27. okt. 2009 - 08:45

bjorn.is
Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir íslensk stjórnvöld vel hafa vitað af því að Sovétmaðurinn Jevgeníj Gergel, sem starfaði við sovéska sendiráðið á Íslandi í sex ár, hafi verið KGB maður. Hans verkefni hér á landi hljóti að hafa verið að reyna að fá Íslendinga til njósnastarfa en óupplýst sé hvort það hafi tekist.
Eins og fram kom á Pressunni í gær bendir Hannes Hólmsteinn Gissurarson í Pressupennapistli á að tengiliður Sovétmanna við sænska blaðamanninn Jan Guillou, sem nú liggur fyrir að njósnaði fyrir Sovétmenn, hafi verið KGB maðurinn Jevgeníj Gergel. Sá hafi starfað við íslenska sendiráðið í sex ár frá 1973 - 1979.
Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, bendir á þessi ummæli Hannesar á heimasíðu sinni og bætir við að hann hafi á þeim tíma verið skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og muni vel eftir Gergel og vitneskju íslenskra stjórnvalda um að hann væri einn af KGB mönnum í sendiráðinu.
„Úr því að Gergel réð Guillou til starfa fyrir KGB í Svíþjóð, hlýtur verkefni hans hér á landi að hafa verið að leggja snörur fyrir menn í sama tilgangi, það er að miðla leynilegum upplýsingum um íslensk stjórnmál til Moskvu.“
Björn segir að Gergel komi til landsins á tíma vinstri stjórnar sem vildi varnarliðið á brott og Landhelgisdeilan hafi verið í fullum gangi.
„Mótmæli gegn Bretum snerust í andúð á NATO og bandaríska varnarliðinu - draumaþróun fyrir undirróðursmann KGB.“
Hann segir að þegar Gergel hafi horfið héðan hafi þorskastríðunum verið lokið með sigri Íslendinga, varnarliðið hafi enn verið á landinu og mynduð hafði verið fyrsta vinstri stjórn sögunnar, sem ekki hafði brottför varnarliðsins á dagskrá sinni.
„Að þessu leyti tókst Kremlverjum ekki að koma ár sinni vel fyrir borð hér á landi. Hins vegar er óupplýst, hvort Gergel tókst að krækja sér í einhvern íslenskan samverkamann á borð við Jan Guillou í Svíþjóð.“
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.