25. jún. 2011 - 15:00
Hélt skilnaðarathöfn – Reif brúðkaupsmyndirnar ofan í gullfiska og fór með skilnaðarheiti
Brúðkaup hafa það orð á sér að vera fallegar athafnir, en hvað með hjónaskilnaði? Ekki síðri, segir hin nýfráskilda Yuan Li.
Ég var tekin að heiman af manninum mínum fyrir 28 árum og nú er ég komin aftur heim,
sagði Yuan á sviðinu við athöfnina.
Yuan Li yfirgaf manninn sinn fyrir skemmstu og flutti aftur heim í foreldrahús með börnin þeirra þrjú. Henni fannst skilnaðurinn svo mikill tímamótaviðburður í lífi sínu að hún ákvað að fagna honum ærlega með því sem hún kýs að kalla viðeigandi athöfn.
Í stað þess að jánka því að styðja maka sinn í blíðu og stríðu, staðfesti Yuan við þann sem athöfninni stýrði að hún myndi ekki eiga meiri samleið með fyrrum manni sínum og vildi ekki sjá hann aftur.
Hjúskaparheitin voru heldur ekki eftir bókinni en Yuan fór með svokölluð skilnaðarheit. Því næst reif hún brúðkaupsmyndirnar sínar á sviðinu og dreifði tætingnum ofan í tjörn, fulla af gullfiskum. Var það tákn þess að þar með væri hjónabandinu slitið.
Til að gera athöfnina enn furðulegri var mágkona Yuan mætt og hélt ræðu til heiðurs skilnaðinum.
Eiginmaður Yuan til 28 ára lét sig þó sem betur fer vanta við athöfnina, enda líklega ekki boðið.
Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.
19.maí 2013 - 19:45
58 ára gamall karlmaður sem var bundinn við hjólastól lést eftir að hafa farið til veiða í stíflu í nágrenni við heimabæ hans í Roermond í Hollandi.
14.mar. 2012 - 12:18
Starfsmenn Securitas sem starfa í 10-11 verslunum þurfa að ganga í
sérstöku öryggisvestum við störf sín en þau eru stunguheld. Starfsmannastjóri fyrirtækisins segir þetta gert af illri nauðsyn.
03.feb. 2012 - 10:00
Landlæknir vísar því á bug að embætti hans hafi haft áhrif á það árið 2010 að Jens Kjartansson lýtalæknir upplýsti ekki konur, sem gengist höfðu undir brjóstastækkun hjá honum, um að þær kynnu að vera með gallaða PIP-púða. Læknirinn hafi þvert á móti hunsað leiðbeiningar landlæknisembættisins.
05.jan. 2012 - 12:50
Þóra Arnórsdóttir, sjónvarpsstjarna í Kastljósi, útilokar ekki forsetaframboð í samtali við Pressuna.
12.nóv. 2011 - 18:20
Á fimmtudagskvöldið var forsýnd kvikmyndin The Human Centipede 2 í Háskólabíó. Fyrri myndin fjallaði um geðveikan skurðlækni sem rænir 3 einstaklingum sem hann svo vill breyta í mennska "margfætlu". Það gerir hann með því að framkvæma á þeim aðgerð sem felst í því að festa munn einnar manneskju við endaþarm næstu manneskju og svo koll af kolli og þannig sameina meltingu þeirra.
18.okt. 2011 - 15:57
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir í bréfi til Jóhönnu Sigurðardóttur að hún hafi ekki boðvald yfir sér og það sé rakalaus tilraun til íhlutunar í samskipti forsetaembættis og Alþingis að setja embættinu siðareglur.
05.sep. 2011 - 18:21
Lögregla reynir nú að leysa mál sem snýst um fjölda nærbuxna sem fundust allar við sömu götu rétt utan við bæinn. Hvernig nærbuxurnar komust þangað og hver á þær er hið leyndardómsfyllsta mál.
03.ágú. 2011 - 19:28
Ögmundur Jónasson segir að það verði að huga að aðgengi að útihátíðum líkt og þeim sem haldnar eru um verslunarmannahelgina og einnig að aldri gesta hátíðanna. Hann segir að ekki hafi verið nóg að gert til að sporna við nauðgunum á útihátíðum og ætlar ekki að látÖgmundur Jónasson segir að það verði að huga að aðgengi að útihátíðum líkt og þeim sem haldnar eru um verslunarmannahelgina og einnig að aldri gesta hátíðanna. Hann segir að ekki hafi verið nóg að gert til að sporna við nauðgunum á útihátíðum og ætlar ekki að láta sitt eftir liggja.a sitt eftir liggja.
28.jún. 2011 - 12:35
410 nemendur sem settu Verzlunarskóla Íslands í fyrsta eða annað val var synjað um skólavist. Nemendum með meðaleinkunn allt upp í 8,75 var vísað annað vegna þess að aðrir slakari nemendur áttu forgang. 7 aðrir skólar í sama vanda.
27.jún. 2011 - 13:35
Rannsóknaraðilar hafa verið kallaðir til vegna grunsamlegra veikinda starfsmanna Þjóðarbókhlöðunnar. Búist var við niðurstöðum 20. júní en ennþá vilja menn engar upplýsingar birta og segja ástæðuna vera persónulegar.
27.jún. 2011 - 12:10
Reglur um forgang ákveðinna grunnskólanemenda inn í vinsælustu framhaldsskóla landsins eru ósanngjarnar að mati Inga Ólafssonar, skólastjóra Verzlunarskóla Íslands. Sumir komast inn með 6,9 í meðaleinkunn en aðrir ekki með 8,75.
27.jún. 2011 - 09:51
Æ fleiri kvarta undan fólki sem er að róta í ruslatunnum á lóðum þeirra í leit að einhverju nýtilegu. Lögreglan segir ekki um faraldur að ræða.
27.jún. 2011 - 08:44
Ísdrottningin Ásdís Rán tekur því ekki þegjandi og hljóðalaust að vera vísað á dyr og gildir einu þótt það sé í hinum tölvuvædda heimi.
26.jún. 2011 - 21:30
Það gerist reglulega að einstaklega rómantískir kærastar biðji stúlknanna sinna í viðurvist fjölda fólks. Yfirleitt eru þetta falleg augnablik þar sem kærastan segir já og allir fara að klappa. En þannig er ískaldur raunveruleikinn ekki alltaf.
26.jún. 2011 - 20:30
Mikill viðbúnaður er hjá skipuleggjendum Hróarskelduhátíðarinnar sem og lögreglu vegna miðafölsunarmáls. Glæpagengi frá Austur-Evrópu selja ófáanlega miða á uppsprengdu verði.
26.jún. 2011 - 19:30
Bresk móðir hefur vakið hneykslun samlanda sinna. Hún var handtekin í vikunni eftir að lögreglan kom að henni rænulausri vegna áfengisneyslu við hliðina á tómum barnavagni.
26.jún. 2011 - 18:30
Það gerist reglulega að ólíklegustu dýr ákveði skyndilega að verða vinir. Hér eru nokkrar myndir af furðulegum vinskap innan dýraríkisins.
26.jún. 2011 - 17:30
Það eru fleiri flugstjórar en þeir hjá Icelandair undir álagi þessa dagana. Einn slíkur hjá British Airways missti stjórn á sér í dag og fleygði GSM síma farþega út um glugga vélarinnar nokkrum andartökum fyrir flugtak.
26.jún. 2011 - 16:30
Útihátíð var haldin í Galtalæk um helgina þar sem margir af helstu skemmtikröftum þjóðarinnar sem og erlendir stigu á stokk. Það olli hins vegar miklum vonbrigðum að gestir voru sárafáir.
26.jún. 2011 - 15:40
Niðurstöður rannsóknar sem gerð var meðal Svía árið 2010 sýnir að um 75% meðlima hinnar sænsku lúthersku kirkju trúa ekki á Jesú Krists. Þar af skilgreina 40% sig sem trúleysingja eða efasemdamenn.
26.jún. 2011 - 14:50
Íbúar sveita nærliggjandi Fukushima kjarnorkuverinu í Japan sem var vettvangur stórslyss í mars síðastliðnum eru uggandi yfir áhrifum þess á náttúru svæðiðsins sem smám saman eru að koma í ljós.
26.jún. 2011 - 14:15
Nemandi í kínverskum listaháskóla hefur safnað nokkrum hundruðum nærbuxna annarra nemenda í skólanum til að nota í lokaverkefninu sínu í kvikmyndafræði.
26.jún. 2011 - 13:30
Mótmælendur í Kiev í Úkraínu gætu átt von á að sitja í fangelsi í fimm ár fyrir það eitt að grilla sér pylsur og egg í morgunmat. Ástæðan: Þeir gerðu það yfir eilífum eldi á minnisvarða hins óþekkta hermanns í Kænugarði.
26.jún. 2011 - 12:30
Hakkaragengið Lulzsec hefur staðið fyrir nokkrum stórum árásum síðustu tvo mánuðina, t.d. á heimasíðu CIA auk risaárásar á gagnagrunn Sony í Maí. Þeir réðust einnig á innskráningarnetþjón íslenska tölvuleikjarisans CCP sem var eitt af þeirra síðustu skotmörkum.
26.jún. 2011 - 11:36
Flytja átti aldraðan mann með sjúkraþyrlu á spítala í neyðaraðgerð en þegar þyrlan kom á staðinn gat hún ekki lent. Ástæðan var að skapstyggur maður neitaði að færa bílinn sinn af lendingarsvæðinu.
26.jún. 2011 - 10:57
Fimm ferðum hefur þegar verið aflýst frá Keflavíkurflugvelli í dag og ekki sér fyrir endann á afleiðingum yfirvinnubanns flugmanna Icelandair.
26.jún. 2011 - 10:00
Alþjóða eggjakastssambandið fagnar nú þeim áfanga sem eggjakast náði í átt að því að verða löggilt íþrótt. 4 af 5 helstu keppnisgreinum í eggjakasti voru samþykktar sem raunverulegar íþróttagreinar af íþróttaráði Englands.
26.jún. 2011 - 09:00
Samkvæmt kanadískum vísindamönnum getur kvenfólk, og þá sérstaklega kvenfólk í leit að hugsanlegum maka, séð hvort karlmaður sé samkynhneigður eða ekki á útlitinu einu saman.
25.jún. 2011 - 21:30
Eins og allir vita þá mjálma kettir en hundar gelta. Þessi köttur var hins vegar gómaður við að svíkja lit þegar hann geltir hástöfum út um glugga á heimili sínu. Þegar eigandinn kemur síðan að honum með myndavél virðist koma fát á kisa sem skiptir snögglega aftur yfir í mjálm.
25.jún. 2011 - 20:30
Blendingurinn Yoda hefur verið útnefndur ljótasti hundur í öllum heiminum og verður ekki annað séð en hann sé vel að titlinum kominn.