22.maí 2012 - 14:10
Uppboðshaldari hjá Bruun Rasmussen í Danmörku segir í viðtali við Jyllandsposten að hann efist um að nokkur Dani hafi bolmagn til að eignast taflborð, taflmenn, skákklukku og borð sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Munirnir verða boðnir upp hjá Bruun Rasmussen 14. júní næstkomandi.
22.maí 2012 - 07:45
Ríkisolíufélag Noregs, Statoil, leggur nú mesta áherslu á aukna nýtingu úr þeim olíusvæðum þar sem vinnsla fer fram. Frá árinu 2010 til 2011 jókst nýtingin úr 49% í 50%. Þetta virðist lítil aukning en hún skilaði samt gríðarlegum verðmætum í ríkiskassann norska.
21.maí 2012 - 21:00
Það er þekkt að allt að 6 metrar langir bandormar geta lifað góðu lífi í innyflum fólks en í ljós hefur komið að lirfur þeirra eru jafnvel enn skaðlegri. Þær komast í heila manna og geta þar nærst á heilavefjum án þess að hýsillinn verði þess var. Heilabandormar, sem einnig kallast innsíklar, herja gjarnan á miðtaugakerfið og eru til umfjöllunar í nýjasta hefti Discover Magazine.
21.maí 2012 - 18:00
Sá óvenjulegi atburður varð í dag að það slokknaði á Ólympíukyndlinu aðeins þremur dögum eftir að hann kom til Englands. Kyndillinn var við hlið hjólastóls David Folletts, sem er meistari í badminton fatlaðra.
21.maí 2012 - 15:00
Verð á hlutabréfum í Facebook féll um 12% frá upphaflegu sölugengi þegar Nasdaq markaðurinn opnaði í dag. Upphaflegt gengi var 38 dollarar á hlut en strax við upphaf viðskipta féll það niður í 33,28 dollara.
21.maí 2012 - 12:45
Nokkrir helstu leiðtogar heims hittust á leiðtogafundi G8-ríkjanna í Camp David um síðustu helgi. Þeir stóðust ekki mátið og horfðu á vítaspyrnukeppnina í úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta á milli Bayern Munchen og Chelsea sem fram fór í Þýskalandi sl. laugardag.
21.maí 2012 - 09:29
Stjórnvöld í Quebec-fylki samþykktu um helgina neyðarlög til að koma hömlum á stúdentaóeirðirnar sem hafa geisað síðan um miðjan febrúarmánuð. Lögin fela í sér lokun nokkurra háskóla og fjársektir sem nema allt að fjórum milljónum króna fyrir mótmæli.
20.maí 2012 - 23:51
Robin Gibb, einn hinna þriggja heimsfrægu Gibb-bræðra í hljómsveitinni Bee Gees er látinn, 62 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein.
20.maí 2012 - 19:27
Aldrei í sögunni hafa útlán verið jafnmikil í Noregi og núna, í miðri efnahagskreppu allrar Evrópu. Norsk heimili hafa aldrei haft meiri á milli handanna en skuldirnar hafa aldrei verið hærri.
20.maí 2012 - 17:30
Desmond Hatchett, 33 ára gamall maður frá Knoxville, Tennesee, hefur farið þess á leit við stjórnvöld að þau hjálpi honum við framfærslu á 30 börnum sem hann á með 11 konum.
20.maí 2012 - 14:00
Ísraelar hafa þróað öfluga njósnavél í formi fiðrildis sem getur flogið á bakvið óvinalínur og sent mynd á rauntíma. Fiðrildið vegur einungis 20 grömm og getur sent myndir innan úr byggingum.
20.maí 2012 - 12:24
Birgitta Jónsdóttir, þingkona, hefur ásamt sex öðrum, unnið mál gegn bandarískum stjórnvöldum fyrir rétti í New York vegna nýrra laga þar í landi sem hópurinn segir að gefi Bandaríkjaher heimild til að handtaka almenna borgara hvar sem er í heiminum og hneppa þá í varðhald án dóms og laga.
20.maí 2012 - 11:39
Tölvufyrirtækið Google hefur tilkynnt um nýja breytingu á hinni geysivinsælu leitarvél sinni. Með aukinni gervigreind og nýjungum í forritun er hugmyndin að koma með leitarvél sem muni geta hugsað meira eins og manneskja.
19.maí 2012 - 12:45
Tveir mikilvægir leiðtogafundir eru haldnir í Bandaríkjunum um helgina. Fyrri fundurinn er leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims (G8) og að honum loknum tekur við leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Chicago.
18.maí 2012 - 20:00
Kína er vinsælli meðal almennings en Bandaríkin, eftir því sem ný skoðanakönnun leiðir í ljós. 24.000 manns út um allan heim voru spurðir hvort þessi lönd og önnur hefðu áhrif til góðs eða ills í heiminum.
18.maí 2012 - 13:00
Danska ríkisstjórnin og verkalýðsfélög hafa komist að samkomulagi um að sleppa úr tveimur frídögum á hverju ári og skapa með því 20.000 ný störf. Með þessu móti á danski ríkissjóðurinn einnig að gildna um heila 80 milljarða króna á ári. Fækkun frídaga hefur aldrei komið til umræðu hér á landi en vilji er fyrir því innan Samtaka atvinnulífsins að færa til frídaga, einkum þá sem koma upp á fimmtudögum.
18.maí 2012 - 07:55
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, hringir bjöllunni þegar Nasdaq markaðurinn opnar í. Ástæðan er sú að Facebook er loks að fara á markað og það fyrir metfé. Zuckerberg og félagar meta fyrirtækið á 104 milljarða dollara, 13 þúsund milljarða króna.
17.maí 2012 - 19:46
Evrópa er á barmi efnahagshruns sem kann að hafa víðtækar afleiðingar um allan heim, svo sannarlega líka hér á landi. Forsætisráðherra segir dómsdag nálgast; Grikkland er stjórnlaust og þar líkt og á Spáni óttast menn víðtæk áhlaup á banka næstu daga þar sem landsmenn vilja fremur geyma reiðufé undir koddanum en á ótraustum bankabókum fjármálastofnana sem óvíst er hvort lifa næstu daga af.
15.maí 2012 - 12:58
Maður lagði eld sér fyrir utan þinghúsið í Ósló þar sem réttarhöldin fara fram yfir fjöldamorðingjanum Anders Breivik.
14.maí 2012 - 20:00
Maður vopnaður hníf réðist á konu með sjö ára gamalt barn þegar hún ætlaði inn í verslun við fáfarna götu í Springfield í Bandaríkjunum. Konunni varð hverft við og forðaði sér en skildi barnið eftir í höndum hnífamannsins. Atvikið náðist á eftirlitsmyndavél og sýnir þegar maðurinn stingur konuna nokkru síðar í bringuna.
13.maí 2012 - 20:05
Það þykir hafa gengið kraftaverki næst að stúlkubarn og faðir hennar skyldu komast lífs af í einkar sérkennilegu „umferðarslysi“ í Wenshou í Kína.
13.maí 2012 - 11:23
Forvitni er gildishlaðið orð, oft með neikvæðum tengingum. Rannsókn hefur hins vegar leitt í ljós að forvitni er mikilvægur þáttur í góðum námsárangri og lífsgæðum, ekki síður en samviskusemi.
13.maí 2012 - 10:33
Þótt ekki hafi verið hafist handa við að endurútreikna íbúðarlán til viðskiptavina íslensku bankanna á grundvelli dóms Hæstaréttar um ólögmæti gengislána, hefur annar stærsti banki Bandaríkjanna, Bank of America, hafið vinnu við afskriftir af húsnæðislánum um 200.000 viðskiptavina bankans.
12.maí 2012 - 19:50
Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta og friðarverðlaunahafi Nóbels leysir frá skjóðunni í helgarviðtali við breska blaðið The Telegraph. Hann segir tilraunir hafa verið gerðar til að ráða hann af dögum en hinn 76 ára andlegi leiðtogi tekur morðtilræðinu létt.
12.maí 2012 - 10:00
Í Danmörku er virk samkeppni á bensínmarkaði og þar geysar nú bensínstríð. Það varð líka allt vitlaust þegar bensínstöð í Álaborg auglýsti lítrann af 92 oktana bensíni á eina krónu danska, um 22 ÍSK.
11.maí 2012 - 20:00
Bresk móðir lokaði börn sín inni í herbergjum sínum á kvöldin, fjarlægði ljósaperur, leikföng og dýnur og lét þau vinna eins og þræla hjá hópi sígauna. Misnotkunin stóð yfir í sex ár og konan er hefur verið dæmd til þriggja ára fangelsisvistar.
11.maí 2012 - 12:40
Félag íslenskra bifreiðaeigenda varar íslenska ferðalanga í Evrópu við því á heimasíðu sinni að vopnaðir ræningjar herji á vegfarendur á einni helstu hraðbrautinni í Hollandi og Belgíu, E19.
11.maí 2012 - 11:50
Breskir þjóðernissinnar segja að alþjóðlegir fjölmiðlar séu hættir að fjalla um Ísland sem ætti að vera helst frétt þeirra allra.
10.maí 2012 - 20:00
Máttur viljans er mikill. Þetta kemur skýrt fram í lífi Arthurs Boorman sem læknar höfðu dæmt úr leik.
09.maí 2012 - 20:00
Myndskeið á netinu sem á að sýna þegar maður varð fyrir bíl á hraðbraut í Rússlandi vekur nú mikið umtal. Margir halda því fram að slysið hafi verið sviðsett.
09.maí 2012 - 17:50
Ítalski eðlisfræðingurinn og bókahöfundurinn Felice Vincis heldur því fram að sögustaður ævintýrisins um Ódysseif með hafmeyjum og einhyrningum hafi ekki verið í Gríska eyjahafinu heldur í raun og veru í Skandinavíu og lykilstaðir ævintýrisins séu í Fjónska eyjahafinu.
08.maí 2012 - 20:00
Frægðina getur verið erfitt að höndla. Það varð líka allt vitlaust þegar fræg stórstjarna mætti í verslunarmiðstöðina. En hver er stjarnan?
08.maí 2012 - 17:29
Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi var í síðustu viku andmælandi doktorsnema við lagadeild háskólans í Örebro í Svíþjóð. Umfjöllunarefnið var lög Islam og fékk neminn aðvaranir um að fjalla um þetta efni.
08.maí 2012 - 10:22
#hagamoscomoislandia er ein vinsælasta merkingin á Twitter færslum hjá ungu fólki á Spáni. Gerum eins og Íslendingar.
07.maí 2012 - 19:30
„Mér fannst þetta mjög fyndið“, segir móðir ríflega ársgamals barns sem ljón sem reynir að éta í dýragarði í Bandaríkjunum.
07.maí 2012 - 17:35
Breska lögreglan hefur bannað starfsmönnum sínum að nota frasann „svartur listi“ yfir eitthvað óæskilegt. Frasinn þykir nú lykta af rasisma.
07.maí 2012 - 16:15
Keith Martin er talinn feitasti maður í heimi. Hann vegur 368 kg og hefur ekki farið út fyrir dyr síðan 11. september 2001. Hann er á leið í megrun.
07.maí 2012 - 08:50
Amish-börn sem alast upp á bóndabýlum í Indiana í Bandaríkjunum þjást síður af astma og ofnæmi en önnur börn. Fram til þessa hefur það verið vitað að börn sem alast upp á bóndabýlum í Sviss hafa verið með lægstu tíðni þessara sjúkdóma í heimi en ný könnun sýnir nú fram að amish-börnin eru því sem næst ónæm fyrir þeim.
06.maí 2012 - 20:00
Hin 41 árs Dawn McManus tók sig til nýlega og breytti nafni sínu. Nýja nafnið er 161 orð alls og inniheldur meðal annars yfir 20 kvenmannsnöfn.
06.maí 2012 - 13:25
Svokallaður ofurmáni prýddi himinninn í gærkvöldi, en athygli vakti hversu stórt tunglið virtist á himni.
05.maí 2012 - 20:00
Bresku bræðurnir Matthew og Michael Clark hafa vakið mikla athygli í fjölmiðlum undanfarið. Ástæðan er sjúkdómur sem þeir glíma báðir við sem veldur því að þeir virðast eldast afturábak – eða hreinlega yngjast með deginum.
05.maí 2012 - 11:00
Yfir tuttugu lík voru skilin eftir á opinberum svæðum í borginni Nuevo Laredo í Mexíkó í nótt, en borgin er þekkt átakasvæði tveggja áhrifamikilla fíkniefnahringja.
04.maí 2012 - 20:50
McDonalds gætir þess vel að að vera ofarlega á listum samskiptamiðla á borð við Twitter en það er greint frá því hvernig fyrirtækið á í góðum samskiptum við kúabændur sem sjá um að verða McDonalds úti um hráefni í borgarana sína.
04.maí 2012 - 12:00
Breskri fjölskyldu, sem varð innlyksa á Spáni vegna eldgossins í Eyjafjallajökli árið 2010, hafa verið dæmdar bætur frá spænska flugfélaginu Iberia. Það tók fjölskylduna fjóra daga að komast heim til Englands með tilheyrandi kostnaði vegna bílaleigubíla, lestarferða og gistingar.
03.maí 2012 - 08:48
Robert Spitzer, einn áhrifamesti geðlæknir síðustu áratuga, hefur sent frá sér afsökunarbeiðni til samkynhneigðra einstaklinga. Hún er tilkomin vegna rannsóknar þar sem hann komst að þeirri niðurstöðu að hægt væri að snúa við kynhneigð samkynhneigðs fólks.
03.maí 2012 - 07:50
Fjallað er um framboð Þóru Arnórsdóttur til forseta Íslands í næsta mánuði í vefútgáfu danska dagblaðsins Politiken. Í umfjölluninni er stóra málið það að Þóra þurfi að taka sér a.m.k. tveggja vikna frí frá framboðsbaráttunni til að fæða sitt þriðja barn. Hún segir þetta alvanalegt hjá konum, en blaðamaður Politiken er ekki alveg á því.
02.maí 2012 - 20:10
Hann dansaði af mikilli innlifun, maðurinn sem klifraði upp í stillansa sem gnæfði yfir tónleikasviðið á tónlistarhátíðinni á Creamfields í Ástralíu. Fólkið hrópaði af fögnuði þegar maðurinn tók að dansa hátt yfir höfði gestanna en gamanið kárnaði er hann féll niður.
02.maí 2012 - 15:13
Í dag hófust réttarhöld gegn lögregluþjóni frá Álaborg á Jótlandi sem ákærður er fyrir ósiðsamlegt athæfi sem fólst í því að senda myndir úr farsíma af getnaðarlimi sínum í fullri stöðu og ásamt ýmsum dónaskilum til þriggja kvenna sem tengjast mótorhjólagengi.
02.maí 2012 - 13:50
Mikil spenna hefur myndast vegna uppboðs Sotheby's á einni af fjórum útgáfum af Ópinu, einu þekktasta myndverki myndlistarsögunnar sem Norðmaðurinn Edward Munch gerði 1895. Hugsanlegt er talið að verkið verði selt á allt að 200 milljónir dollara og yrði þá meira en þrefalt dýrara en ásett verð. Veðmálafyrirtækið Betsson hefur sett upp veðmál um hvaða verðmúrar verði brotnir.
01.maí 2012 - 20:00
Flestir alast upp við að ekki eigi að hlæja að mistökum annarra. Hins vegar geta mistök annarra verið hrikalega fyndin, svo framarlega sem enginn bíður skaða af. Nokkrir húmoristar hafa safnað saman myndböndum af klaufabárðum aprílmánaðar 2012.