17. nóv. 2009 - 11:30
Hin einstæða íslenska bankakrísa: Heimildarmyndband AGS um íslenska efnahagshrunið

imf.org
Hvað er hægt að læra af hinni einstæðu bankakrísu á Íslandi? Að þessu spyr Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn í myndbandi um íslenska bankahrunið. Viðmælendurnir eru sammála um að aðstæður hér á landi séu einstæðar en að stutt sé í efnahagsbatann.
Í myndbandinu er rætt við Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sem segir mikið hafa áunnist þótt marg sé enn ógert. Vonast hann eftir að hagkerfið taki við sér á ný á næsta ári. „En við verðum að horfast í augu við að það er erfiður vetur framundan.“
Sömuleiðis er rætt við Mark Flanagan, sendifulltrúa AGS gagnvart Íslandi. Lýsir hann erlendri skuldarstöðu þjóðarbúsins sem var mun hærri en AGS hafði reiknað með í upphafi áætlunarinnar. Hann telur þó að skuldirnar séu viðráðanlegar og ekki of háar í alþjóðlegum samanburði.
Myndbandi má sjá hér að neðan.
15.mar. 2010 - 07:50
Samtök lánþega segja að tillögur félagsmálaráðherra um lækkun bílalána í 110% af söluandvirði bifreiða gagnist fjármögnunarfyrirtækjunum sjálfum. Erfitt sé að átta sig á hverra hagsmuna ráðherrann sé að gæta.
15.mar. 2010 - 07:40
Verið er að leggja lokahönd á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en heimildir herma að hún verði ekki eins kolsvört og látið var að liggja. Sölvi Tryggvason segir í pistli á Pressunni að einn svonefndra hrunmanna spái því að lesendur sem þoli sig ekki verði svekktir.
15.mar. 2010 - 07:00
Áströlsk kona er sökuð um að hafa myrt eiginmann sinn á heimili þeirra í Sydney, Ástralíu. Þetta þætti ekki í frásögur færandi hér hinum megin á hnettinum nema vegna þess að konan er níutíu og tveggja ára og manninn vantaði tvö ár í hundrað.
14.mar. 2010 - 22:08
Skiptastjóri Fons vill að Landsbankinn, Arionbanki og skilanefnd Glitnis leggi fram tryggingarfé vegna mögulegrar kyrrsetningar hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Um er að ræða riftunarkröfu á milljarðsgreiðslu til Jóns Ásgeirs.
14.mar. 2010 - 20:22
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skýtur föstum skotum að skiptastjóra Fons í Pressupistli, gefur í skyn að gerningar hans og starfshættir standist ekki skoðun og að hann hafi ásamt aðstoðarmönnum sínum tryggt sér tugmilljóna króna þóknun með sölu hlutabréfa úr þrotabúinu.
14.mar. 2010 - 20:02
Mohamed Nasheed, forseti Maldivíeyja, fullyrðir að alþjóðlegt samsæri reyni að grafa undan trúverðugleika vísindamanna sem færa rök fyrir hnattrænni hlýnun. Stórfyrirtæki kosti miklu til við spuna sem sýni fram á annað.
14.mar. 2010 - 19:26
Félagsmálaráðherra segist ekki hafa áhyggjur af því að fjármögnunarfyrirtækin fari í þrot vegna tillagna hans um afskriftir bílalána. Mestu skipti að skuldurum sé gert kleift að borga af lánum sínum. Þá óttast hann ekki lögsókn.
14.mar. 2010 - 18:36
Margrét Hallgrímsdóttir sló Íslandsmet í langstökki á landsmóti UMFÍ á Eiðum árið 1952 sem stóð í 20 ár. Hún fékk verðlaunapeninginn afhentan núna fyrir helgi, 58 árum eftir að mótinu lauk.
14.mar. 2010 - 17:45
Ein langstærsta akstursíþróttakeppni sem haldin hefur verið hérlendis, Klausturskeppnin svokallaða, verður endurvakin á Kirkjubæjarklaustri um komandi hvítasunnuhelgi. Keppnin, sem síðast var haldin árið 2007, laðaði að sér hátt í 500 keppendur.
14.mar. 2010 - 16:20
Tveir lögreglumenn í þorpi skammt frá Spa í Belgíu sæta rannsókn vegna gruns um að hafa verið ölvaðir í vinnunni. Myndband, sem vegafarandi tók, er eitt af sönnunargögnunum en því hefur verið dreift á Youtube.
14.mar. 2010 - 15:17
Ólafur Ragnar Grímsson, Össur Skarphéðinsson og Eva Joly hafa hjálpað íslensku þjóðinni af hnjánum upp á fæturna. Þetta segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, og sakar Svía um að hugsa um eigin hag í Icesave-deilunni.
14.mar. 2010 - 14:37
Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson, nýkjörinn blaðamaður ársins, er meðal umsækjenda um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins.
14.mar. 2010 - 12:24
Hæstiréttur hefur hnekkt ákvörðun héraðsdóms um að hafna því að Pólverji verði framseldur frá Íslandi til að taka út fangelsisrefsingu í sínu heimalandi. Héraðsdómur taldi framsalið ósamrýmanlegt meðalhófsreglunni.
14.mar. 2010 - 11:21
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins átelur stjórnvöld fyrir andvaraleysi gagnvart samdrætti í byggingariðnaði. Þekking hverfi úr landi. Formaður Samiðnar vill koma hjólunum af stað með því að veita 80% lán til íbúðakaupa.
14.mar. 2010 - 10:00
Á föstudag barst lögreglunni í sænska bænum Vansbro sending, gamalt veski með þúsund krónum og orðsendingu frá iðrandi þjófi, sem hafði stolið því í samkvæmi fyrir fjörutíu árum. Réttmætur eigandi veskisins hefur þó engin not af því lengur, því að hann er látinn.
14.mar. 2010 - 09:00
Bæði Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, og Camiel Eurlings samgönguráðherra hafa ákveðið að hætta afskiptum af stjórnmálum og bjóða sig ekki fram í kosningum til hollenska þingsins í sumar. Þeir taka fjölskyldu sína fram yfir tímafrek störf í ríkisstjórninni þar sem efnahagsmálin hafa verið afar þjakandi undanfarin þrjú ár.
13.mar. 2010 - 21:00
Efnahyggjumenn segja jafnan að allt sé til sölu, aðeins ef nógu hátt verð er sett á borðið. Miðað við það sem gengið hefur kaupum og sölum á uppboðssíðunni eBay er heilmikið til í því. Pressan hefur tekið saman 10 skrýtnustu hlutina sem seldir hafa verið á þessari vinsælustu uppboðssíðu heims.
13.mar. 2010 - 19:45
Þetta kann að hljóma of ótrúlega til að vera satt...og það er það. Yfirvöld í Nova Scotia stóðu fyrir umfangsmikilli auglýsingaherferð þar sem nýr og byltingakenndur farsími var kynntur til sögunnar. Átti síminn að geta allt, meira að segja lagað kaffi.
13.mar. 2010 - 18:48
Svo gæti farið að Deutsche Bank höfði mál gegn íslenska ríkinu láti ríkisstjórnin verða að afskriftartillögum félagsmálaráðherra um bílalán. Fjármögnunarfyrirtæki segja tillögurnar vanhugsaðar og gætu orðið til þess að þau fari í þrot.
13.mar. 2010 - 17:25
Knattspyrnumaðurinn Jimmy Bullard sem leikur með Hull City í ensku úrvalsdeildinni gengur iðulega undir nafninu Jókerinn. Hann stendur svo sannarlega undir því nafni, enda meinfyndinn drengurinn. Hann hefur nú slegið í gegn í kostulegri sjampóauglýsingu.