15. des. 2009 - 21:11

,,Í dag er allt markaðsfólk netmarkaðsfólk" Getty
Nú nýlega kom út áhugaverð íslensk bók sem ætluð er til að auka þekkingu og kunnáttu fólks á netinu og þeim fjölmörgu möguleikum sem það hefur upp á að bjóða. Bókin heitir
Markaðssetning á netinu og er ætluð markaðsfólki sem vill auka þekkingu sína á netinu og færni í að nota það sér til hagsbóta.
Bókin er því verðmæt viðbót í þekkingarbrunn þeirra sem vilja nýta sér netið til markaðsstarfa á fjölbreyttari hátt en áður. Höfundar bókarinnar eru tveir, þeir Guðmundur Arnar Guðmundsson og Kristján Már Hauksson. Þeir hafa báðir víðtæka reynslu og menntun á sviði net- og markaðsmála.
Í samtali við Pressuna sagði Guðmundur Arnar þá félagana hafa fundið áþreifanlega fyrir þörf á að taka saman helstu þekktu upplýsingar um netnotkun fólks og hvernig markaðssetning á netinu geti skilað sem bestum árangri, segir hann að þrátt fyrir að allir séu að hugsa um netið og hvernig hægt sé að nýta sér það þá er þekkingin á bakvið ekki ýkja mikil.
,,Okkur hefur fundist að fólk sem talar um netið lendi oft á villigötum og við vonumst til þess að með útgáfu bókarinnar aukist þekking á því hvernig neytendur nota netið og hvernig hámarks árangri er náð með leitarvélunum, vefborðum, tölvupóstum og samfélagsmiðlunum sem dæmi.“
Höfundarnir réðust sjálfir í talsverðar rannsóknir á innlendri netnotkun og eru þær birtar í bókinni og greint frá þeim. Í bókinni er einnig að finna marga áhugaverða punkta og er smá sýnishorn af þeim hér fyrir neðan:
- um 72% af íslendingum undir 54 ára byrja að leita eftir upplýsingum á leitarvélunum fyrir kaup á vöru og þjónustu
- 90% af þeim sem eru undir 40 ára eru á samfélagsmiðlunum, 65% þeirra sem eru yfir 40 ára
- Skv. könnunum Nielsen/Netrating (Global Online Consumer Survey) treysta 90% af net notendum ráðum frá fólki á netinu sem það þekkir, en 70% ráðum frá fólki sem það þekkir ekki
Bókin fæst í Bóksölu stúdenta.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.