29. jan. 2012 - 10:00
Tímastilling gerir það að verkum að fólk kemst yfirleitt aðeins yfir hálfa Hringbrautina áður en allir bílar æða af stað við fyrsta blikk. Fólk með barnavagna er í enn verri málum.
Umferðarljósin við Háskólann eru varasöm því tími græna gönguljóssins er allt of stuttur eins og sjá má í myndbandi sem Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi, tók upp á göngu sinni um Vesturbæinn. Ef fólk fer ekki þeim mun hraðar yfir er hætt við að það verði strand á eyjunni milli akreinanna. Gísli Marteinn vill sjá breytingu á tíma ljósanna.
Þetta er eiginlega alveg ferlegt því háskólastúdentar fara úr strætisvagninum norðanmegin við brautina og geta átt von á að bílarnir æði hreinlega af stað ef þeir eru ekki nógu fljótir yfir,
segir Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi, en hann lagði fram tillögu á fundi Umhverfis- og samgönguráðs síðastliðinn þriðjudag. Vel var tekið í tillögu um að breyta umferðarljósunum en samgöngustjóri mun sjá um útfærslu tillögunnar.
Annars vegar væri hægt að lengja tímann á græna gönguljósinu og hins vegar að láta gula blikkljósið byrja nokkrum sekúndum síðar. Ökumenn virðast ekki klárir á því hvað þetta gula blikkandi ljós táknar.
Myndbandið hér fyrir neðan talar sínu máli:
Gönguljósin á Hringbraut, við Háskólann from Gísli Marteinn Baldursson on Vimeo.