18. feb. 2010 - 07:00Katrín Brynja Hermannsdóttir

Krúttlegt!
Undanfarið hefur undirrituð verið minnt nokkuð reglulega á þá staðreynd að notkun taubleia hefur aukist gríðarlega undanfarið.
Hið langbesta mál þegar fólk tekur ábyrgð á umhverfi sínu og hugsar fram í tímann, sér fyrir sér að með sínu framlagi megi hafa áhrif á þann haug sem við skiljum eftir okkur – meðal annars með notkun pappírsbleia.
Pappírsbleiurnar eru dýrar og eru ákaflega óumhverfisvænar (meðalbarnið notar um 6000 bleiur og þær eru nokkur hundruð ár að brotna niður í umhverfinu).
Með taubleiunotkun sparast hellings peningur (hver þarf ekki á því að halda?) og það þarf varla að minnast á hversu smart innlegg þetta er í umhverfismál.
Smart og til eftirbreytni
Ég hef bæði ljóst og leynt dáðst gríðarlega að mæðrum og feðrum sem ákveða að nota taubleiur því þetta er eflaust eitthvað meiri vinna en hin lausnin, en kemur eflaust með æfingunni. Byrji maður strax, þá er þetta örugglega ekki lengi að venjast og verður partur af tilverunni um leið.
Fyrir utan það, þá eru framleiddar hrikalega sætar taubleiur á þessa litlu rassa sem gaman er að klæða börnin í.
Taubleiumarkaður – kynning fyrir okkur sem minna vitum...
Það verður fróðlegt að fara á Taubleiumarkað sem halda á næsta laugardag, 20. febrúar í Manni lifandi við Borgartún. Að honum standa netverslanir, sem starfræktar eru af framtakssömum mæðrum, en þær hafa ákveðið að taka höndum saman og halda eina stóra kynningu fyrir okkur hin sem minna vitum um þessi mál.
Markaðurinn er á neðri hæðinni í Manni lifandi, Borgartúni 20, frá 12-16 og þar verða líka tilboð fyrir verðandi foreldra/mæður og ungbörn.
Stórsnjallt! Og mun pottþétt verða mörgum hellings innblástur. Það er eitthvað svo miklu betra að tala við fólk augliti til auglitis, heldur en að sjá þetta auglýst og leyfa sér að kæfa hugmyndina í hvelli.
Netverslanirnar Barnavörur, ISbambus, Kindaknús, Mandarína, Montrassar,
Snilldarbörn og Tamezonline, sem standa að taubleiumarkaðnum.
http://barnavorur.is
http://isbambus.com
http://kindaknus.123.is
http://mandarina.is
http://montrassar.net
http://snilldarborn.com
http://tamezonline.com