20. sep. 2009 - 16:10

Segir forseta Íslands rúinn trausti og hann eigi að sjá sóma sinn í því að segja af sér embætti

kaupthing.is

Forseti Íslands á að sjá sóma sinn í því að segja af sér embætti, segir Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, í pistli sínum í sunnudagsblaðinu. Hún segir að forsetinn eigi að sætta sig við orðinn hlut; hann sé með öllu rúinn trausti þjóðarinnar.

Agnes skrifar:

Einmitt núna er rétti tíminn fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að sætta sig við orðinn hlut; hann er með öllu rúinn trausti þjóðarinnar; hann var nefndur sem sameiningartákn þjóðarinnar af einu prósenti aðspurðra í skoðanakönnun MMR um hver væri sameiningartákn þjóðarinnar; 72% gátu ekki nefnt neinn einstakling og þau Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, og Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri og forsætisráðherra, voru nefnd 4,5 sinnum og 3,8 sinnum oftar en Ólafur Ragnar. Forsetinn á að sjá sóma sinn í því að segja af sér embætti.

Agnes fer mikinn í pistli sínum og rifjar upp kafla úr bók Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings, Saga af forseta, sem kom út fyrir jólin síðustu:

Sagnfræðingurinn, sem ritaði lofrulluna um forsetann upp á 600 síður, fjármagnaður af gömlu útrásarbönkunum, velur Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings, einn helsta samstarfsmann forsetans í útrásarruglinu, til þess að gefa honum umsagnir, sem í ljósi undanfarins árs hljóta í besta falli að teljast hlægilegar. Sigurður skefur ekki utan af lýsingum sínum, hampar Ólafi Ragnari eins og dýrlingi og rakkar Davíð Oddsson niður að sama skapi, enda hefur hann aldrei fyrirgefið forsætisráðherranum fyrrverandi að hann skyldi fara með sparifé sitt úr hans fjárhirslum, þegar hann frétti af óheyrilegum launa- og kaupaukasamningum Kaupþings við helstu stjórnendur bankans.



08.feb. 2010 - 22:25

Ólympíuleikarnir eru ekki bara íþróttir: Hver er fallegasti keppandinn? MYNDBAND

Kimiko Sakreski keppir á snjóbretti fyrir hönd Kanada á leikunum. Eftir nokkra daga hefst keppni á Vetrarólympíuleikunum sem að þessu sinni fara fram í Vancouver í Kanada. Fjölmargir keppendur mæta á svæðið og er fylgst grannt með hverjum og einum. Nú hefur verið sett saman myndband af fallegustu keppendum leikana að mati fagmanna.
08.feb. 2010 - 21:30

Formaður Viðskiptanefndar: Vandamál að vera með ópólitískan viðskiptaráðherra

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og formaður viðskiptanefndar. Formaður viðskiptanefndar Alþingis, Lilja Mósesdóttir telur það standa viðskiptaráðherra fyrir þrifum að vera ópólitískur. Lilja segir það standa ákvarðanatöku í ríkisstjórninni fyrir þrifum að viðskiptaráðherra hafi ekki pólitískt umboð frá kjósendum fyrir sín stefnumál.
08.feb. 2010 - 21:00

Þurfti ekki nema 8 ár til að eyða tveggja milljarða lottovinningi: Auðvitað í gleðikonur og dóp

Það sér töluvert á Michael eftir átta ára óreglu og óhófslíf. Breska pressan fylgdist vel með hinum 18 ára Michael Carroll þegar hann hélt glaður í bragði að sækja tæplega tveggja milljarða lottovinning sinn. Michael hefur lengi átt í útistöðum við lögin og var hann á þeim tíma á skilorði vegna afbrota. Nú átta árum seinna hefur Michael eytt vinningnum, mest í gleðikonur og dóp.
08.feb. 2010 - 20:00

Facebook firringin: Foreldrar fréttu á Facebook að 17 ára sonur hefði látist í bílslysi

Facebook samskiptasíðan. Tvíburasystrum í Ástralíu varð heldur brugðið þegar þær skráðu sig inn á Facebook síðuna að morgni afmælisdags síns. Þær áttu 20 ára afmæli og áttu von á fjöldanum öllum af afmæliskveðjum frá vinum og kunningjum. Þess í stað voru veggir þeirra fullir af samúðarskilaboðum vegna dauðsfalls bróður þeirra sem þær höfðu ekki heyrt neitt af.
08.feb. 2010 - 19:29

Björgólfi Thor stefnt fyrir dóm - Arion banki krefst greiðslu vegna Landsbanka kaupanna

Björgólfsfeðgar. Björgólfi Guðmundssyni hefur ekki verið stefnt vegna Landsbanka skuldarinnar. Björgólfi Thor Björgólfssyni hefur nú verið stefnt fyrir dóm af Arion banka. Bankinn krefst greiðslu á sex milljarða króna láni sem veitt var árið 2003 vegna kaupa Björgólfsfeðganna á Landsbankanum. Búnaðarbankinn fór fram á persónulega ábyrgð feðganna en Björgólfi Guðmundssyni verður ekki stefnt vegna gjaldþrot hans.
08.feb. 2010 - 18:47

Stjórnmálafræðingur spáir ríkisstjórnarslitum á næstu mánuðunum

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J ræðast við. Stjórnmálafræðingurinn Stefanía Óskarsdóttir segir ríkisstjórnina sýna ýmis þreytumerki og að innan Samfylkingarinnar sé farið að bera meira á óánægjuröddum með samstarfið en áður hefur heyrst þaðan. Hún spáir því að gengið verði til kosninga innan nokkurra mánaða.
08.feb. 2010 - 18:09

Fjárhaldsstjórn skipuð yfir Álftanesi: Má enga greiðslu inna af hendi án hennar samþykkis

Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra. Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið að fara að tillögu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga að skipa fjárhaldsstjórn til að hafa forystu um endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins Álftaness.
08.feb. 2010 - 17:17

Sigurður Kári: Gunnlaugur er ekki vinur minn og hef aldrei séð hann í starfi flokksins

Sigurður Kári, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar. Sigurður Kári Kristjánsson, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins, kannast ekki við að vera vinur Gunnlaugs Erlendssonar. Hann kannast heldur ekki við að hafa séð Gunnlaug bregða fyrir í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins.
08.feb. 2010 - 16:23

Er Apple að floppa? Könnun sýnir mjög dræmar undirtekir við nýjustu afurðinni, iPad

Steve Jobs, forstjóri Apple, kynnti iPad við hátíðlega viðhöfn í San Francisco í lok janúar. Svo virðist sem risakynning Apple á nýjustu afurð sinni, iPad margmiðlunartölvunni, hafi floppað illilega ef marka má nýja neytendakönnun sem gerð var í Bretlandi. Einungis 5 prósent aðspurðra segjast hafa virkilega þörf fyrir að kaupa sér iPad, á meðan ríflega 60 prósent sjá enga þörf fyrir þessa græju.
08.feb. 2010 - 15:30

Þingmaður vill skýringar á ráð- stöfun Haga og Samskipa: Arion banki svari hvaða reglum er fylgt

Guðlaugur Þór vill fá skýringar á ráðstöfun Haga og Samskipa. „Ég ætla ekki að fella neinn dóm en krafan er sú að það sé jafnræði og gagnsæi og ég held að menn séu sammála um að bankarnir hafi ekki verið að vinna eftir því.“ Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sem óskað hefur eftir því að fulltrúar Arionbanka geri grein fyrir ráðstöfun Haga og Samskipa.
08.feb. 2010 - 14:55

Kristilega hægrið rís upp: Ætlar að endurheimta „gömlu Ameríku“ undir stjórn Palin

Sarah Palin hefur farið mikinn undanfarið. Hún er nú stjórnmálaskýrandi hjá Fox News auk þess sem hún gaf út bók á dögunum, Going Rouge, sem selst hefur í bílförmum. Fyrir einungis ári síðan var hugtakið „Teboðið“ einungis hluti af sögu Ameríku og liður í sjálfstæðisbaráttu hennar. Í dag hafa grastrótarsamtök róttækustu hægri manna Ameríku tekið þetta hugtak upp á sína arma og hafa hafið krossferð til að endurheimta hin „gömlu gildi Ameríku“ á ný. Meðal þeirra sem fara fyrir hópnum er Sarah Palin.
08.feb. 2010 - 14:00

Dýrasti auglýsingatími heims: Þessar báru af í hálfleik á Super Bowl - MYNDBÖND

Dýrasti auglýsingagluggi heims opnaðist í nokkrar mínútur í nótt, þegar leikið var í Super Bowl, eða um Ofurskálina, í bandaríska fótboltanum. Helstu stórfyrirtæki heims framleiða auglýsingar sérstaklega fyrir þennan atburð og óhætt er að segja að peningunum sé mokað út á þessum mínútum.
08.feb. 2010 - 13:15

Bretar í vandræðum: Tugir stúlkna undir 11 ára aldri óléttar, tugþúsundir undir 15 ára aldri

Bretar vita varla sitt rjúkandi ráð eftir að upplýsingar hins opinbera um óléttu ungra stúlkna voru birtar. Í ljós kom að frá árinu 2002 hafa 15 tíu ára stúlkur og 39 ellefu ára stúlkur orðið óléttar og ástandið fer bara versnandi. Yfir 300 stúlkur undir 13 ára aldri verða óléttar á hverju einasta ári og tugþúsundir undir 15 ára aldri.
08.feb. 2010 - 12:30

Google færir þýðingarvél sína á næsta stig: Þróar síma sem túlkar tungumál í rauntíma

Með nýja símanum frá Google er jafnvel hægt að skilja Japana sem talar ekki stakt orð í ensku. Google hefur hafið þróun á snjallsíma sem jafnframt gegnir hlutverki túlks. Markmiðið er að síminn geti túlkað mismunandi tungumál í rauntíma. Talsmaður fyrirtækisins vonast til að síminn verði kominn á markað innan nokkurra ára. Tungumálasérfræðingar efast þó um að svona tæki virki.
08.feb. 2010 - 12:18

Lee Buchheit verður íslenskum stjórnvöldum til ráðgjafar í hugsanlegum Icesave-viðræðum

Stjórn og stjórnarandstaða hafa fundað stíft undanfarnar vikur til að ná samstöðu um næstu skref í Icesave-málinu. Ákveðið hefur verið að leita til Lee Buchheit um að verða íslenskum stjórnvöldum til ráðgjafar í mögulegum samningaviðræðum við Breta og Hollendinga í Icesave-málinu. Þetta var niðurstaða fundar milli stjórnar og stjórnarandstöðu í morgun.
08.feb. 2010 - 11:27

Askar tapaði milljarði en greiddi Tryggva Þór milljóna bónus meðan hann var efnahagsráðgjafi

Tap af rekstri Askar Capital fyrri hluta árs 2008 nam rétt tæpum einum milljarði króna en þrátt fyrir það greiddi bankinn Tryggva Þór Herbertssyni 16 milljónir króna í bónus með mánaðarlegum greiðslum eftir að hann tók við starfi efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar.
08.feb. 2010 - 10:30

Er hægt að renna á lyktina? Mýs finna mun á þvagi þeirra sem eru með krabbamein og heilbrigðra

Bandarískir og japanskir vísindamenn hafa fundi út að mýs finna lyktarmun á þvagi músa með lungnakrabbamein og heilbrigðra músa. Nú vilja þeir gera tilraun með að finna slíkt hið sama með manneskjur.
08.feb. 2010 - 09:40

Mánudagur til mæðu...en þú ert þó vonandi ekki að gera ÞETTA í vinnunni - MYNDBAND

Það er ekki óalgengt að menn pirrist á utanaðkomandi hávaða þegar þeir þurfa að einbeita sér en það þarf aðeins að huga að því hver viðbrögðin eru.
08.feb. 2010 - 08:00

Tryggvi Þór: Fékk fé og hlunnindi frá Askar meðan hann var efnahagsráðgjafi stjórnvalda

Tryggvi Þór þáði fé og hlunnindi frá Askar Capital meðan hann gegndi stöðu efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fékk ríflega 16 milljónir króna frá Askar Capital meðan hann gegndi störfum sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Að auki var hann á bíl frá Askar og þáði fleiri hlunnindi.
08.feb. 2010 - 07:40

Upp með rakvélina strákar: Ný rannsókn leiðir í ljós að konur vilja menn án bringuhára

Bringuhár Tom Jones höfða til eldri kvenna en hárlítil bringa Daniels Craig til þeirra yngri samkvæmt nýrri rannsókn Ný finnsk rannsókn leiðir í ljós að konur vilja ekki lengur sjá karlmenn með bringuhár. Undantekning á því eru konur sem komnar eru úr barneign.
08.feb. 2010 - 07:20

Bresk lögmannsstofa: Sendi Alþingi 25 millj. kr. reikning, reiknað var með 1,5 millj.

Breska lögfræðistofan Mishcon de Reya hefur sent Alþingi 25 milljóna króna reikning fyrir ráðgjöf sína í Icesave-málinu. Alþingi hafði reiknað með 1,5 milljóna króna reikningi. Í reikningnum er gert ráð fyrir 10 milljóna króna greiðslu fyrir milligöngu til fyrrverandi starfsmanns Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem enginn kannast við að hafa óskað eftir.
08.feb. 2010 - 07:00

Hvað segja andstæðingarnir á EM? Hafa ekki miklar áhyggjur af litla Íslandi sem mun lenda neðst

Egill Drillo Olsen, þjálfari Noregs, Carlos Queiroz, þjálfari Portúgals, Morten Olsen, þjálfari Danmerkur og Ólafur Jóhannesson, þjálfari Íslands, við dráttinn í undankeppni EM 2012 í Varsjá í gær. Forráðamenn danska, norska og portúgalska landsliðsins hafa ekki miklar áhyggjur af því að litla Ísland nái árangri á Em í knattspyrnu en dregið var í riðla í gær.  Flestir telja að Ísland lendi í neðsta sæti H-riðils.
07.feb. 2010 - 22:23

Furðulegustu rúmin: Myndir þú vilja sofa í hamborgara eða í rússíbana? MYNDIR

Kúrir í miðjum borgaranum.

Öll þurfum við að hvílast á nóttunni, hvar sem við búum í heiminum. Það er hins vegar nokkuð ljóst að svefninn fáum við í mjög misjöfnum rúmum. Allt frá því að sofa í hefðbundnum rúmum með dúnsæng yfir okkar til þess að hvílast í furðuverkum sem einhverjir myndu kalla listaverk. Í síðari flokkunum má finna risavaxinn hamborgara, geimskip og samloku sem öll eiga það sameiginlegt að vera rúm einhvers.

07.feb. 2010 - 21:49

Hvað stendur nýr forseti Úkraínu fyrir? Helstu ágreiningsmál samband við austur eða vestur

Viktor Yanukovich horfir til Rússlands frekar en Evrópu. Úkraína kaus sér nýjan forseta í dag. Valið stóð á milli sitjandi forsætisráðherra, Yuliu V. Tymoshenko og andstæðingi hennar og fyrrum forsætisráðherra, Viktor F. Yanukovich. Eftir að kjörstöðum lokaði var sá síðarnefndi með nokkurra prósentustiga forystu, en endanlegur sigurvegari verður ekki tilkynntur fyrren í fyrramálið. Tymoshenko sagði að of snemmt væri að draga ályktanir og að hún væri ennþá með í kapphlaupinu.
07.feb. 2010 - 20:39

Keppt um Ofurskálina á Miami í kvöld: Þetta er Super Bowl í hnotskurn - MYNDIR

Super Bowl - átök. Bandaríkjamenn eru að fara úr límingunum vegna úrslita um bandaríska NFL meistaratitilinn, Ofurskálina eða Super Bowl. Leikurinn fer fram í Miami í Flórídafylki í kvöld, eins og Pressan hefur þegar greint frá. Þau lið sem keppa um Ofurskálina eru Indianapolis Colts og New Orleans Saints.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 05.2.2010
Skvísuvaktin - Lilja Ingibjargar MYNDIR
Björn Þorláksson
Björn Þorláksson - 06.2.2010
Hrikalegt fordæmi Arion-manna
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 04.2.2010
Er framhjáhald eina leiðin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 05.2.2010
,,Af hverju treystið þið mér ekki?"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 04.2.2010
Þórólfur skrökvar sjálfur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 08.2.2010
Ritstjórinn sér rautt
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 04.2.2010
Milljarðarnir sem mygla
Unnur H. Jóhannsdóttir
Unnur H. Jóhannsdóttir - 08.2.2010
Skatturinn rannsakar smábókhald í 5 ár
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 07.2.2010
Lærðu á litina - Tíska
Hermann Guðmundsson
Hermann Guðmundsson - 06.2.2010
Á barmi heimskreppu
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 06.2.2010
Siðblinda
Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir - 04.2.2010
Ber eins og hinir
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit