19. okt. 2009 - 19:22
Framsóknarmenn í Reykjavík sakaðir um pólitíska spillingu og sóðaskap
Framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Fonsa sakar framsóknarmenn um pólitíska spillingu og sóðaskap í vinnu við útboð á framkvæmdum í miðbæ Reykjavíkur. Hann segist íhuga að kæra málið.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Verktakafyrirtækið tók þátt í útboði á vegum Reykjavíkurborgar um uppbyggingu á brunareitnum svokalllaða sem er á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Tilboðið frá Fonsa hljóðaði upp á 138 milljónir en byggingafyrirtækið Eykt bauð 143 milljónir og fékk verkið.
Framkvæmdastjóri Fonsa, Sigurfinnur Sigurjónsson, sagði í viðtalinu að augljóst væri að útboðið hefði verið fyrirfram ákveðið og ljóst að Eykt átti að fá verkið, hann vísar meðal annars í að Eykt hafi borgað í kosninasjóð Framsóknarmanna. ,,Ég tel að þetta sé pólitísk spilling og sóðaskapur sem við viljum ekki sjá." sagði Sigurfinnur.
Hallur Magnússon, formaður innkauparáðs Reykjavíkurborgar og fulltrúi framsóknarmanna í ráðinu, sagði við fréttastofu Stöðvar 2 í dag að ekki hefði verið hægt að fallast á tilboð Fonsa þar sem félagið hefur ekki uppfyllt öll skilyrði sem sett voru, meðal annars hafi ekki verið hægt að taka árshlutareikning félagsins gildann.
08.feb. 2010 - 22:25
Eftir nokkra daga hefst keppni á Vetrarólympíuleikunum sem að þessu sinni fara fram í Vancouver í Kanada. Fjölmargir keppendur mæta á svæðið og er fylgst grannt með hverjum og einum. Nú hefur verið sett saman myndband af fallegustu keppendum leikana að mati fagmanna.
08.feb. 2010 - 21:30
Formaður viðskiptanefndar Alþingis, Lilja Mósesdóttir telur það standa viðskiptaráðherra fyrir þrifum að vera ópólitískur. Lilja segir það standa ákvarðanatöku í ríkisstjórninni fyrir þrifum að viðskiptaráðherra hafi ekki pólitískt umboð frá kjósendum fyrir sín stefnumál.
08.feb. 2010 - 21:00
Breska pressan fylgdist vel með hinum 18 ára Michael Carroll þegar hann hélt glaður í bragði að sækja tæplega tveggja milljarða lottovinning sinn. Michael hefur lengi átt í útistöðum við lögin og var hann á þeim tíma á skilorði vegna afbrota. Nú átta árum seinna hefur Michael eytt vinningnum, mest í gleðikonur og dóp.
08.feb. 2010 - 20:00
Tvíburasystrum í Ástralíu varð heldur brugðið þegar þær skráðu sig inn á Facebook síðuna að morgni afmælisdags síns. Þær áttu 20 ára afmæli og áttu von á fjöldanum öllum af afmæliskveðjum frá vinum og kunningjum. Þess í stað voru veggir þeirra fullir af samúðarskilaboðum vegna dauðsfalls bróður þeirra sem þær höfðu ekki heyrt neitt af.
08.feb. 2010 - 19:29
Björgólfi Thor Björgólfssyni hefur nú verið stefnt fyrir dóm af Arion banka. Bankinn krefst greiðslu á sex milljarða króna láni sem veitt var árið 2003 vegna kaupa Björgólfsfeðganna á Landsbankanum. Búnaðarbankinn fór fram á persónulega ábyrgð feðganna en Björgólfi Guðmundssyni verður ekki stefnt vegna gjaldþrot hans.
08.feb. 2010 - 18:47
Stjórnmálafræðingurinn Stefanía Óskarsdóttir segir ríkisstjórnina sýna ýmis þreytumerki og að innan Samfylkingarinnar sé farið að bera meira á óánægjuröddum með samstarfið en áður hefur heyrst þaðan. Hún spáir því að gengið verði til kosninga innan nokkurra mánaða.
08.feb. 2010 - 18:09
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið að fara að tillögu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga að skipa fjárhaldsstjórn til að hafa forystu um endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins Álftaness.
08.feb. 2010 - 17:17
Sigurður Kári Kristjánsson, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins, kannast ekki við að vera vinur Gunnlaugs Erlendssonar. Hann kannast heldur ekki við að hafa séð Gunnlaug bregða fyrir í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins.
08.feb. 2010 - 16:23
Svo virðist sem risakynning Apple á nýjustu afurð sinni, iPad margmiðlunartölvunni, hafi floppað illilega ef marka má nýja neytendakönnun sem gerð var í Bretlandi. Einungis 5 prósent aðspurðra segjast hafa virkilega þörf fyrir að kaupa sér iPad, á meðan ríflega 60 prósent sjá enga þörf fyrir þessa græju.
08.feb. 2010 - 15:30
„Ég ætla ekki að fella neinn dóm en krafan er sú að það sé jafnræði og gagnsæi og ég held að menn séu sammála um að bankarnir hafi ekki verið að vinna eftir því.“ Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sem óskað hefur eftir því að fulltrúar Arionbanka geri grein fyrir ráðstöfun Haga og Samskipa.
08.feb. 2010 - 14:55
Fyrir einungis ári síðan var hugtakið „Teboðið“ einungis hluti af sögu Ameríku og liður í sjálfstæðisbaráttu hennar. Í dag hafa grastrótarsamtök róttækustu hægri manna Ameríku tekið þetta hugtak upp á sína arma og hafa hafið krossferð til að endurheimta hin „gömlu gildi Ameríku“ á ný. Meðal þeirra sem fara fyrir hópnum er Sarah Palin.
08.feb. 2010 - 14:00
Dýrasti auglýsingagluggi heims opnaðist í nokkrar mínútur í nótt, þegar leikið var í Super Bowl, eða um Ofurskálina, í bandaríska fótboltanum. Helstu stórfyrirtæki heims framleiða auglýsingar sérstaklega fyrir þennan atburð og óhætt er að segja að peningunum sé mokað út á þessum mínútum.
08.feb. 2010 - 13:15
Bretar vita varla sitt rjúkandi ráð eftir að upplýsingar hins opinbera um óléttu ungra stúlkna voru birtar. Í ljós kom að frá árinu 2002 hafa 15 tíu ára stúlkur og 39 ellefu ára stúlkur orðið óléttar og ástandið fer bara versnandi. Yfir 300 stúlkur undir 13 ára aldri verða óléttar á hverju einasta ári og tugþúsundir undir 15 ára aldri.
08.feb. 2010 - 12:30
Google hefur hafið þróun á snjallsíma sem jafnframt gegnir hlutverki túlks. Markmiðið er að síminn geti túlkað mismunandi tungumál í rauntíma. Talsmaður fyrirtækisins vonast til að síminn verði kominn á markað innan nokkurra ára. Tungumálasérfræðingar efast þó um að svona tæki virki.
08.feb. 2010 - 12:18
Ákveðið hefur verið að leita til Lee Buchheit um að verða íslenskum stjórnvöldum til ráðgjafar í mögulegum samningaviðræðum við Breta og Hollendinga í Icesave-málinu. Þetta var niðurstaða fundar milli stjórnar og stjórnarandstöðu í morgun.
08.feb. 2010 - 11:27
Tap af rekstri Askar Capital fyrri hluta árs 2008 nam rétt tæpum einum milljarði króna en þrátt fyrir það greiddi bankinn Tryggva Þór Herbertssyni 16 milljónir króna í bónus með mánaðarlegum greiðslum eftir að hann tók við starfi efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar.
08.feb. 2010 - 10:30
Bandarískir og japanskir vísindamenn hafa fundi út að mýs finna lyktarmun á þvagi músa með lungnakrabbamein og heilbrigðra músa. Nú vilja þeir gera tilraun með að finna slíkt hið sama með manneskjur.
08.feb. 2010 - 09:40
Það er ekki óalgengt að menn pirrist á utanaðkomandi hávaða þegar þeir þurfa að einbeita sér en það þarf aðeins að huga að því hver viðbrögðin eru.
08.feb. 2010 - 08:00
Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fékk ríflega 16 milljónir króna frá Askar Capital meðan hann gegndi störfum sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Að auki var hann á bíl frá Askar og þáði fleiri hlunnindi.
08.feb. 2010 - 07:40
Ný finnsk rannsókn leiðir í ljós að konur vilja ekki lengur sjá karlmenn með bringuhár. Undantekning á því eru konur sem komnar eru úr barneign.
08.feb. 2010 - 07:20
Breska lögfræðistofan Mishcon de Reya hefur sent Alþingi 25 milljóna króna reikning fyrir ráðgjöf sína í Icesave-málinu. Alþingi hafði reiknað með 1,5 milljóna króna reikningi. Í reikningnum er gert ráð fyrir 10 milljóna króna greiðslu fyrir milligöngu til fyrrverandi starfsmanns Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem enginn kannast við að hafa óskað eftir.
08.feb. 2010 - 07:00
Forráðamenn danska, norska og portúgalska landsliðsins hafa ekki miklar áhyggjur af því að litla Ísland nái árangri á Em í knattspyrnu en dregið var í riðla í gær. Flestir telja að Ísland lendi í neðsta sæti H-riðils.
07.feb. 2010 - 22:23
Öll þurfum við að hvílast á nóttunni, hvar sem við búum í heiminum. Það er hins vegar nokkuð ljóst að svefninn fáum við í mjög misjöfnum rúmum. Allt frá því að sofa í hefðbundnum rúmum með dúnsæng yfir okkar til þess að hvílast í furðuverkum sem einhverjir myndu kalla listaverk. Í síðari flokkunum má finna risavaxinn hamborgara, geimskip og samloku sem öll eiga það sameiginlegt að vera rúm einhvers.
07.feb. 2010 - 21:49
Úkraína kaus sér nýjan forseta í dag. Valið stóð á milli sitjandi forsætisráðherra, Yuliu V. Tymoshenko og andstæðingi hennar og fyrrum forsætisráðherra, Viktor F. Yanukovich. Eftir að kjörstöðum lokaði var sá síðarnefndi með nokkurra prósentustiga forystu, en endanlegur sigurvegari verður ekki tilkynntur fyrren í fyrramálið. Tymoshenko sagði að of snemmt væri að draga ályktanir og að hún væri ennþá með í kapphlaupinu.
07.feb. 2010 - 20:39
Bandaríkjamenn eru að fara úr límingunum vegna úrslita um bandaríska NFL meistaratitilinn, Ofurskálina eða Super Bowl. Leikurinn fer fram í Miami í Flórídafylki í kvöld, eins og Pressan hefur þegar greint frá. Þau lið sem keppa um Ofurskálina eru Indianapolis Colts og New Orleans Saints.