18. nóv. 2009 - 18:00Gagnrýni

Jón Yngvi segir Eirík Örn Norðdahl vera fádæma stílista: Hrun og afleiðingar þess

Eiríkur Örn Norðdahl:

Gæska

Mál og menning 2009.

Á íslensku heitir útópía staðleysa. Andheitið, dystópía, sem lýsir ranghverfu draumalandsins, neikvæðri staðleysu eða vondum stað heitir á hinn bóginn ekki neitt á íslensku. Kannski er þetta  vegna þess hvað Íslendingar voru bláeygir, bjartsýnir og trúaðir á framfarir allt þangað til síðasta haust.

Gæska Eiríks Arnar Norðdahl er staðleysa, hún fjallar um Ísland sem ekki er til, mögulegt Ísland sem hefði getað sprottið úr öðru hruni í öðrum heimi. Þetta Ísland er kannski  betra en það sem við sitjum uppi með, kannski verra.

Sagan lýsir hruni og afleiðingum þess, en ekki okkar hruni. Því Íslandi sem lýst er í Gæsku er að vísu stjórnað af pungrottum á ýmsum aldri fyrir byltingu, og í fyrsta hluta sögunnar er því lýst hvernig þeir marsera jakkafataklæddir til kirkju og þingsetningar með trúðklæddan forseta í broddi fylkingar og tilheyrandi preláta kirkjunnar næsta í röðinni.  En þrátt fyrir þessi líkindi með Íslandinu sem lýst er í sögu Eiríks og okkar eigin Íslandi er hér ýmislegt sem vekur furðu,konur kasta sér niður úr háhýsum og lifa af, mótmælendum er skolað út í Reykjavíkurtjörn og alla söguna logar eldur í Esjunni. Logandi fjallið minnir nokkuð á aðstæðurnar í Sælir eru einfaldir eftir Gunnar Gunnarsson þar sem eldur í Kötlu brennur meðan Reykjavík liggur í Spænsku veikinni og heimur persónanna hrynur smám saman.

Fleira í sögunni gefur samanburði við þá sögu undir fótinn.

Hér er sem sagt fengist við alvarleg málefni, hrun, byltingu og nýtt samfélag. En sagan er, sérstaklega framan af, uppfull af ólíkindalátum og fjöri. Persónunum og athöfnum þeirra er stundum lýst í hálfkæringi, stundum í fúlustu einlægni, oft og tíðum grunar maður söguhöfund um að vera gegnumírónískan, öðrum stundum verður frásögnin allt að því naív í einlægni sinni. Þeir sem þekkja fyrri skrif Eiríks, bæði ljóð, skáldsögur og greinar vita að hann er fádæma stílisti og hefur fjölmargar stíltegundir á valdi sínu. Stíllinn á Gæsku er bæði fjölbreyttari og þróttmeiri en á fyrri skáldsögum Eiríks, hann leyfir sér meira, bæði flóknari stíl og meiri hasar og læti í lýsingum og atburðum.

Fyrirferðarmestu persónur sögunnar eru hjónakornin Millý og Halldór Garðar, sem bæði sitja á þingi, hún brennur í andanum fyrir hugsjónum jafnréttis og bræðralags, hann hefur sannfært sjálfan sig um hugsjónir frjálshyggjunnar og dreymir raunsæja drauma um einkavæðingu skólalóða og fleira fallegt ásamt vinum sínum úr flokknum. Sagan hefst á þingsetningu og þar er Halldór fjarri góðu gamni. Hann hefur orðið fyrir þeim ósköpum að sjá í gegnum sjálfan sig. Hann gerir sér grein fyrir því að hann vill ekki lengur leika hlutverk sitt á þingi sem frjálshyggjumaður.

Þessi innsýn hans í sjálfan sig leiðir þó ekki til þess að hann taki nýja stefnu í lífinu, þvert á móti. Halldór flýr heiminn, lokar sig inni á hótelherbergi og  fer huldu höfði meðan byltingin nálgast óðfluga.

Og hér fer lesanda sem þekkir verk Eiríks Arnar að gruna eitthvað sérkennilegt samhengi milli Gæsku og síðustu skáldsögu Eiríks, Eiturs fyrir byrjendur. Söguhetja þeirrar bókar heitir líka Halldór og hann flýr líka veruleikann þótt veruleikaflótti hans sé róttækari og óræðari en nafna hans þingmannsins. Karlkynið í sögum Eiríks er ósköp aumt og ekki bara í einkalífinu, hrunið hefur afdrifarík áhrif á valdahlutföll kynjanna.

Ásamt Halldóri og Millýju er í Gæsku sögð saga tveggja annarra fjölskyldna. Freyleif, aðstoðarkona Millýjar, er gift gröfumanninum Óla Dóra, einnig koma við sögu flóttamennirnir Kadír og Fatíma og barnung dóttir þeirra. Þar með er þó ekki allt upp talið. Gæska setur glæsilegt Íslandsmet í mannfjölda í íslenskri skáldsögu áður en yfir lýkur.

Sælir eru einfaldir eftir Gunnar Gunnarsson, sem nefnd var hér að framan, endar á hálfgerðri uppgjöf sögumannsins sem hefur orðið vitni að ragnarökum dauða og brjálsemi. Hann getur ekki boðið upp á aðrar lausnir en þær sem felast í orðunum: „Verið góðir hver við annan“.

Gæsku lýkur á svipuðum boðskap. Í lok sögunnar stendur ekki annað til boða en að mæta vandamálunum með góðmennskuna og gæskuna að vopni. Og að lokum er eins og írónían sé endanlega á bak og burt. Lausnin er ekki einföld, það er hæpið að hún sé framkvæmanleg, en hún er það eina sem er í boði.


Jón Yngvi Jóhannsson
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.



02.sep. 2010 - 22:15

Taktu mjög vel eftir: Þetta fólk í þessum aðstæðum sést bara einu sinni - MYNDIR

Superman á skíðum í góðum fíling. Sumir einstaklingar hér á jörð eru þannig af Guði gerðir að þeim tekst í sífellu að koma sér í aðstæður sem ætti varla að vera hægt að koma sér í.
02.sep. 2010 - 21:33

Vetur vofir yfir alls staðar... Nema á Íslandi: Útlendingur safnar íslenskum sundlaugum

Er smá haustlykt í loftinu? Eða hugsanir um vetur og kulda allsráðandi? Ekki á Íslandi, því á Íslandi eru heitar sundlaugar opnar allt árið, skrifar maður sem safnar íslenskum laugum.
02.sep. 2010 - 21:09 Gunnar Bender

Vel gengur í Jónskvísl

,,Síðasta holl sem fór í Jónskvísl Sýrlæk fékk 14 sjóbirtinga,  þar af var 9 gefið líf. Hollið þar á undan fékk 8 sjóbirtinga," sagði Rafn A. Guðjónsson er við inntum hann frétta af veiðinni í Jónskvíslinni.

02.sep. 2010 - 20:15

Kyrkt af eiginmanni? Framhjáhald komst upp vegna Facebook - Óhugguleg réttarhöld

Þau Vicky og Michael Roberts. Breskur eiginmaður liggur undir grun um að hafa kyrkt konu sína þegar hún komst að því að hann hafði verið henni ótrúr með að minnsta kosti tveimur öðrum konum.
02.sep. 2010 - 19:30

Íslenskum strætóbílstjórum tókst „mission“ sitt: Trylltust þið? Algjörlega!

Frá vinstri, Andrés Bergsson, Sigurjón Guðnason, Kristján Kjartansson, Hörður Tómasson liðsstjóri, Þórarinn Söebech, Steindór Steinþórsson, Róbert Daði Helgason og Björg Guðmundsdóttir. Íslenskir strætisvagnabílstjórar trylltust algjörlega þegar úrslit voru kunngjörð í Norðurlandamóti strætisvagnabílstjóra.
02.sep. 2010 - 18:00

Hvolpamorðinginn gaf sig fram: Segja almenningi standa ógn af henni - Hótað öllu illu

Þarna sést Katja Puschnik þrykkja hvolpunum í ána. Eftir að myndband fór í dreifingu um netheima, með stúlku að þrykkja hvolpum í á, varð allt vitlaust. Ýmsir þrýstihópar létu til sín taka og há peningaverðlaun voru boðin þeim sem gæti nafngreint hana.
02.sep. 2010 - 17:07

Ögmundur Jónasson skoðar hvort ákvörðun Kristjáns Möllers um ECA bindi hendur hans

Herþotur í Keflavík Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 16:50

Listhneigðir Hraunarar láta ljós sitt skína á Ljósanótt - Hafa nægan tíma til listsköpunar

Skartgripir sem fangi hannaði á Litla Hrauni og eru til sýnis á Ljósanótt Fangar á Litla Hrauni sýna verk sín og selja á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Fangavörður segir margt verða til að gleðja augað á sýningunni því að margir fangar sýni og sanni að í þeim býr hreinræktaður listamaður sem fengið hefur tækifæri til að brjótast út.
02.sep. 2010 - 15:18

Útivistarfólki stafar hætta af eldisfiski sem stekkur þrjá metra í loft upp - MYNDBAND

Minnstu munar að vatnakarfinn stökkvi á Kirby og roti hann Myndband af hundruð vatnakarfa takast hátt á loft þegar hraðbát er siglt framhjá  hefur vakið mikla athygli í netheimum. Veiðistangirnar um borð voru gersamlega óþarfar.
02.sep. 2010 - 14:39

DV verður fyrir árás frá vesturströnd Bandaríkjanna: Skannaðu tölvuna þína til öryggis

Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23

Jóhanna segir „ótrúlegan árangur“ hafa náðst: Bjarni sér hins vegar afturhaldsstjórn

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 13:03

Verður nýja ríkisstjórnin æðisleg eða hræðileg? - Pressan spyr lesendur álits í netkönnun

Verður ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna betri með nýjum ráðherrum? Hvað finnst lesendum Pressunnar?
02.sep. 2010 - 12:18

Guðbjartur tók jakkafötin með til öryggis - Fékk staðfest fyrst í morgun að hann yrði ráðherra

Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49

Kristján Möller úr ríkisstjórn: Ekki aðalatriði hver opnar Héðinsfjarðargöng - Hætti stoltur

Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:34

Jóhanna Sigurðardóttir: Frekari breytinga á ríkisstjórn að vænta - Reynt að þétta raðirnar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að frekari breytinga sé að vænta á ríkisstjórninni innan tíðar Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:23

Eiður snýr baki við hinu ljúfa lífi – Ætlar að láta finna fyrir sér á fótboltavellinum

Knattspyrnuhetjan Eiður Guðjohnsen segir að það hafi verið auðveld ákvörðun að kveðja heimsborgaralega lifnaðarhætti í Mónakó og snúa aftur í ensku úrvalsdeildina sem liðsmaður Stoke City.
02.sep. 2010 - 10:10

Guðbjartur Hannesson nýr ráðherra - Þingflokksfundi Samfylkingarinnar lokið

Guðbjartur Hannesson verður nýr ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
02.sep. 2010 - 09:53

Ný ríkisstjórn: Tveir karlar inn - Tvær konur og tveir karlar út - Almenn ánægja á fundinum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
02.sep. 2010 - 09:10

Jóhanna Sigurðardóttir: Erfið ákvörðun liggur fyrir - Ég ræði við nýja ráðherra á fundinum

Þingflokkur Samfylkingarinnar er að hefja síðasta fund sinn fyrir ríkisráðsfund vegna breytinga á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar. Fundurinn er haldinn á hótel Loftleiðum og þar fer einnig fram flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar kl. 10.
02.sep. 2010 - 08:00 Snæfríður Ingadóttir

Nýtt á Íslandi: Fyrsta hjálp fyrir ferðalanga

Glæný íslensk vara frá hómópatanum Svönu Ingvaldsdóttur: remedíublöndur fyrir ferðamenn í vanda. Blöndurnar eru seldar í handhægum umbúðum og henta því vel í ferðalagið. Hómópatinn Svana Ingvaldsdóttir hefur sett á markað sérstakar remedíublöndur sem hjálpa ferðalöngum að takast á við ýmsa kvilla sem fylgja ferðalögum. Blöndurnar taka á vandamálum á borð við flughræðslu, matareitrun, flugnabiti, sólbruna og fótapirringi.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit