17. sep. 2009 - 13:00
Hversu lengi geta konur þagað yfir leyndarmáli? 47 klukkustundir og 15 mínútur samkvæmt nýrri rannsókn. Fjórar af hverjum tíu konum geta engan vegið staðið á sér að deila leyndarmálum, sama hversu viðkvæmt málefnið er.
Það eru samtökin Wines of Chile sem standa að baki rannsókninni sem náði til þrjú þúsund kvenna á aldrinum 18 til 65 ára.
Meiri en helmingur kvennanna viðurkenndi að þær leki leyndarmálum undir áhrifum áfengis. Makar, bestu vinir og mæður eru líklegust til að fá að heyra leyndarmálin.
„Það er opinbert. Konur geta ekki þagað yfir leyndarmálum,“ segir Michael Cox sem fer fyrir rannsókninni. „Það er sama hversu viðkvæmt málefnið er, það er oftast orðið að almannarómi innan tveggja sólarhringa.“
Rannsóknin leiðir einnig í ljós að ríflega átta af hverjum tíu konum telja sig sjálfar traustsins verðar, þrátt fyrir að viðurkenna að þær slúðri. Meðalkonan heyrir að meðaltali þrjár kjaftasögur á viku og deilir þeim með að minnsta kosti einni annarri manneskju.
Þrjár af hverjum tíu finna fyrir „verulegri þörf“ til að deila leyndarmálum á meðan helmingur telur það gott að létta þeim af brjósti sér. Tvær af hverjum þremur sjá hins vegar eftir því að hafa deilt leyndarmálinu.
Ein af hverjum fjórum konum í könnuninni finnst í góðu lagi að deila leyndarmáli vinar síns með einhverjum sem hann þekkir ekki.
Algengasta slúðrið sem konur deila eru trúnaðarmál, framhjáhöld og raunverulegur kostnaður vöru sem keypt var.
Ljósið í myrkrinu fyrir þá sem óttast að leyndarmál þeirra séu nú komin út um allt er að 27 prósent kvenna eru búin að gleyma því sem þeim var sagt sólarhring síðar.Sambærileg rannsókn um karlmenn liggur ekki fyrir.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.