28. maí 2010 - 15:20

„Gamla góða ísbúðin mín. Hér á ég margar skemmtilegar minningar frá því á unglingsárunum, við hliðina á henni var bakarí og þar við hliðina var videoleiga. Núna er allt farið,“ segir Bjarni Fritzson. Bjarni Fritzson
„Hverfin eru að brotna niður. Það gerir sér enginn ferð þangað og skoðar hvað er að gerast þar. Það er enginn í tenglslum við almúgann,“ segir Bjarni Fritzson, sem er uppalinn í Breiðholtinu. Hann segir stjórnmálamenn í Reykjavík hafa brugðist íbúum hverfisins.
Bjarni, sem er meistaranemi í sálfræði og landsliðsmaður í handbolta, lýsir því á heimasíðu sinni þegar hann fer í hjólreiðatúr um Seljahverfið til að endurvekja gamlar og góðar minningar úr barnæsku sinni. Það sem blasti við honum var hrein „skelfing“. Lítil sem engin þjónusta er eftir í hverfinu, leikvellir og önnur opin svæði eru í niðurníslu og tjörnin þar sem börn léku sér á árum áður er „hryllileg.“
Bjarni tók myndir af því sem blasti við honum (sjá neðar) og segir hann við Pressuna augljóst út frá þessum myndum að stjórnmálamenn í Reykjavík hafi brugðist Breiðhyltingum.
Fyrir mér er þetta bara tækifæri fyrir stjórnmálamenn. Þeir segjast vilja efla atvinnu og þetta er rakið dæmi. Þetta þarf ekki einu sinni að kosta mikið. Það þarf bara vinnuafl og málningu. Það er svo einfalt að leysa þetta vandamál.
Bjarni segir Seljahverfið ekki einsdæmi í borginni. Til að mynda sé ástandið lítið skárra í Fellunum og Bökkunum. Hann skellir skuldinni á „sandkassaleik“ borgarfulltrúa sem hafa verið uppteknari við að skipta um valdastóla í stað þess að sinna íbúum í hverfum borgarinnar. Sem dæmi um áhugaleysi borgaryfirvalda nefnir Bjarni fyrirhugað íþróttahús ÍR sem hann hefur beðið eftir síðan hann var 10 ára.
ÍR er eitt rótgrónasta félag borgarinnar og um leið nánast eina félagið sem á ekki sitt eigið íþróttahús. Sem hefur orðið til þess að krakkarnir okkar hafa engan samanstað og félagið nær ekki að iðka sína starfsemi í hverfinu. Körfuboltadeildin spilar í Kennaraháskólanum, frjálsar stunda sínar æfingar í Laugardalnum, handboltinn þarf að stunda sínar styrktaræfingar í Kópavoginum og svo framvegis.
Hér að neðan má sjá myndirnar sem Bjarni tók á ferð sinni um Seljahverfið. Í myndatextum má lesa hvernig Bjarni lýsir því sem fyrir augu hans bar.