08. jan. 2012 - 18:56

Barbra Porter
Milljarðamæringurinn Cal Worthington ætlar í hart við söngkonuna Önnu Mjöll Ólafsdóttur sem nýverið sótti um skilnað. Hann segir að Anna Mjöll hafi skrifað undir hjúskaparsáttmála og samkvæmt honum fái hún 4.000 dollara í sex mánuði og ekki krónu meir. Hann hefur látið hirða bíl Önnu Mjallar og vill hana úr húsinu sem hún býr í.
Bandarískir fjölmiðlar fjalla af miklum áhuga um skilnað milljarðamæringsins og bílasalans Cal Worthington og söngkonunnar Önnu Mjallar sem giftu sig fyrir nokkrum mánuðum. Fyrir skömmu fór Anna Mjöll fram á skilnað og nú hefur Cal svarað fyrir sig.
Lögfræðingur Cal segir að ljóst sé að Anna Mjöll hafi verið á höttunum eftir auðæfum hans og hefur lagt fram ný skjöl, þar á meðal hjúskaparsáttmála sem Anna Mjöll hafi skrifað undir.
Samkvæmt honum á Anna Mjöll rétt á 4.000 dollara greiðslu á mánuði í sex mánuði og eftir það fái hún ekki frekari greiðslur. Lögfræðingur Cal segir að Anna Mjöll vilji hins vegar eiga nýja Bentley bifreið sem hún hefur ekið og jafnframt eiga stórt hús þeirra í Beverly Hills í Kaliforníu. Það hús er metið á 3,25 milljónir dollara. Segir lögfræðingurinn að Anna Mjöll haldi því fram að Cal hafi gefið henni húsið í brúðkaupsgjöf.
Lögfræðingurinn hefur þegar lagt fram kröfu fyrir bandarískum dómsstóli þar sem farið er fram á að Önnu Mjöll verði meinaður aðgangur að húsinu og í skjóli nætur lét hann hirða Bentley bifreið Önnu Mjallar. Í skjölum sem lögð voru fyrir dómsstóla segir að áður en þau giftur sig hafi Anna Mjöll ekið 2004 árgerð af Chrysler Sebring. Það sé því eðlilegt að við skilnað aki hún þeim bíl, ekki Bentley bifreið Cal Worthington.
Anna Mjöll hefur samkvæmt bandarískum fjölmiðlum ráðið einn þekktasta skilnaðarlögfræðing Bandaríkjanna, Mark Vincent Kaplan, sem meðal annars starfaði fyrir Kevin Federline í skilnaði hans við Britney Spears.