21. ágú. 2009 - 08:20Vignir Már Lýðsson
Fólksflótti gæti kostað tugi milljarða: Hugsanlega ódýrara að afskrifa skuldir

Benedikt Jóhannesson er stærðfræðingur og ritstjóri Vísbendingar.
Fólksflótti vegna efnahagskreppunnar hér á landi gæti kostað um 60 milljarða króna fari svo að fólk flytji úr landi í sama mæli og gerðist í kreppunni í Færeyjum á tíunda áratugnum.
Þá flýðu alls 35% fólks á aldrinum 20 til 35 ára land og miðað við þannig ástand hér myndu skatttekjur ríkissjóðs skerðast um 16% eða alls 60 milljarða að mati Benedikts Jóhannessonar tryggingastærðfræðings.
Segir hann það geti hugsanlega borgað sig að fella niður hluta skulda þeirra sem tóku verðtryggð og gjaldeyristryggð lán. Kostnaðurinn af því yrði mögulega minni en að láta skuldir standa óbreyttar.
Gerir Benedikt ráð fyrir að þá gætu 30% af verðtryggðum lánum afskrifuð og 10% af gjaldeyrismálum. Þær forsendur þýddu að lán sem í upphafi var 10 milljónir króna og hækkað hefði í 20 milljónir myndi þá einungis vera 14 milljónir.
Í samtali við Fréttablaðið sagði Benedikt að enginn geti búist við því að lánin sín hækki um 100% eins og raunin er í mörgum tilvikum. Ekki er endilega um óvarkárni að ræða heldur er fólk að bera byrðarnar af falli krónunnar.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.
02.sep. 2010 - 22:15
Sumir einstaklingar hér á jörð eru þannig af Guði gerðir að þeim tekst í sífellu að koma sér í aðstæður sem ætti varla að vera hægt að koma sér í.
02.sep. 2010 - 21:33
Er smá haustlykt í loftinu? Eða hugsanir um vetur og kulda allsráðandi? Ekki á Íslandi, því á Íslandi eru heitar sundlaugar opnar allt árið, skrifar maður sem safnar íslenskum laugum.
02.sep. 2010 - 21:09
Gunnar Bender
,,Síðasta holl sem fór í Jónskvísl Sýrlæk fékk 14 sjóbirtinga, þar af var 9 gefið líf. Hollið þar á undan fékk 8 sjóbirtinga," sagði Rafn A. Guðjónsson er við inntum hann frétta af veiðinni í Jónskvíslinni.
02.sep. 2010 - 20:15
Breskur eiginmaður liggur undir grun um að hafa kyrkt konu sína þegar hún komst að því að hann hafði verið henni ótrúr með að minnsta kosti tveimur öðrum konum.
02.sep. 2010 - 19:30
Íslenskir strætisvagnabílstjórar trylltust algjörlega þegar úrslit voru kunngjörð í Norðurlandamóti strætisvagnabílstjóra.
02.sep. 2010 - 18:00
Eftir að myndband fór í dreifingu um netheima, með stúlku að þrykkja hvolpum í á, varð allt vitlaust. Ýmsir þrýstihópar létu til sín taka og há peningaverðlaun voru boðin þeim sem gæti nafngreint hana.
02.sep. 2010 - 17:07
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 16:50
Fangar á Litla Hrauni sýna verk sín og selja á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Fangavörður segir margt verða til að gleðja augað á sýningunni því að margir fangar sýni og sanni að í þeim býr hreinræktaður listamaður sem fengið hefur tækifæri til að brjótast út.
02.sep. 2010 - 15:18
Myndband af hundruð vatnakarfa takast hátt á loft þegar hraðbát er siglt framhjá hefur vakið mikla athygli í netheimum. Veiðistangirnar um borð voru gersamlega óþarfar.
02.sep. 2010 - 14:39
Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 13:03
Verður ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna betri með nýjum ráðherrum? Hvað finnst lesendum Pressunnar?
02.sep. 2010 - 12:18
Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49
Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:34
Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:23
Knattspyrnuhetjan Eiður Guðjohnsen segir að það hafi verið auðveld ákvörðun að kveðja heimsborgaralega lifnaðarhætti í Mónakó og snúa aftur í ensku úrvalsdeildina sem liðsmaður Stoke City.
02.sep. 2010 - 10:10
Guðbjartur Hannesson verður nýr ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
02.sep. 2010 - 09:53
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
02.sep. 2010 - 09:10
Þingflokkur Samfylkingarinnar er að hefja síðasta fund sinn fyrir ríkisráðsfund vegna breytinga á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar. Fundurinn er haldinn á hótel Loftleiðum og þar fer einnig fram flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar kl. 10.
02.sep. 2010 - 08:00
Snæfríður Ingadóttir
Hómópatinn Svana Ingvaldsdóttir hefur sett á markað sérstakar remedíublöndur sem hjálpa ferðalöngum að takast á við ýmsa kvilla sem fylgja ferðalögum. Blöndurnar taka á vandamálum á borð við flughræðslu, matareitrun, flugnabiti, sólbruna og fótapirringi.