11. mar. 2010 - 13:30

Ein auglýsingin af átta sem birtist í Viðskiptablaðinu í dag. Viðskiptablaðið
„Ég myndi aldrei standa svona að þessu,“ segir Sigurður Sveinn Sverrisson, sem fer með upplýsinga- og kynningarmál hjá LÍU, er hann var spurður út í viðamikla auglýsingaherferð gegn fyrningarleiðinni í Viðskiptablaðinu. Hann segir blaðið sjálft eiga frumkvæði að herferðinni.
Í Viðskiptablaðinu í dag eru birtar 8 heilsíðuauglýsingar þar sem skorað er á stjórnvöld að falla frá fyrningarleið í sjávarútvegi. Auglýsingarnar eru ríkulega myndskreyttar, svo sem með strönduðu skipi og krossi sem stendur í fjöru, og leggja fjölmörg fyrirtæki tengd sjávarútvegi nafn sitt við þær. Texti auglýsinganna er sömuleiðis hápólitískur eins og eftirfarandi dæmi sýnir:
Verði fyrningarleiðin lögfest yrði vegið að undirstöðum fiskveiða og fiskvinnslu, atvinnuöryggi á landinu öllu ógnað og endurreisn íslensks efnahags stefnt í algera tvísýnu. Við megum ekki við því að sjávarútvegurinn hrynji líka. Af mannavöldum.
Pressan bar auglýsingarnar undir Sigurð Svein þar sem hann aftók með öllu aðkomu LÍÚ að þeim.
Þessar auglýsingar eru okkur algjörlega óviðkomandi. Mér finnst þær hins vegar vel unnar og skilaboðin í þeim eru mjög sterk og komast vel til skila. En ég myndi aldrei birta 8 auglýsingar í sama blaðinu. Ég myndi aldrei standa svona að þessu. Þetta er eflaust ákveðin fjármögnunarleið hjá blaðinu.
Sigurður Sveinn segir að fyrir nokkru hafi Viðskiptablaðið haft samband við sig og óskað eftir því að leggja nafn LÍÚ undir eina slíka auglýsingu. Hann hafi ekki viljað gera slíkt án þess að fá að sjá útlit auglýsingar áður og bjóst hann við að þetta yrði bara gert í þetta eina skipti, en þá birtust 6 auglýsingar í Viðskiptablaðinu. Sagðist hann hafa hrokkið nokkuð í kút þegar hann sá 8 auglýsingar í blaðinu í dag.
Aðspurður segir Sigurður að öll gerð auglýsinganna, textagerð, myndskreyting og umbrot, hafi verið á vegum Viðskiptablaðsins.
Þetta er algjörlega heimasmíðað verkefni. Ég held að þetta sé venjan hjá fjölmiðlunum að þeir taki eitt svona mál og safni auglýsingum í kringum þau.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.