08. feb. 2010 - 11:27

Vignir Már Lýðsson
Tap af rekstri Askar Capital fyrri hluta árs 2008 nam rétt tæpum einum milljarði króna en þrátt fyrir það greiddi bankinn Tryggva Þór Herbertssyni 16 milljónir króna í bónus með mánaðarlegum greiðslum eftir að hann tók við starfi efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar.
Eins og Pressan skýrði frá í morgun hélt Tryggvi áfram að fá mánaðarlegar greiðslur frá Askar Capital eftir að hann fór í leyfi frá bankanum og hóf störf sem efnahagsráðgjafi í forsætisráðuneytinu 1. ágúst 2008. Þá var hann áfram á bifreið í eigu Aska Capital og þáði fleiri hlunnindi frá fyrirtækinu.
Samkvæmt öruggum heimildum Pressunnar fékk Tryggvi 16,25 milljónir króna frá Askar Capital eftir að hann hóf störf í forsætisráðuneytinu og voru greiðslurnar skilgreindar sem bónus fyrir fyrri helming ársins 2008. Greiðslurnar fékk Tryggvi með sex mánaðarlegum greiðslum, þeirri fyrstu 1. september 2008. Rekstur Askar Capital var hins vegar mjög erfiður á árinu 2008 og nam tap af starfseminni samkvæmt tilkynningu til Kauphallar 12,4 milljörðum eftir skatta.
Sex mánaða uppgjör Aska Capital, eða fyrir það tímabil sem Tryggvi fékk bónusinn, sýnir að tap þess tíma var rétt tæpur milljarður króna. Tryggvi Þór, sem staddur er í New York, segir í samtali við DV eftir frétt Pressunnar:
„Reksturinn fyrri part ársins 2008 var ekki erfiður. Ekki þannig. Tapið kemur ekkert í ljós fyrr en í hruninu.“
Þessi orð stangast á við árshlutareikning Aska Capital sem sýnir svart á hvítu að tap var á rekstrinum fyrri helming ársins og að auki var um 400 milljóna króna tap á rekstri bankans árið áður. Bankinn var því alltaf rekinn með tapi meðan Tryggvi Þór stýrði honum.
Tryggvi Þór þáði ennfremur milli 7 og 800.000 krónur í laun frá forsætisráðuneytinu meðan hann þáði féð frá Askar Capital og fékk áfram hlunnindi frá bankanum.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.