19. mar. 2010 - 09:30

Hann þóttist vera sárþjáður þegar keppendurnir héldu að þeir refsuðu honum.
Franskur gervi-raunveruleikaþáttur hóf göngu sína í Frakklandi í gær. Þátturinn gengur út á að sjá hversu langt fólk er tilbúið að ganga þegar það telur sig vera að taka þátt í sjónvarpsefni, þáttakendur vissu ekki að það var í raun í hlutverki tilraunadýra. Þátttakendum var sagt að gefa ungum manni raflost sem það vissi að var hættulegt, samt sem áður héldu flestir áfram þrátt fyrir angistaróp mannsins.
Sjónvarpsfólkið segist hafa viljað sjá hvar mörkin hjá venjulegu fólki lægju, og spurði það sig;
erum við tilbúin til að gera allt ef sjónvarpið segir okkur að gera það? Þátttakendur voru fólk sem hélt að það væri að sækja um hlutverk í venjulegum raunveruleikaþætti.
Leikurinn fór þannig fram að ungur maður var tjóðraður niður í stól og í hann tengdar rafmagnsleiðslur. Síðan spurðu þáttakendurnir hann vissra spurninga sem hann varð að svara rétt, ella yrði hann stuðaður af spyrjendanum. Til að byrja með var stuðið vægt en eftir því sem röngu svörunum fjölgaði varð straumurinn stöðugt öflugri. Þegar líða tók á fór maðurinn að grátbiðja um vægð.
69 aðilar tóku þátt og vakti athygli að 70% þeirra hlógu að minnsta kosti einu sinni meða á raflostinu stóð og virtust njóta þess að vera við stjórnvölinn í pyntingunum. Aðeins 19% hættu áður en þeir ýttu á takkann sem átti að hafa kraftmesta stuðið, hinir héldu allir áfram að pynta manninn undir lófaklappi frá áhorfendum úr sal.
Þátturinn er í raun hluti af heimildarmynd sem á að bera heitið ,,How far will television go?" eða ,,Hversu langt mun sjónvarpið ganga?" sem nú er í framleiðslu. Eins er´tt að taka fram að þátturinn er endurgerð á frægri sálfræðirannsókn sem framkvæmd var í kringum 1960. Hún gekk einnig út á að kanna hversu langt einstaklingar eru tilbúnir til að ganga undir fyrirskipunum frá öðrum.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá brot úr þættinum, sem er að vísu á frönsku;
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.