14. jún. 2011 - 18:35
Í tugmilljóna borgum Kína er óumflýjanlegt að langar raðir myndist við hin og þessi tilfelli. Nokkir snjallir frumkvöðlar hafa nýtt sér ástandið og nú spretta biðraðaþjónustur upp eins og gorkúlur.
Þeir eru margir í hinu nýríka Kína sem engan tíma hafa né þolinmæði til að bíða í röðum og nú eiga þeir kost á því að borga öðrum að gera það fyrir sig.
Fyrir það sem jafngildir um 350 krónum á tímann getur þú leigt þér staðgengil sem hefur það að atvinnu sinni að hlífa þér við leiðindum á borð við biðraðir flugvalla, banka og spítala.
Li Qicai, einn helsti frumkvöðull greinarinnar í Sjanghæ, segir kveikjuna að bransanum einfalda:
Það er leiðinlegt að standa í röð og enginn nennir því
Hann segir helsta kostinn við starfið vera frelsið sem fylgir því og allt nýja fólkið sem maður kynnist. Biðraðir séu félagslegri fyrirbæri en margan grunar. Li virðist því hafa meira gaman af röðum en flestir og er metið hans 26 tíma bið, eftir afgreiðslu á spítala.
Starfinu virðist einnig fylgja meiri fræði en margan grunar, því sérhæfing, t.d. á sviði spítalabiðraða, skilar atvinnumönnunum allt að tvöföldum tekjum. Þá eru einnig viðurkenndar nokkrar grundvallarreglur fagmannsins eins og t.d. að mikilvægt er að eignast vini í biðröðinni, langi mann einhvern tímann í klósett- eða matarpásur.
Spennandi er að sjá hvort þessi atvinnugrein muni festa rætur í fleiri löndum og þá jafnvel á Íslandi. Það er alltaf leiðinlegt að bíða í röð eða á biðstofum, óháð staðsetningu á hnettinum.
Ekki væri úr vegi að fyrsta atvinnumannaumboðið í biðraðabransanum yrði staðsett einhvers staðar í nágrenni slysavarðstofunnar í Fossvogi.
Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.