30. jan. 2012 - 12:50

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Andstæðingar þess að moska verði byggð í Reykjavík hafa grafið svínaskrokka, blóð og innyfli á þeim lóðum sem til greina koma. Vilja þeir með þessu vanhelga lóðina til að fæla múslíma frá því að byggja á þeim. Hvetja þeir til sambærilegra aðgerða víðar, meðal annars á þeirri lóð sem nú er til umræðu undir mosku.
Gröfum helling af svínaúrgangi, s.s. innyflum, hausa og hellum svínablóði á lóðina og þeir munu hrökklast í burtu. Þetta var gert í Svíþjóð, með góðum árangri,
segir Kristján Arnar Helgason en hann er virkur í umræðunni á síðu andstæðinganna á Facebook. Þegar Pressan náði tali af honum vildi hann ekki tjá sig um þessi ummæli.
Skúli Skúlason heldur úti bloggsíðum sem og Facebooksíðu um málið og svarar hann athugasemd Kristjáns með því að staðfesta að umræðan um að grafa svínsskrokka á lóðum sé ekki ný af nálinni.
Fyrir nokkrum mánuðum birtist færsla hérna á síðunni frá ónefndum aðila þar sem hann tilkynnti að búið væri að grafa 3 svínaskrokka í í Sogamýrinni, þar sem styttan af burðarhestinum var við innkeyrsluna í borgina. Nánar veit ég ekki um málið. Þó nokkrir aðilar hafa sýnt áhuga á að framkvæma aðgerðina, en við erum búin að gleyma nöfnum þeirra,
Ástæða þess að andstæðingar byggingar mosku grafa svínsskrokka á landsvæðum er sú að þar með sé landið talið vanhelgað og því þurfi múslimar að finna sér nýja lóð. Þetta er meðal þess sem fram kemur á Facebooksíðu hópsins.
Glæsilegt, megi þeir hafa heiður skilinn fyrir framtakið, þetta eru þjóðhetjur, þeir gera sitt til að bjarga okkar litlu þjóð frá ægivaldi múslima. Betur væri ef við ættum fleiri svona þjóðholla menn,
segir Kristján í tengslum við framkvæmd aðgerðarinnar. Hann lýsir yfir ánægju með að menn séu reiðubúnir að mótmæla með þessum hætti.