30. jan. 2010 - 15:15
Darling svarar forseta: Sjálfsagt að hlusta á sjónarmið Íslendinga en skuldina þarf að borga

Darling, breski fjármálaráðherrann.
Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, segir sjálfsagt að hlýða á það hvað íslensk stjórnvöld hafi nýtt fram að færa í Icesave-deilunni, en staðreyndin sé sú að Ísland skuldi Bretlandi og Hollandi umtalsverða peninga og þá verði að endurgreiða fljótt og örugglega.
Þetta þarf að gerast innan eðlilegra tímamarka og á eðlilegum kjörum (e. But we have got to be satisfied that it will be repaid in a reasonable time on a reasonable basis)
Þetta kom fram í viðtali sjónvarpsmannsins Richard Quest á CNN við Darling í gærkvöldi, en Quest ræddi við fjármálaráðherrann í framhaldi af umtöluðu viðtali við Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands, á CNN í gærkvöldi, sem Pressan hefur fjallað ítarlega um.
Quest spurði Darling beint í viðtalinu, sem var tekið upp á fundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Davos í Sviss, hverju hann svaraði ásökunum forseta Íslands um að Bretar og Hollendingar legðu Íslendinga í einelti í málinu með óbilgjörnum kröfum sem gætu lagt efnahag landsins í rúst. Darling svaraði spurningunni ekki beint, en sagði mikilvægt að forseti Íslands segði að fjármunirnir væru Breta og Hollendinga og enginn ágreiningur væri uppi um þá staðreynd.
Í hreinskilni sagt held ég að það sé öllum fyrir bestu, einnig Íslendingum, að ganga frá þessu samkomulagi eins fljótt og auðið er,
sagði Darling ennfremur. Quest spurði þá hvort ekki væri ósanngjarnt að leggja svo þungar byrðar á Ísland, í ljósi þess að í raun væru þetta aðeins smáaurar fyrir bresk stjórnvöld sem taki gríðarlegar upphæðir að láni um þessar mundir, t.d. 200 milljarða punda í ár.
Darling svaraði því til að hér væri um grundvallaratriði að ræða (e. matter of principle). Bresk stjórnvöld hafi orðið að grípa inn til að vernda innstæðueigendur í Landsbankanum í Lundúnum og málið sé nú í hefðbundnum uppgjörsferli sem brýnt sé að koma í endanlegan farveg milli landanna eins skjótt og verða má.
10.mar. 2010 - 15:20
Formenn stjórnarflokkanna segjast klára Icesavesamningana upp á eigin spýtur velji stjórnarandstaðan að hlaupast á brott frá þeirri vinnu. Þeim beiska kaleik geti ábyrg ríkisstjórn ekki vikið frá sér.
09.mar. 2010 - 16:10
Það er óhætt að segja að menn túlki niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave um síðustu helgi með misjöfnum hætti. En hvaða afleiðingar hefur atkvæðagreiðslan?
09.mar. 2010 - 08:15
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra Íslands, segir erlendum blaðamönnum að það sé sannað að Íslandi sé betur borgið með eigin gjaldmiðil, krónu, heldur en evru. Það sjáist ekki síst á ferðaþjónustunni sem blómstri.
08.mar. 2010 - 10:49
Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið er langt komin og verður þannig upp sett að efni hennar verði aðgengilegt þótt það sé á köflum mjög flókið. Mikið verður af skýringarmyndum og gröfum í skýrslunni.
07.mar. 2010 - 18:15
Iceland Express hefur tilkynnt starfsfólki sínu að hver og einn fastráðinn fái 300.000 króna aukabónus sem verður greiddur út í vikunni. Tilkynningin barst starfsliðinu á árshátíð félagsins sem haldin var á skemmtistaðnum Rúbin í gær. Forstjóri Iceland Express og Pressupenninn Matthias Imsland, segir í samtali við Pressuna að ákveðið hafi verið að greiða starfsfólki aukabónusinn vegna þess að starfsárið í fyrra hjá félaginu hafi verið miklu betra en allar áætlanir gerðu ráð fyrir.
07.mar. 2010 - 20:00
22 ára stúlka stal 63 ára gömlum kærasta ömmu sinnar. Amman, sem er 73 ára, er mjög ósátt við málalyktir en parið hyggst gifta sig, þrátt fyrir 41 ára aldursmun. Parið lifir á þeim ellilífeyri sem gamli maðurinn fær.
07.mar. 2010 - 15:16
Bubbi Morthens, einn ástsælasta tónlistarmaður og lagahöfundur þjóðarinnar, er genginn til liðs við Pressuna og mun framvegis skrifa fasta pistla um það sem honum brennur í brjósti hverju sinni. Bubbi segir að ekkert mannlegt sé sér óviðkomandi.
07.mar. 2010 - 00:37
Ólafur Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, segir afdráttarlaus úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave hljóta að vera forystumönnum ríkisstjórnarinnar alvarlegt umhugsunarefni. Almenningur telji sig ekki bera ábyrgð á tjóni sem einkafyrirtæki hafi valdið.
06.mar. 2010 - 13:37
Bryndís Gyða Grímsdóttir, fegurðardrottning og Pressupenni, dvelur nú í Þýskalandi þar sem hún tekur þátt í Top Model of the World. Hún segist hafa fengið athyglisvert tilboð frá einum dómara keppninnar sem taldi það gott fyrir hana ef hún kíkti aðeins upp á herbergi til hans. Bryndís segist hafa verið að kynnast tilboði af þessari gerð í fyrsta skipti, þrátt fyrir ágætis reynslu í fyrirsætu- og fegurðarbransanum.
05.mar. 2010 - 15:15
Fyrirtækjaráðgjöf Gamla Kaupþings lagði til í nóvember í fyrra að tilboði Gunnars Sverrissonar, Karl Þráinssonar og Marti Holding í ÍAV yrði hafnað og þess í stað tæki bankinn fyrirtækið yfir og fengi Pál Sigurjónsson, fyrrum forstjóra Ístaks, til að setjast í stjórn nýs félags um reksturinn.
04.mar. 2010 - 13:15
Fyrrverandi stjórnendur og hluthafar í verktakafyrirtækinu Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) halda völdum og áhrifum í fyrirtækinu eftir fjárhagslegan endurskipulagningu með Arion-banka. Skuldir upp í 12-13 milljarða verða afskrifaðar, en svissneskt félag fær að kaupa verktakahlutann í samvinnu við fyrri eigendur ÍAV.
03.mar. 2010 - 16:40
Kynfræðingur hvetur unglinga til að hafna klámsprottnum hugmyndum um kynfæri karla og kvenna og tengjast í staðinn raunveruleikanum með því að búa til eftirmyndir þeirra í leir.
03.mar. 2010 - 13:15
Að öllu óbreyttu verður gengið til kosninga um hina umdeildu ríkisábyrgð á Icesave samningunum á laugardaginn. Forsætisráðherra segir kosninguna marklausa og hefur ekki útilokað að fresta kosningunni. Stjórnarandstaðan segir hins vegar að slíkt komi ekki til greina. Hvað finnst þér?
02.mar. 2010 - 09:23
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Hér frumsýni ég eitt af mínum nýjustu meistaraverkum, myndir sem teknar eru og unnar auðvitað af engum öðrum en Arnold Björnsyni ljósmyndara www.arnold.is og stíliseraðar af mér. Þesssi sería var tekin fyrir myndasafnið mitt og ég verð að segja að ég einfaldlega ELSKA þessar myndir!
28.feb. 2010 - 22:00
Hið óvænta gerir víst sjaldnast boð á undan sér. Fólk lendir endalaust í óþægilegum aðstæðum þar sem nauðsynlegt er að vinna rétt úr málunum. Oft má þó segja að fólk komi sér sjálft í klandrið og eigi því að geta unnið sig sjálft út úr erfiðleikunum.
28.feb. 2010 - 15:17
Eitt ár er í dag síðan Pressan hóf göngu sína á Netinu, en síðan var formlega opnuð á hádegi þann 28. febrúar 2009. Á þessu eina ári hefur lestur og aðsókn að Pressunni aukist gríðarlega og er síðan nú eitt vinsælasta vefsvæði á Íslandi.
26.feb. 2010 - 15:41
Hörður Arnason, forstjóri Landsvirkjunar, lækkar umtalsvert í launum með nýjum úrskurði Kjararáðs. Í bréfi til ráðsins gagnrýnir hann hugmyndir um lækkun harðlega og telur þær illa eða órökstuddar og feli í sér brot á ráðningasamningi sínum.
26.feb. 2010 - 13:35
Einn þekktasti rithöfundur þjóðarinnar, verðlaunahöfundurinn Einar Kárason, gengur í dag til liðs við Pressuna og ritar sinn fyrsta pistil um verðlaunasöguna Bankster eftir Guðmund Óskarsson, sem hlaut nýskeð Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fagurbókmennta.
26.feb. 2010 - 09:21
Á Golfpressunni sem fór í loftið í dag verður fjallað um allt er viðkemur golfíþróttinni og verður vefurinn upplýsinga- og fræðsluveita sem veitir öllum kylfingum aðgang að spennandi nýjungum í golfheiminum í dag. Mikil áhersla er lögð á fræðsluhlutann og með aðkomu ólíkra pistlahöfunda verða efnistökin fjölbreytt og spennandi og jafnframt ítarlegri heldur en þekkist í dag.
25.feb. 2010 - 12:00
Marta María
Hvaða kona hefur ekki lent í því að vera alveg týnd þegar kemur að fatasamsetningum og finnast hún ekki eiga neitt til að fara í? Fyrrnefnt ástand er ekki bara tímafrekt heldur getur alveg farið með geðheilsu lekkerra ofurkvenna. Margar halda að þetta komi bara fyrir þær sem hafa engan „sans“ fyrir fötum en svo er ekki. Vel klæddu og smekklegu konurnar lenda líka í krísum og það reglulega. Þegar þessi staða kemur upp er mikilvægt að yfirfara fataskápinn og reyna að fylla upp í það sem á vantar á skynsaman hátt. Það er auðvelt að falla í þá gryfju að kaupa sér flíkur af því þær eru fallegar en svo getur sú staða komið upp að viðkomandi á ekkert við flíkina og hún hangir þá ónotuð inni í skáp.