17. apr. 2010 - 13:11

Örvar Atli Þorgeirsson
Eldgosið í Eyjafjallajökli er heimsviðburður sem hefur áhrif á daglegt líf milljóna manna og kostar fyrirtæki tugi milljarða króna. En þetta er íslensk náttúru í öllu sínu veldi.
Ótrúlegar myndir eru að sjást af eldgosinu, hver annarri athyglisverðari og þær sýna krafta náttúrunnar, þau gríðarlegu öfl sem eru að leysast úr læðingi.
Ein sú allra öflugasta er mynd Örvars Atla Þorgeirssonar af eldgosinu í hámarki. Eldingar og eldglæringar, kolsvört askan og glóandi hraunið í islensku náttmyrkri endurspegla þá gríðarlegu krafta sem búa í eldfjallinu en á sama tíma að sýna þá fegurð sem finna má í hamförum - og er óhætt að segja að myndin sé hreint meistarastykki.
En tvær aðrar myndir hafa einnig rammað vel inn þær náttúruhamfarir sem nú standa yfir.
Mynd Ólafs Eggertssonar, bónda á Þorvaldseyri, sem kölluð hefur verið Ragnarök, hefur farið víða um heim enda fáar myndir sem sýnt hafa jafnvel þá ógn sem fólki steðjar að eldfjöllum.
Og ekki síður mynd sem áhöfn flugvélar Landhelgisgæslunnar TF-SIF tók af gígunum þremur í Eyjafjallajökli og kölluð hefur verið andlit Kölska.
Myndirnar þrjár má skoða hér að neðan en í stærri upplausn birtum við hér nýja mynd Örvars Atla af Eyjafjallajökli.