08. feb. 2010 - 17:23

Er Apple að floppa? Könnun sýnir mjög dræmar undirtekir við nýjustu afurðinni, iPad

Steve Jobs, forstjóri Apple, kynnti iPad við hátíðlega viðhöfn í San Francisco í lok janúar.

Steve Jobs, forstjóri Apple, kynnti iPad við hátíðlega viðhöfn í San Francisco í lok janúar. Getty Images

Svo virðist sem risakynning Apple á nýjustu afurð sinni, iPad margmiðlunartölvunni, hafi floppað illilega ef marka má nýja neytendakönnun sem gerð var í Bretlandi. Einungis 5 prósent aðspurðra segjast hafa virkilega þörf fyrir að kaupa sér iPad, á meðan ríflega 60 prósent sjá enga þörf fyrir þessa græju.

Gerðar voru tvær kannanir, ein fyrir kynninguna sem fram fór í San Francisco á dögunum og ein eftir kynninguna. Í fyrri könnuninni sögðust 49 prósent ekki þurfa á iPad að halda á meðan 30 prósent sögðust vilja fá frekari upplýsingar áður en þeir gerðu upp hug sinn. Í síðari könnuninni hafði þeim sem töldu sig geta lifað á iPad fjölgað í 61 prósent og 15 prósent sögðust þurfa meiri upplýsingar.

Verri fréttir fyrir Apple eru þær að í fyrri könnuninni sögðust 2 prósent örugglega munu kaupa sér iPad. Þeim hafði hins vegar aðeins fjölgað upp í 5 prósent í síðari könnuninni. Fjöldi óákveðinna var nánast sá sami milli kannanna, 18 og 19 prósent.

Svo virðist sem iPad með 3G tengimöguleikum verði ekki til þess að sannfæra neytendur. Alla vega sögðust 59 prósent ekki vilja borga meira fyrir slíka viðbót á meðan 12 prósent sögðust gera það. „Hvort þetta tæki slái í gegn verður að koma í ljós, en miðað við þessa könnun verður það að teljast ólíklegt,“ segir í könnun Retrevo.

Sérfræðingar hjá greiningarfyrirtækinu Needham & Co. gera ráð fyrir að Apple selji um 2 milljónir iPad tölva á árinu og 6 milljónir fyrir árslok 2011.




15.mar. 2010 - 19:12

Breska fjármálaeftirlitið kærir hjón fyrir innherjasvik: Eftirlitið aukið til mikilla muna

Breska fjármálaeftirlitið hefur eflt starfsemi sína til muna undanfarna mánuði. Breska fjármálaeftirlitið hefur ákært hjón fyrir innherjasvik sem áttu sér stað á árunum 2000 - 2009. Eiginmaðurinn starfaði í breskum fjárfestingarbönkum á þessum árum og er grunaður um að hafa nýtt sér upplýsingar sem hann fékk vegna starfs síns til að hagnast á hlutabréfakaupum. Maðurinn vann í nokkur ár hjá Dresdner Capital en síðasta árið hjá fjárfestingarbankanum Shore Capital.
15.mar. 2010 - 18:18

Í farbann fyrir að valda barni alvarlegum áverkum: Fóstur- faðirinn eftirlýstur í Póllandi

Erlendir foreldrar lítils barns sem talið er að hafi skaðast af því að vera hrist harkalega, hafa verið úrskurðaðir í farbann. Fósturfaðir barnsins er eftirlýstur í Póllandi fyrir ofbeldisglæpi og og fjársvik.
15.mar. 2010 - 18:15

Stefnir í skort á krabbameins- læknum: „Stefnir víða í óefni,“ segir formaður Læknafélagsins

Tveir krabbameinssérfræðingar hafa sagt upp á LSH. Tveir krabbameinslæknar hafa sagt upp störfum á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og verða þeir báðir hættir störfum í september. Hafa þeir fengið vinnu í útlöndum. Formaður Læknafélags Íslands segir sérfræðilækna horfa í æ meiri mæli til útlanda og að víða stefni í óefni innan heilbrigðiskerfisins.
15.mar. 2010 - 17:33

Hollendingar bíða eftir Íslendingum í Icesave: Við erum tilbúnir - hvar eru tillögurnar?

Jan Kees de Jager og Steingrímur J. eru sammála um að boltinn sé hjá Íslandi Ekki stendur á Hollendingum og Bretum að hefja viðræður að nýju við Íslendinga um lausn á Icesave-málinu. Hins vegar sé enn beðið eftir tillögum frá Íslandi.
15.mar. 2010 - 16:44

William Fall fyrrverandi forstjóri Straums: Ráðinn í lykilstöðu hjá Royal Bank of Scotland

William Fall, fv. forstjóri Straums. William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, hefur verið ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland. Er Fall ætlað að æðsti yfirmaður alþjóðasviðs samsteypunnar (e. Global Head of Financial Institutions Group).
15.mar. 2010 - 16:21

Bensínhækkanir: Engin mótmælir nú en allt varð vitlaust þegar lítrinn fór yfir 150 kr

Dropinn þykir dýr og þykir mörgum nóg um. Það hefur varla farið framhjá neinum manni að bensínlítrinn er í dag kominn yfir 200 krónur á flestum bensínstöðvum landsins. Öfugt við það sem gerðist árið 2000, þegar lítrinn fór fyrst yfir 100 krónur, hefur lítið örlað á kröfum um lækkaðar álögur. Meðal þeirra sem létu hæst heyra í sér á þeim tíma var núverandi forsætisráðherra.
15.mar. 2010 - 15:09

Wikileaks: Birtir kröfuhafaskrá Kaupþings í heild sinni - boðar frekari birtingu trúnaðargagna

Upplýsingaveitan Wikileaks birtir í dag 512 blaðsíðna kröfuhafalista Kaupþings og boðar um leið að frekari birting trúnaðargagna sé væntanleg.
15.mar. 2010 - 14:15

Vandræðaleg mistök í bæklingi: Bók um kynlífsleikföng í auglýsingu um barnavörur

Bókin Sex Toys á gólfinu í auglýsingu um Hannah Montana sængurver Unnið er að því að innkalla tugþúsundir auglýsingabæklinga frá norska fyrirtækinu Princess eftir að það uppgötvaðist að í auglýsingu fyrir barnasængurföt að þar liggur bók um kynlífsleikföng.
15.mar. 2010 - 12:55

Stendur hrunskýrslan ekki undir væntingum? Stjórnsýsluúttekt en ekki neinn Stóridómur

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið verður „stjórnsýsluúttekt samin af sérfræðingum í stjórnsýslu“, segir heimildarmaður Pressunnar. Í nefndina vanti fólk með bakgrunn úr viðskiptum. Skýrslan er að koma úr prentun og á meðan er rannsóknarnefndin þögul sem gröfin.
15.mar. 2010 - 11:47

Stjórnmálafræðingur: Heitir það ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsað af fólki í skjóli nætur?

Eiríkur Bergmann stjórmálafræðingur, segir að hann sjái ekki betur en að skuldir almennings hafi átt að lækka við niðurfærslu lána úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Féð sé hins vegar notað til að fella niður skuldir óreiðumanna. Hann spyr hvort það heiti ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsa af fólki nánast í skjóli nætur.
15.mar. 2010 - 10:59

Hálfsextug nunna fékk óvæntan arf: Eitt hóruhús í Austurríki frá sirkusstarfandi mömmu

Hálfsextug nunna í Skotlandi fékk óvæntan arf nýverið; eitt stykki hóruhús í Austurríki. Kom í ljós að móðir nunnunnar hafði um árabil rekið það með góðum hagnaði.

15.mar. 2010 - 10:08

Félagsmálaráðherra: Græði skuldari meira á dómi um bílalán en lögum, þá gildir dómurinn

Félagsmálaráðherra segir stjórnvöld gæta hagsmuna skuldara í landinu Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra vísar á bug ásökunum Samtaka lánþega um að hann gangi erinda fjármögnunarfyrirtækja. Stjórnvöld láti hvorki lánþega njóta lakari kjara en þeir geti fengið með hjálp dómstóla né ívilni eignaleigum á nokkurn hátt.
15.mar. 2010 - 08:53

Sýngin Netið 2010: Vísir að árshátíð netfyrirtækja að ári sem verður enn stærri í sniðum

Liðsmenn Allra átta fengu verðlaun fyrir glæsilegasta básinn á sýningunni. Stórsýningin Netið 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind varð upptakturinn að árshátíð fyrirtækja á íslenskum netmarkaði sem haldin verður að ári liðnu. Þúsundir gesta lögðu leið sína á sýninguna um helgina.
15.mar. 2010 - 08:34

Maður hótaði fjöldamorði í Stokkhólmi: Handtekinn eftir að slóð hans var rakin á netinu

Lögreglumenn í Svíþjóð gættu öryggis við Tækniháskólann í gær og í nótt Lögreglan í Gautaborg handtók í nótt mann sem hafði hótað því að fremja fjöldamorð í Konunglega Tækniháskólanum í Stokkhólmi í dag. Lögreglan rakti slóð hans á netinu.
15.mar. 2010 - 07:50

Samtök lánþega: Lánardrottnar hagnast á hugmyndum ráðherra um niðurfærslu bílalána

Samtök lánþega segja að tillögur félagsmálaráðherra um lækkun bílalána í 110% af söluandvirði bifreiða gagnist fjármögnunarfyrirtækjunum sjálfum. Erfitt sé að átta sig á hverra hagsmuna ráðherrann sé að gæta.
15.mar. 2010 - 07:40

Hrunskýrsla Alþingis ekki svo svört: Þeir sem þola mig ekki eiga eftir að verða svekktir

Verið er að leggja lokahönd á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en heimildir herma að hún verði ekki eins kolsvört og látið var að liggja. Sölvi Tryggvason segir í pistli á Pressunni að einn svonefndra hrunmanna spái því að lesendur sem þoli sig ekki verði svekktir.
15.mar. 2010 - 07:00

Sláttumaðurinn slyngi snuðaður: 92 ára kona grunuð um morð á 98 ára eiginmanni sínum

Frá Sydney í Ástralíu Áströlsk kona er sökuð um að hafa myrt eiginmann sinn á heimili þeirra í Sydney, Ástralíu. Þetta þætti ekki í frásögur færandi hér hinum megin á hnettinum nema vegna þess að konan er níutíu og tveggja ára og manninn vantaði tvö ár í hundrað.
14.mar. 2010 - 22:08

Þrotabú Fons: Bankarnir leggi fram tryggingu til endurgreiðslu á milljarði króna til Jóns Ásgeirs

Skiptastjóri Fons vill rifta milljarðsgreiðslu frá félaginu til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar Skiptastjóri Fons vill að Landsbankinn, Arionbanki og skilanefnd Glitnis leggi fram tryggingarfé vegna mögulegrar kyrrsetningar hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Um er að ræða riftunarkröfu á milljarðsgreiðslu til Jóns Ásgeirs.
14.mar. 2010 - 20:22

Sigurður G.: Réttast að skoða lögmæti starfshátta og gerninga skiptastjóra Fons

Sigurður G. Guðjónsson skýtur föstum skotum að skiptastjóra í þrotabúi Fons Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skýtur föstum skotum að skiptastjóra Fons í Pressupistli, gefur í skyn að gerningar hans og starfshættir standist ekki skoðun og að hann hafi ásamt aðstoðarmönnum sínum tryggt sér tugmilljóna króna þóknun með sölu hlutabréfa úr þrotabúinu.
14.mar. 2010 - 20:02

Alþjóðlegt hagsmunasamsæri gegn þeim sem benda á að hlýnun jarðar sé staðreynd

„Ég veit það eru stór orð að tala um samsæri en ég endurtek þau þar til menn opna augun.“ Mohamed Nasheed, forseti Maldivíeyja, fullyrðir að alþjóðlegt samsæri reyni að grafa undan trúverðugleika vísindamanna sem færa rök fyrir hnattrænni hlýnun. Stórfyrirtæki kosti miklu til við spuna sem sýni fram á annað.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit