórnin boðar sósíalisma og hin hefðbundnu amerísku fjölskyldugildi fara ört hnignandi. Það þarf ekkert minna en byltingu til að snúa þróuninni við.
Samtökin voru stofnuð í fyrra og var beint gegn Barack Obama og ríkisstjórn hans. Samtökin, sem var fámennur félagsskapur áhrifaríkra hægri manna, létu mikið í sér heyra en fjölmiðlar veittu þeim litla athygli. Nema að sjálfsögðu Fox News, sem jafnan er álitið málpípa hægri manna vestanhafs, sem sýndi beint frá hverjum viðburði samtakanna.
Samtökin samanstanda af hópi óánægðra íhaldsmanna, áhrifamikilla kristilegra trúarleiðtoga og frjálshyggjumanna. Fyrsti viðburður Teboðssamtakanna (e. Tea Party) var haldinn í apríl í fyrra. Hópurinn var fámennur í byrjun en hefur stækkað á ógnarhraða, ekki síst fyrir tilstilli skipulagðra fjöldafunda í öllum krókum og kimum samfélagsins. Þúsundir manna sækja viðburði samtakanna nú og sá fjölmennasti hingað til var fyrst landsfundur þeirra um síðustu helgi. Staðsetning fundarins var viðeigandi fyrir boðskapinn, Nashville í Tennessee fylki sem er í hjarta Suðurríkjanna, en þangað sækir hreyfingin mesta stuðning sinn.
Fyrrum varaforsetaefni Repúblíkanaflokksins, Sarah Palin, er andlit hreyfingarinnar sem vinnur hörðum höndum að því að færa stefnu flokksins enn frekar til hægri. Slá margir sérfræðingar því föstu að hún muni gera harða atlögu að því að verða forsetaframbjóðandi Repúblíkana árið 2012. Sást bersýnilega á fundinum að Palin er vonarstjarna hægri manna, enda vakti ræða hennar á ráðstefnunni feykimikil viðbrögð.
„Andi Ameríku þarf að rísa á ný, við þurfum að hverfa aftur til róta okkar og verða Guðhrædd þjóð á ný.“
sagði Palin, og bætti því við að ameríska þjóðin þurfi að „leita guðlegrar íhlutunnar.“ En hvað er það sem fylgismenn hreyfingarinnar óttast svo mjög? Einn stuðningsmaður Palin orðar það þannig:
„Við viljum landið okkar aftur. Frá ríkisstjórn sem leiðir okkur sífellt lengra í átt að sósíalisma og lengra frá stjórnarskránni.“
Máli sínu til stuðnings bendir hreyfingin á fyrirhuguð áform Obamas um breytingar á heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna og kolefnisgjöld. Þetta mun vera argasti sósíalismi í Bandaríkjunum. Ofan á þetta bætist við að sífellt þrengir að kirkjunni í skólum landsins og hið hefðbundna fjölskyldumynstur virðist á undanhaldi. Þannig hafa nokkur fylki Bandaríkjanna lögleitt hjónabönd samkynhneigðra. Þessi þróun var reyndar vel á veg komin áður en Obama tók við völdum. Obama hefur hins vegar tekið þá stefnu að stórauka ríkisútgjöld til að koma efnahagslífinu í gang. Það þykir þyrnir í augum hreyfingarinnar sem vill algjör lágmarksafskipti frá Washington.
Líkt og búast mátti við segja gagnrýnendur hreyfingarinnar að málflutningur hennar sé sprottinn af kynþáttahatri. Það er, kristnir hægri menn þola ekki að sjá blökkumann í Hvíta húsinu. Benda þeir á ummæli fyrrum öldungadeildarþingmannsins Tom Tancredo í Nashville um helgina. Sagði hann að Obama hafi verið kosinn af fólki „sem kann hvorki að stafa né bera fram orðið atkvæði á ensku.“ Bætti hann því við að ef lestrarpróf þau sem innflytjendur voru látnir undirgangast á aðskilnaðartímabilinu, þá hefði þessi „einbeitti kommúnisti“ aldrei sigrað kosningarnar.
99 prósent þeirra sem sóttu ráðstefnuna í Nashville voru hvítir og 90 prósent voru á miðaldra eða eldri. Samtökin lögðu sérstaka áherslu á að borðar og fánar sem innihéldu niðrandi skilaboð um aðra kynþætti yrðu bannaðir á ráðstefnunni, en slíkir fánar voru áberandi á fyrstu viðburðum hreyfingarinnar.
Teboðssamtökin hafa vaxið mun hraðar bjartsýnustu menn þorðu að vona, ekki síst fyrir tilstilli Fox News. Má búast við því að enn frekar skerpist á umpólun bandarískra stjórnmála nái hún þeim styrk að geta haft varanleg áhrif á stefnu Repúblíkanaflokksins.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.