06.feb. 2012 - 10:46
Hlynur Jónsson segist ekki hafa skrifað staf á vefinn AMX og segir ógeðfellt af Agli Helgasyni að eigna sér slíkt.
06.feb. 2012 - 10:05
Illa hefði farið ef tillaga AGS hefði náð fram að ganga og íslenskum menningarstofnunum verið lokað. Listamenn og starfsfólk listasafns er slegið yfir fréttunum.
06.feb. 2012 - 09:25
Egill Helgason kann því illa hatursfullar skoðanir manna birtist á vefsíðum í skjóli nafnleysis. Hann segir ógeðfellt þegar menn lýsa skoðunum sínum opinberlega án þess að gera grein fyrir sér.
06.feb. 2012 - 08:52
Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lögðu til við stjórnvöld að Þjóðleikhúsinu og Listasafni Íslands yrði lokað. Þannig gætu stjórnvöld sparað fé í kreppunni.
06.feb. 2012 - 08:00
Fjöldi kvenna sem þarf að gangast undir brjóstapúðafjarlægingu lætur í ljós að um hagsmunaárekstur sé að ræða hjá þeim læknum sem bæði starfa á Landspítala og reki einkastofur.
05.feb. 2012 - 22:30
Séra Gunnar Sigurjónsson sóknarprestur í Digraneskirkju í Kópavogi hefur ákveðið að bjóða sig fram í komandi biskupskjöri.
05.feb. 2012 - 20:00
Jón Gnarr, borgarstjóri, biðlar til erlendra kvikmyndaleikstjóra að taka upp kvikmynd sem gerist í Reykjavík. Sjálfur segist hann til í að taka að sér hlutverk fulla frændans í reykvískri útgáfu af „When Harry met Guðrún“.
05.feb. 2012 - 18:30
Leikurinn um Ofurskálina, Super Bowl, verður háður í kvöld. Um er að ræða einn stærsta sjónvarpviðburð veraldar og því getur að skilja að auglýsingaplássið er rándýrt. 30 sekúndna auglýsing kostar hvorki meira né minna en 3,5 milljónir dollara, eða sem nemur 431 milljón króna.
05.feb. 2012 - 17:30
Skyndidauði er 2,5 sinnum algengari meðal ungmenna sem stunda keppnisíþróttir en meðal annarra ungmenna, samkvæmt erlendum rannsóknum. Í rannsókn sem gerð var meðal 105 íslenskra íþróttamanna kom í ljós að 43 prósent þeirra voru með óeðlileg hjartalínurit.
05.feb. 2012 - 16:20
Hákon krónprins í Noregi og eiginkona hans voru á meðal farþega í þotu sem rýmd var í skyndingu á Kastrup flugvelli í morgun. Krónprinsessan er haldin sjúklegri flughræðslu og fékk hún persónulega áfallahjálp hjá flugstjóra vélarinnar.
05.feb. 2012 - 14:40
„Það hefði ekki endilega verið skynsamlegt fyrir alla að fara í svona viðtal, það hefði getað farið illa en þessi maður átti erindi, jafnvel svona stuttu eftir atburðinn,“ segir séra Hildur Eir Bolladóttir, um viðtalið magnaða við sjómanninn Eirík Inga Jóhannsson.
05.feb. 2012 - 14:00
„Fáir stjórnmálamenn hafa unnið þjóð sinni jafn mikið tjón og Davíð Oddsson hefur gert. Hann er því réttnefndur pólitískur hryðjuverkamaður.“ Þetta segir þingmaður Vinstri grænna.
05.feb. 2012 - 11:55
„Ég ætla að nota vikuna til að skrifa ítarlega kæru á hendur þessm manni sem hefur verið undir eftirliti Umhverfisstofnunar og fleiri aðila vegna illrar meðferðar á dýrum,“ segir Árni Stefán Árnason, lögfræðingur og dýraverndunarsinni, sem sakar umræddan mann fyrir að hafa stolið tíkinni Kollu frá sér. Hún fannst í gærkvöldi.
05.feb. 2012 - 11:52
Jón Ásgeir Jóhannesson segir ekki hægt að kenna sér um tap lífeyrissjóðina. Hann segir Íslendinga þurfa sannleiksnefnd þar sem menn verði leiddi fyrir hana í beinni útsendingu.
05.feb. 2012 - 11:10
Ögmundur Jónasson, innnaríkisráðherra, fullyrðir að tap Lífeyrissjóðs ríkisstarfsmanna hafi allt komið fram eftir að stjórnarformennsku hans lauk. RÚV hafi hins vegar kosið að láta líta svo út að hann hafi tapað rúmlega 100 milljörðum krónum.
05.feb. 2012 - 09:48
Fáheyrt atvik átti sér stað í fangageymslum lögreglunnar í nótt þegar karlmaður sem hafði verið handtekinn neitaði að yfirgefa plássið.
04.feb. 2012 - 19:10
Pistlahöfundinum Heiðu Þórðardóttur var hótað lífláti og lýsti sá sem því hótaði í smáatriðum hvernig hann ætlaði að binda hana, berja úr henni óþekktina, nauðga henni og loks drepa á kvalafullan hátt.
04.feb. 2012 - 15:26
Um 20 fóstureyðingar eru framkvæmdar í hverri viku hér á landi. Færri stúlkur á aldrinum 15-19 ára fara í fóstureyðingu nú en fyrir 10 árum síðan.
04.feb. 2012 - 14:38
Maður með blóðtappa í lunga náði naumlega að bjarga eigin lífi í sjúkrabíl á leið upp á sjúkrahús. Í kjölfarið fékk hann stórgóða hugmynd.
04.feb. 2012 - 14:46
Gunnar Bender
Veiðin er aðeins að komast á skrið aftur í Eyjafjarðará og í sumar veiddust 780 bleikjur sem hefði ekki þótt mikið í ánni fyrir nokkrum árum. En allt er þetta að koma aftur en Eyjafjarðará þótti ein skemmtilegasta silungsveiðiá landsins fyrir nokkrum árum og komust færri að en vildi til veiða í henni. Sjóbirtingurinn er að sækja í sig veðrið líka og veiddust 400 stykki í sumar. Seiðabúskapur árinnar er allur að koma til líka en hann náði miklu lágmarki þegar Djúpadalsvirkjun gaf sig árið 2007.
04.feb. 2012 - 13:10
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, var stjórnarformaður lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna sem tapaði mörg hundruð milljörðum króna í hruninu. Þess vegna vill hann ekki ákæra Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.
04.feb. 2012 - 12:03
Sex manna fjölskylda flyst til Noregs eftir fjögurra ára baráttu vegna galla í húsnæði fjölskyldunnar. Fjöldi húsa í Reykjanesbæ hafa ekki fengið úttekt og eftirlit fyrir neðan allar hellur.
04.feb. 2012 - 11:51
Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóri Morgunblaðsins, lætur Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og Steingrím J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, heyra það í blaðinu í dag. Þau svíki öll loforð og hafi notfært sér drengskap Sjálfstæðismanna til að koma aftan að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.
04.feb. 2012 - 12:52
Geiri á Goldfinger segir Stóru systur ekkert vanta nema krossinn og eldinn. Þær séu hvort eð er að hengja kynsystur sínar íklæddar Ku Klux Klan búningum. Geiri hefur lagt fram kæru vegna áreitis Stóru systur á staðinn Goldfinger.
04.feb. 2012 - 10:25
Stöð Geislavarna ríkisins sem mælir gammageislun í Reykjavík sýndi margfalda geislun síðustu helgi. Mæling á styrk geislunar er hluti viðbúnaðar gegn geislavá á Íslandi ef kjarnorkuslys yrði erlendis.
04.feb. 2012 - 10:38
Lögregla fékk tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir við hús á Laufásveginum eldsnemma í morgun. Ekki reyndist hætta á ferðum.
03.feb. 2012 - 18:24
Landlæknir vill fjarlægja allar PIP brjóstafyllingar. Um fyrirbyggjandi aðgerðir er að ræða og því verða þeir púðar sem ekki leka einnig fjarlægðir.
04.feb. 2012 - 10:00
Börn sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi líður mun betur við skýrslutöku í Barnahúsi en fyrir dómstólum. 69% hafa jákvæða upplifun af samskiptum í Barnahúsi borið saman við 23% hjá dómstólum.
03.feb. 2012 - 20:10
Þær konur sem eru með gallaða brjóstapúða fá ekki nýja púða þegar þeir gömlu verða teknir úr. Talskona PIP-kvenna fékk þær upplýsingar í dag að konurnar þyrftu sennilega að undirgangast tvær aðgerðir ef þær vilja vera með brjóst.
03.feb. 2012 - 13:55
Sjötugur maður sem greitt hefur 30 miljónir í lífeyrissjóð á starfsævinni fær bara rúmar 14 milljónir. Barnabarnið spyr: Hvað varð um milljónirnar hans afa?
03.feb. 2012 - 19:30
Breska lögreglan er komin með ný tæki sem geta greint í meira en 600 metra fjarlægð hvort ökumaður sé í bílbelti eða sé að tala í gemsann undir stýri. Búist er við að sektarfjöldinn margfaldist við þetta.
03.feb. 2012 - 18:45
Þráinn Bertelsson, þingmaður, veltir fyrir sér af hverju enginn hafi séð greinilega tengingu milli siðblindu, hárra tekna og Sjálfstæðisflokksins. Íslendingar séu eina þjóðin á plánetunni þar sem siðblinda mælist yfir 50%.
03.feb. 2012 - 18:00
Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, segir að 2/3 af 500 milljarða króna tapi lífeyrissjóðanna á árunum 2008 - 2010 sé vegna tveggja aðila. Það sé ekki eðlilegt og veki upp grunsemdir.
03.feb. 2012 - 16:00
Tvöfalt fleiri stúlkur á aldrinum 12-14 nota getnaðarvarnarpilluna nú en árið 2004. Algjört neyðarbrauð að gefa svo ungum stúlkum pilluna, segir læknir. Ýmislegt bendi til að fólk byrji yngra að stunda kynlíf en áður.
03.feb. 2012 - 17:00
Steingrímur P. Kárason, fyrrum yfirmaður áhættustýringar Kaupþings, hefur á undanförnum misserum selt eignir sínar hér á landi. Kaupþing telur hann skulda sér 155 milljónir króna.
03.feb. 2012 - 15:20
Aðeins sex manns stöðvuðu til að hlusta á fiðluleikara á lestarstöð í Washington í Bandaríkjunum. Sá sem þar spilaði var heimsþekktur fiðluleikari sem tveimur kvöldum áður hafði spilað á uppseldum tónleikum þar sem hver miði kostaði 12.500 krónur. Uppákoman var hluti af tilraun um mannlegt eðli.
03.feb. 2012 - 14:59
Maður sem stofnaði síðuna Samtök nýnazista á Íslandi fékk stuttan tíma á Facebook, en henni var eytt innan nokkurra klukkustunda. Hann hafði kallað þá sem mótmæla moskubyggingu í Reykjavik hugmyndabræður en þeir eyddu innleggjum hans samstundis.
03.feb. 2012 - 14:29
Lífeyrissjóðirnir, sem landsmenn hafa greitt samviskusamlega í, töpuðu 479 milljörðum króna á árunum 2008 til 2010. Langmesta tapið er til komið vegna viðskipta í hlutabréfum Kaupþings, Exista og Bakkavör.
03.feb. 2012 - 14:06
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, varð afi í gær og í dag. Guðrún Tinna dóttir hans og Karl Pétur tengdasonur hans eignuðust tvíbura sitthvoru megin við miðnætti.
03.feb. 2012 - 13:05
Jens Kjartansson lýtalæknir segist standa við fyrri orð sín og þykir leitt að landlæknir skuli fullyrða að hann hafi sagt ósatt. Honum hafi verið ráðlagt að láta konurnar ekki vita stax af gölluðum brjóstafyllingum.
03.feb. 2012 - 10:35
„Ef þú stækkar, þá kaupirðu þér bara stærri fjandans vagn.“ Þetta var ein af fjölmörgum háðsglósum sem Melissa Morris mátti þola þegar hún fór út í búð. Þótt vissulega hafi orðin sært, þá urðu þau einnig til að bjarga lífi hennar.
03.feb. 2012 - 12:50
Því hærri tekjur sem fólk hefur þeim mun líklegra er það til að vilja að ákæran á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir landsdómi verði felld niður. Þetta kemur fram í nýrri könnun.
03.feb. 2012 - 12:16
Beinbrot vegna hálku fyrstu helgina í janúar kostuðu samfélagið milljónir króna, segir yfirlæknir bráðalækninga Landspítala. Eingöngu þá helgi beinbrotnuðu yfir 20 manns vegna hálku og tapaður launakostnaður fór yfir 13 milljónir króna vegna þess. Er þá ekki reiknað með sjúkrahúskostnaði, endurhæfingu, eignatjóns og bótarétti.
03.feb. 2012 - 11:32
Valgerður Sverrisdóttir segist ekki óttast þótt skipuð verði rannsóknarnefnd um einkavæðingu bankanna á árunum 1998 til 2003. Hún telur sig hafa skýrt frá öllu því sem snýr að hennar þætti í einkavæðingunni.
03.feb. 2012 - 10:00
Landlæknir vísar því á bug að embætti hans hafi haft áhrif á það árið 2010 að Jens Kjartansson lýtalæknir upplýsti ekki konur, sem gengist höfðu undir brjóstastækkun hjá honum, um að þær kynnu að vera með gallaða PIP-púða. Læknirinn hafi þvert á móti hunsað leiðbeiningar landlæknisembættisins.
03.feb. 2012 - 09:45
Erlendir gestir í janúar hafa aldrei verið fleiri og í ár, eða frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð fyrir áratug. Um 26 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í nýliðnum janúarmánuði og er um að ræða 3.900 fleiri brottfarir en á árinu 2011. Erlendum gestum fjölgaði því um 17,5% í janúarmánuði á milli ára.
03.feb. 2012 - 09:10
Hvorki fundust vínbirgðir fyrir milljónir króna né verðmætar eignir í svokölluðum Kaupþingskjallara sem slitastjórn bankans sótti aðgang að í gegnum dómstóla. Aðeins bilaður bíll frá árinu 2004 og nokkur húsgögn.
03.feb. 2012 - 08:40
Bráðabirgðatölur sýna að um þriðjungur íslensku þjóðarinnar horfði á viðtalið magnaða við Eirík Inga Jóhannsson í Kastljósi. Tugir þúsunda reyndu að horfa á viðtalið á vefnum.
03.feb. 2012 - 08:00
UTmessan er bland viðburða sem allir tengjast tölvutækni á einhvern hátt og skiptist hún í sýningu, kynningar og ráðstefnu. Hún fer fram 9. febrúar á Grand hótel.
03.feb. 2012 - 07:41
20 ára karlmaður og kona á sama aldri eru í haldi lögreglu vegna hættulegrar líkamsárásar sem framin var í Kópavogi í nótt.