17.maí 2012 - 10:03
Alltof mörg börn ráða ekki við að stjórna tölvunotkun sinni og eiga erfitt með að fara eftir reglum foreldra sinna. Það má þó ekki gleyma að tölvur eru mikilvægur og nauðsynlegur hluti af lífi barna og unglinga.
15.maí 2012 - 20:36
Róbert Wessman, stjórnarformaður bandaríska lyfjafyrirtækisins Alvogen, leggur til að farin verði „íslensk leið“ til að örva hagvöxt í landinu og fjölga atvinnutækifærum. Jafnframt myndi losna mjög um krónustöðu erlendra aðila og ríkið spara gífurlegar fjárhæðir í vaxtagjöldum.
15.maí 2012 - 13:27
Brynjar Nielsson
Í Héraðsdómi Reykjaness þann 30. apríl s.l. voru tveir ungir menn sakfelldir fyrir skjalafals með því að hafa framvísað fölsuðum skilríkjum við komuna til landsins. Refsing var ákveðin 30 daga fangelsi fyrir brot sem varðar allt að 8 ára fangelsi. Eins og gjarnan vill verða þegar dómsniðurstaða samrýmist ekki pólitískri hugmyndafræði sumra vill umræðan leiðast á villigötur.
09.apr. 2012 - 12:50
Röng upptaka af veðurfréttum var sett í loftið hjá Ríkissjónvarpinu með þeim afleiðingum að áhorfendur vissu varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar veðurfræðingurinn fussaði og sveiaði og hætti veðurspá í miðjum klíðum.
08.apr. 2012 - 15:00
Breskur frjósemislæknir er nú grunaður um að hafa feðrað allt að 600 börn á starfsævi sinni. Málið komst upp fyrir tilviljun þegar tvö af börnum hans fundu hvort annað.
05.apr. 2012 - 19:33
Ítölsk manneskja sem hefur verið áberandi í pólitískri umræðu á Ítalíu notaði Facebook-myndir íslenskrar stúlku án hennar vitundar og sagði þær vera af sér. Íslensku stúlkunni var, sem eðlilegt hlýtur að teljast, verulega brugðið þegar hún frétti af þessu uppátæki.
03.apr. 2012 - 08:30
Foreldrar lítillar stúlku með Downsheilkenni hafa furðað sig á því að þurfa að staðfesta við íslensk heilbrigðisyfirvöld að hún sé „enn“ með Downs.
19.mar. 2012 - 15:15
Hin baneitraða könguló svarta ekkjan barst nýverið hingað til land með amerískum vínberjaklasa. Skordýrafræðingur segir þetta gerast af og til enda séu pöddur tækifærissinnar.
19.mar. 2012 - 11:50
Maður sem handtekinn var á föstudag eftir ógnanir við starfsfólk á Litla-Hrauni, sagði við lögreglu að hann væri með tvo gísla. Hann hafði þá troðið sér inn í bíl og hótað að drepa bílstjórann ef hann keyrði sig ekki á lögreglustöðina á Selfossi. Sá svaraði einfaldlega: „Þú drepur engan mann í þessum bíl.“
18.mar. 2012 - 11:00
Fyrrverandi ráðherra er á því að dómararnir í spurningaþættinum Gettu betur eigi ekki að trana sér fram eins og þeir geri núna. Fréttamaður er á sama máli og segir fólki sama um hvað dómurunum finnst.
17.mar. 2012 - 12:56
Martröð hvers foreldris varð að veruleika í skemmtigarði í Houston í Texas í Bandaríkjunum á miðvikudag, þegar móðir horfði á þriggja ára dóttur sína losna úr tækinu Kolkrabbinn og kastast úr tækinu á ferð.
11.feb. 2012 - 14:30
Þetta hefði átt að vera einn af bestu dögunum í þeirra lífi, en sú var ekki raunin. Móðir eignaðist barnið sitt tveimur vikum fyrir settan dag til þess að deyjandi eiginmaður hennar gæti séð dóttur sína.
10.feb. 2012 - 09:30
Stúlka sem eitt sinn var feitasti unglingur Bretlands varar við magaminnkun. Hún berst nú við anórexíu.
09.feb. 2012 - 15:45
Erlendir fjárfestar slást nú um tæplega 100 milljóna króna hús þingmanns á besta stað. Innlendir auðkýfingar sýna húsinu líka áhuga.
08.feb. 2012 - 16:30
Jeppamaður í Kerlingarfjöllum sem var á þorrablóti pantaði sér pizzu frá veitingastað í Reykjanesbæ. Pizzan var ríflega 10 klukkustundir á leiðinni með sendli sem þurfti að fara 232 kílómetra leið með hana.
30.jan. 2012 - 18:50
Útvarpskonunni Siggu Lund var sagt upp störfum í dag á 365 miðlum eftir níu ára starf. Hún segir uppsögnina hafa komið sér mjög á óvart.
30.jan. 2012 - 12:50
Andstæðingar þess að moska verði byggð í Reykjavík hafa grafið svínaskrokka, blóð og innyfli á þeim lóðum sem til greina koma. Vilja þeir með þessu vanhelga lóðina til að fæla múslíma frá því að byggja á þeim. Hvetja þeir til sambærilegra aðgerða víðar.
29.jan. 2012 - 10:00
Tímastilling gerir það að verkum að fólk kemst yfirleitt aðeins yfir hálfa Hringbrautina áður en allir bílar æða af stað við fyrsta blikk umferðarljósanna. Fólk með barnavagna er í enn verri málum.
27.jan. 2012 - 15:50
Mynd af fannfergi í Grafarvoginum í morgunsárið hefur farið með leifturhraða um netið, ekki síst á Facebook. Myndin er hins vegar alls ekki úr Grafarvoginum.
21.jan. 2012 - 13:21
Foreldrar barns þögðu í fimm ár yfir því hvort það væri stúlka eða strákur. Barnið fékk föt beggja kynja og leikföng fyrir stráka og stelpur. Þau vildu að barnið finndi sjálft sitt „rétta kyn.“