16. apr. 2010 - 11:07
Ísland virðist nú nafli alheimsins vegna eldgossins í Eyjafjallajökli sem kyrrsetti nálægt fimm þúsund flugvélar í gær og gerði nokkur hundruð þúsund flugfarþega strandaglópa. Og tvær myndir hafa fangað athygli umheimsins; önnur hefur verið kölluð Ragnarök og hin andlit Kölska.
Myndina Ragnarök, sem sjá má í stórri upplausn hér að neðan, tók Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, og sýnir hún vel þann kraft og þá eyðileggingu sem býr í gosinu. Sú mynd hefur farið sem eldur í sinu um heim allan og er líklega sú mynd sem flestir hafa sett á Facebook þegar rætt er um gosið.
Erlendir fréttamiðlar hafa sýnt henni mikinn áhuga og talsvert af fyrirspurnum hafa komið frá þeim til Pressunnar í því skyni að kaupa hana eða tryggja birtingarrétt.
Að sama skapi má segja að mynd sem áhöfn flugvélar Landhelgisgæslunnar TF - SIF tók af hinum þremur gígum Eyjafjallajökuls hafi fengið gríðarlega athygli síðan hún birtist í morgun. Andlit Kölska hefur hún verið kölluð og er þegar farinn að vekja athygli erlendis.
Að auki má hér í myndasafni að neðan sjá eina frægustu mynd sem tekin var í Surtseyjargosinu af Sigurgeiri Jónassyni. Mynd sem varð táknmynd gossins.
En þessi mynd Ólafs á Þorvaldseyri er án efa táknmynd gossins í Eyjafjallajökli