15.mar. 2010 - 14:15

Vandræðaleg mistök í bæklingi: Bók um kynlífsleikföng í auglýsingu um barnavörur

Bókin Sex Toys á gólfinu í auglýsingu um Hannah Montana sængurver Unnið er að því að innkalla tugþúsundir auglýsingabæklinga frá norska fyrirtækinu Princess eftir að það uppgötvaðist að í auglýsingu fyrir barnasængurföt að þar liggur bók um kynlífsleikföng.
15.mar. 2010 - 12:55

Stendur hrunskýrslan ekki undir væntingum? Stjórnsýsluúttekt en ekki neinn Stóridómur

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið verður „stjórnsýsluúttekt samin af sérfræðingum í stjórnsýslu“, segir heimildarmaður Pressunnar. Í nefndina vanti fólk með bakgrunn úr viðskiptum. Skýrslan er að koma úr prentun og á meðan er rannsóknarnefndin þögul sem gröfin.
15.mar. 2010 - 11:47

Stjórnmálafræðingur: Heitir það ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsað af fólki í skjóli nætur?

Eiríkur Bergmann stjórmálafræðingur, segir að hann sjái ekki betur en að skuldir almennings hafi átt að lækka við niðurfærslu lána úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Féð sé hins vegar notað til að fella niður skuldir óreiðumanna. Hann spyr hvort það heiti ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsa af fólki nánast í skjóli nætur.
15.mar. 2010 - 10:59

Hálfsextug nunna fékk óvæntan arf: Eitt hóruhús í Austurríki frá sirkusstarfandi mömmu

Hálfsextug nunna í Skotlandi fékk óvæntan arf nýverið; eitt stykki hóruhús í Austurríki. Kom í ljós að móðir nunnunnar hafði um árabil rekið það með góðum hagnaði.

15.mar. 2010 - 10:08

Félagsmálaráðherra: Græði skuldari meira á dómi um bílalán en lögum, þá gildir dómurinn

Félagsmálaráðherra segir stjórnvöld gæta hagsmuna skuldara í landinu Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra vísar á bug ásökunum Samtaka lánþega um að hann gangi erinda fjármögnunarfyrirtækja. Stjórnvöld láti hvorki lánþega njóta lakari kjara en þeir geti fengið með hjálp dómstóla né ívilni eignaleigum á nokkurn hátt.
15.mar. 2010 - 08:53

Sýngin Netið 2010: Vísir að árshátíð netfyrirtækja að ári sem verður enn stærri í sniðum

Liðsmenn Allra átta fengu verðlaun fyrir glæsilegasta básinn á sýningunni. Stórsýningin Netið 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind varð upptakturinn að árshátíð fyrirtækja á íslenskum netmarkaði sem haldin verður að ári liðnu. Þúsundir gesta lögðu leið sína á sýninguna um helgina.
15.mar. 2010 - 08:34

Maður hótaði fjöldamorði í Stokkhólmi: Handtekinn eftir að slóð hans var rakin á netinu

Lögreglumenn í Svíþjóð gættu öryggis við Tækniháskólann í gær og í nótt Lögreglan í Gautaborg handtók í nótt mann sem hafði hótað því að fremja fjöldamorð í Konunglega Tækniháskólanum í Stokkhólmi í dag. Lögreglan rakti slóð hans á netinu.
15.mar. 2010 - 07:50

Samtök lánþega: Lánardrottnar hagnast á hugmyndum ráðherra um niðurfærslu bílalána

Samtök lánþega segja að tillögur félagsmálaráðherra um lækkun bílalána í 110% af söluandvirði bifreiða gagnist fjármögnunarfyrirtækjunum sjálfum. Erfitt sé að átta sig á hverra hagsmuna ráðherrann sé að gæta.
15.mar. 2010 - 07:40

Hrunskýrsla Alþingis ekki svo svört: Þeir sem þola mig ekki eiga eftir að verða svekktir

Verið er að leggja lokahönd á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en heimildir herma að hún verði ekki eins kolsvört og látið var að liggja. Sölvi Tryggvason segir í pistli á Pressunni að einn svonefndra hrunmanna spái því að lesendur sem þoli sig ekki verði svekktir.
15.mar. 2010 - 07:00

Sláttumaðurinn slyngi snuðaður: 92 ára kona grunuð um morð á 98 ára eiginmanni sínum

Frá Sydney í Ástralíu Áströlsk kona er sökuð um að hafa myrt eiginmann sinn á heimili þeirra í Sydney, Ástralíu. Þetta þætti ekki í frásögur færandi hér hinum megin á hnettinum nema vegna þess að konan er níutíu og tveggja ára og manninn vantaði tvö ár í hundrað.
14.mar. 2010 - 22:08

Þrotabú Fons: Bankarnir leggi fram tryggingu til endurgreiðslu á milljarði króna til Jóns Ásgeirs

Skiptastjóri Fons vill rifta milljarðsgreiðslu frá félaginu til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar Skiptastjóri Fons vill að Landsbankinn, Arionbanki og skilanefnd Glitnis leggi fram tryggingarfé vegna mögulegrar kyrrsetningar hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Um er að ræða riftunarkröfu á milljarðsgreiðslu til Jóns Ásgeirs.
14.mar. 2010 - 20:22

Sigurður G.: Réttast að skoða lögmæti starfshátta og gerninga skiptastjóra Fons

Sigurður G. Guðjónsson skýtur föstum skotum að skiptastjóra í þrotabúi Fons Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skýtur föstum skotum að skiptastjóra Fons í Pressupistli, gefur í skyn að gerningar hans og starfshættir standist ekki skoðun og að hann hafi ásamt aðstoðarmönnum sínum tryggt sér tugmilljóna króna þóknun með sölu hlutabréfa úr þrotabúinu.
14.mar. 2010 - 20:02

Alþjóðlegt hagsmunasamsæri gegn þeim sem benda á að hlýnun jarðar sé staðreynd

„Ég veit það eru stór orð að tala um samsæri en ég endurtek þau þar til menn opna augun.“ Mohamed Nasheed, forseti Maldivíeyja, fullyrðir að alþjóðlegt samsæri reyni að grafa undan trúverðugleika vísindamanna sem færa rök fyrir hnattrænni hlýnun. Stórfyrirtæki kosti miklu til við spuna sem sýni fram á annað.
14.mar. 2010 - 19:26

Breytingar á skilmálum bílalána: Félagsmálaráðherra lætur hótun um lögsókn ekki aftra sér

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra Félagsmálaráðherra segist ekki hafa áhyggjur af því að fjármögnunarfyrirtækin fari í þrot vegna tillagna hans um afskriftir bílalána. Mestu skipti að skuldurum sé gert kleift að borga af lánum sínum. Þá óttast hann ekki lögsókn.
14.mar. 2010 - 18:36

Íslandsmeistari í langstökki: Fékk verðlaunapening fyrir afrek sitt 58 árum of seint

Margrét Hallgrímsdóttir setti glæsilegt Íslandsmet 1952 en fékk gullpeninginn sinn 2010 Margrét Hallgrímsdóttir sló Íslandsmet í langstökki á landsmóti UMFÍ á Eiðum árið 1952 sem stóð í 20 ár. Hún fékk verðlaunapeninginn afhentan núna fyrir helgi, 58 árum eftir að mótinu lauk.
14.mar. 2010 - 17:45

Vélhjólamenn kætast: Klausturskeppnin endurvakin um hvítasunnuhelgina

Auðveldara verður að fylgjast með þolkeppni vélhjólamanna við Klaustur en áður Ein langstærsta akstursíþróttakeppni sem haldin hefur verið hérlendis, Klausturskeppnin svokallaða, verður endurvakin á Kirkjubæjarklaustri um komandi hvítasunnuhelgi. Keppnin, sem síðast var haldin árið 2007, laðaði að sér hátt í 500 keppendur.
14.mar. 2010 - 16:20

Bæjarstjóri í Belgíu hundskammar góðglaða lögregluþjóna

Tveir lögreglumenn í Belgíu sæta rannsókn vegna gruns um að hafa verið fullir í vinnunni Tveir lögreglumenn í þorpi skammt frá Spa í Belgíu sæta rannsókn vegna gruns um að hafa verið ölvaðir í vinnunni. Myndband, sem vegafarandi tók, er eitt af sönnunargögnunum en því hefur verið dreift á Youtube.
14.mar. 2010 - 15:17

Ögmundur Jónasson: Íslendingum hjálpað á fætur en Svíar eiginhagsmunaseggir

Ögmundur Jónasson fagnar því að óréttmætri gagnrýni að utan sé svarað Ólafur Ragnar Grímsson, Össur Skarphéðinsson og Eva Joly hafa hjálpað íslensku þjóðinni af hnjánum upp á fæturna. Þetta segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, og sakar Svía um að hugsa um eigin hag í Icesave-deilunni.
14.mar. 2010 - 14:37

Jóhann Hauksson, blaðamaður ársins, vill verða fjölmiðlafulltrúi fjármálaráðherra

Jóhann Hauksson, blaðamaður á DV, sækir um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðuneytisins Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson, nýkjörinn blaðamaður ársins, er meðal umsækjenda um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins.
14.mar. 2010 - 12:24

Hæstiréttur snýr úrskurði héraðsdóms: Pólverji framseldur til að afplána fangelsisdóm

Hæstiréttur hefur hnekkt ákvörðun héraðsdóms um að hafna því að Pólverji verði framseldur frá Íslandi til að taka út fangelsisrefsingu í sínu heimalandi. Héraðsdómur taldi framsalið ósamrýmanlegt meðalhófsreglunni.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit