17. feb. 2011 - 07:30

Drengurinn Corey er einn þeirra sem kennaranum þótti lykta illa. Móðir hans er síður en svo sátt við kennarann.
Kennara sem úðaði karrílyktandi nemendur með lyktareyði hefur verið vísað úr starfi. Kennarinn úðaði asíska nemendur með lyktareyðinum og einnig aðra nemendur sem honum þótti lykta illa.
Kennaranum Elizabeth Davies, sem kennir í grunnskóla í Bretlandi, var vikið úr starfi þegar upp komst um athæfið. Davies kenndi nemendum á aldrinum þriggja til sex ára.
Peter Williams, fulltrúi í menntamálayfirvöldum í Wales, segir að með athæfi sínu hafi hún sýnt fram á að hún viti ekki alveg hvað felist í því að vera kennari.
Þetta sýndi að hún var ekki næm á þarfir barnanna.
Þegar málið var tekið fyrir af ráðamönnum skólans kom meðal annars fram að hún sagði:
Það er mistur að koma frá Paradís,
áður en hún úðaði börnin með lyktareyðinum.
Davies, sem hefur verið kennari í rúmlega tuttugu ár, skipaði stuðningsfulltrúum og aðstoðarfólki einnig að úða börnin. Um helmingur barnanna í skólanum sem hún kenndi í eru af asískum uppruna.
Stuðningsfulltrúar hafa komið fram og sagt að hún hafi komið misjafnlega fram við börnin eftir uppruna þeirra.
Þá nýtti hún sérstaklega morgnana í að úða illa þefjandi börnin með lyktareyðinu og einblíndi hún sérstaklega á þau börn sem henni fannst lykta af lauk og karríi.
Henni hefur verið vikið frá störfum í tvö ár, en þá má hún snúa aftur til starfa. Foreldrar barnanna í skólanum eru ekki sáttir við þennan ráðahag, þeir vilja ekki sjá kennarann með úðabrúsann snúa aftur.
Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.