26. feb. 2010 - 18:37
Dætur og tengdasynir Gunnars I. Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi, hafa kært Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins, til lögreglu fyrir brot á persónuverndarlögum og almennum hegningarlögum í tengslum við prófkjör Framsóknarflokksins.
Ómar upplýsti á vefsíðu sinni að dætur og tengdasynir Gunnars, sem laut í lægra haldi fyrir Ármanni Kr. Ólafssyni í prófkjörsbaráttu um oddvitasæti sjálfstæðismanna um liðna helgi, hefðu ásamt Halldóri Jónssyni, verkfræðingi og kunnum stuðningsmanni Gunnars, skráð sig í Framsóknarflokkinn í aðdraganda prófkjörs framsóknarmanna.
Ómar heldur því fram að þau styðji mótframbjóða hans, Einar Kr. Jónsson, í prófkjörinu:
Það var greinilega mikið um nýskráningar hjá okkur. Það vakti töluverða athygli í hópnum að ein dóttir Gunnars Inga Birgissonar var gengin í Framsóknarflokkinn. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að það er ekki bara önnur dóttirin sem er komin heldur báðar og tengdasynirnir líka.
Síðan er það trompið, Halldór Jónsson verkfræðingur er einnig gengin til liðs við Framsókn. Ekki er ég að fara grenja yfir því, heldur fagna ég þessum nýju félögum.
Kæran lýtur að óheimilli notkun persónuupplýsinga, en brot á persónuverndarlögum getur varðað allt að þriggja ára fangelsi, og brot á ákvæði hegningarlaga sem segir að hver sá, sem skýrir opinberlega frá einkamálefnum annars manns, án þess að nægar ástæður séu fyrir hendi sem réttlæti verknaðinn, skuli sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári.
„Umrædd notkun á félagaskrám stjórnmálaflokka uppfyllir ekki skilyrði laganna,“ segir Jóhann Haukur Hafstein héraðsdómslögmaður, sem annast málið fyrir kærendur. „Stjórnmálaflokkar og frambjóðendur þeirra geta notað skrárnar í sínu innra starfi en ekki upplýst opinberlega hverjir eru á þeim.“
Prófkjör Framsóknarflokksins í Kópavogi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar fer fram á morgun.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.