25. mar. 2010 - 07:00Katrín Brynja Hermannsdóttir

Loksins góð bók um meðgöngu! (og allt hitt líka)

Alveg hægt að gleyma sér yfir þessari.

Alveg hægt að gleyma sér yfir þessari. Mynd: Sögur Útgáfa

Að ganga með barn er merkileg reynsla. Þær sem hafa gengið með oftar en einu sinni geta vitnað um að þetta er ekki „copy-paste“ upplifun, heldur eitthvað alveg nýtt og jafn merkilegt í hvert sinn.

Alltaf er eitthvað sem kemur á óvart og merkilegt hvað fennir fljótt í sporin eftir hverja níu mánaða göngu, og þorstinn í fróðleik gerir vart við sig um leið og prikið sýnir jákvætt.

Heilmikið finnst á netinu svo bumban sat við tölvuna langtímum saman, langtímum saman. En það jafnast einhvern veginn ekkert á við að hafa allt á einum stað. Í bók.

Og bókin sem ég fékk í hendur þegar aðeins tvær vikur voru eftir í áætlaðan fæðingardag hefði verið kærkomin. Tekin með upp í rúm öll kvöld fram að fæðingu og stúderuð í þaula. Aðþrengdar eiginkonur komust ekki að.

Þegar verkir urðu vondir var flett upp í bókinni til að finna út hvort fæðing væri í aðsigi og þegar ljóst var að um alvöruverki var að ræða, þá fyrst hófst lesturinn.  Á milli hríða gafst færi á að lesa og skoða mynd í raunstærð hve mikið leghálsinn víkkar út. Og VÁ, maður minn – þetta er ótrúlegt!

Mæli algjörlega með Meðgöngubókinni sem er nýkomin út. Datt meira að segja í að skoða þroskaferli fósturs viku fyrir viku núna áðan – og barnið „löngu“ fætt. Svo er fullt um umönnun nýburans, brjóstagjöf og hvaðeina. Vel þýdd og á góðu læsilegu máli. Snilld! 



17.maí 2012 - 10:03

Er barnið þitt haldið tölvufíkn? Allt of mörg börn ráða ekki við að stjórna tölvunotkun sinni

Alltof mörg börn ráða ekki við að stjórna tölvunotkun sinni og eiga erfitt með að fara eftir reglum foreldra sinna. Það má þó ekki gleyma að tölvur eru mikilvægur og nauðsynlegur hluti af lífi barna og unglinga.
23.mar. 2012 - 10:00 Ljósmæðurnar

Fyrstu skórnir í lífi barnsins

Hvað er krúttlegra en litlir barnaskór? Úrvalið í dag á litríkum og fallegum barnaskóm er svo mikið að það er auðvelt að tapað sér í búðum eða á hinum ýmsu vefsíðum. En hvað þarf að hafa í huga þegar velja á fyrstu skóna, hvenær ætti að byrja að nota skó og eru þeir í raun nauðsynlegir strax frá upphafi?
14.feb. 2012 - 14:44 Aðsend grein

"Ertu ennþá með barnið á brjósti?!?"

Það eru forrétindi að geta gefið barninu sínu brjóst og að hafa barnið á brjósti eins lengi og báðir aðilar leyfa... Mig langar til þess að ganga með þessa mynd á mér og smella henni í andlitið á næstu manneskju sem spyr mig t.d. "hvenær ætlaru eiginlega að hætta með hann á brjósti?" "bíddu ertu ennþá með hann á brjósti?!?" og spyrja manneskjuna hvort að hún myndi dirfast til þess að spyrja þessa konu að því sama? Á ég frekar að kaupa mjólkina handa barninu mínu útí búð því að ég á peninga fyrir því og ég bý á Íslandi?

01.maí 2012 - 08:00

Ófrísk og á leið í flug- Nokkur atriði sem hafa þarf í huga

Í flugvélinni er gott að vera í sæti við ganginn og standa oft upp og hreyfa sig. Snarl í handtöskunni getur líka skipt sköpum. Ertu ófrísk og langar til útlanda? Líklegast spyrðu sjálfa þig margra spurninga um hvernig þú átt að haga þér. Spurninga eins og hvenær máttu fara og hvað áttu að taka með þér svo þér líði vel. 
02.feb. 2012 - 08:58

Veistu hvað flokkast sem einelti? - Þetta útskýrir það á mjög góðan hátt - MYNDBAND

Einelti getur haft skelfilegar afleiðingar! Tökum höndum saman og verjum börnin okkar fyrir einelti. Einelti er ofbeldi, hvernig sem á það er litið. Það á engin að þurfa að þola það! Sýnum börnum okkar, sem hafa þroska til, þetta myndband og ræðum við þau um einelti. Fræðsla er forvörn.
02.maí 2012 - 08:00

Góð ráð til foreldra

Sjálfstraust í foreldrahlutverki getur bara komið innanfrá, ekki frá öðrum. En þangað til sjálfstraustið er komið, spyrjið þá bara barnið, það veit ekki hvernig á að gera hlutina vitlaust, það veit bara hvað það vantar og því finnið þið út úr saman.
08.des. 2011 - 14:00

Ert þú nýbökuð móðir og vilt komast í gott form eftir barnsburð?

Kerrupúl fer fram í Laugardalnum

Sem nýbökuð móðir hef ég prófað margskonar líkamsrækt. Þegar ég eignaðist mitt þriðja barn vissi ég hvað ég vildi.

29.nóv. 2011 - 22:10

Nýfædd börn fá ekki sprautu í hælinn

Endrum og sinnum heyrir maður sagt frá sprautunni sem nýfædda barnið fékk í hælinn og því langar mig að skýra aðeins frá þessum misskilningi þar sem upplýsingum hefur slegið saman. Eins átakanlegt og það er fyrir foreldri að sjá nýfætt barn sitt fá sprautu í lærið og tekna blóðprufu úr hæl þess, þá eru fyrir því ríkar ástæður. Það getur því verið huggun í því að vita ástæðurnar fyrir þessari meðhöndlun á nýfæddum börnum.

28.nóv. 2011 - 23:00

Hvenær á að hætta með barn á brjósti? Góð ráð

Allar nýbakaðar mæður sem eru með barn/börn á brjósti velta því fyrir sér hversu lengi brjóstagjöfin eigi að vara. Svarið er einfalt. Vilji móður og tilfinningar eiga að ráða hvenær brjóstagjöf lýkur en ekki skoðanir annarra né væntingar umhverfisins.

09.feb. 2012 - 11:15

Gói og Baunagrasið frumsýnt á laugardaginn

Baunagrasið í samstarfi við Borgarleikhúsið kynnir Góa og Baunagrasið. Verkið verður frumsýnt á litla sviðinu laugardaginn 11. febrúar kl. 13:00
17.nóv. 2011 - 20:45

Árangursrík brjóstagjöf – fyrstu sólarhringarnir

Að gefa brjóst er ekki eitthvað sem kona kann þegar hún eignast sitt fyrsta barn. Brjóstagjöfin er æfing fyrir móður og barn sem tekur tíma og krefst þolinmæði.
24.nóv. 2011 - 07:00

Jólaþorpið opnar um helgina - Nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna fram að jólum

JÓLAÞORPIÐ er að rísa og húsin að tínast á sinn stað.  Jólatréð er komið frá vinabænum í Danmörku, Friðriksbergi.  Næstu daga verður þorpið síðan skreytt hátt og lágt enda einungis fimm dagar stefnu.
Leikskólarnir hafa frá upphafi átt stóran þátt í að gera jólaþorpið sem best úr garði og munu þau koma með allt skemmtilega skrautið sitt og skreyta jólatrén sem umlykja þorpið á fimmtudag og föstudag.


12.nóv. 2011 - 10:00 Ljósmæðurnar

Eiturefni í umhverfi barna

Allt í kringum okkur eru hlutir sem í fyrstu virðast skaðlausir en við frekari athugun kemur í ljós að svo er ekki. Börn eru mun næmari en fullorðnir fyrir skaðlegum efnum í umhverfinu, sérstaklega smábörn sem uppgötva að miklu leiti umhverfi sitt með því að stinga hlutum upp í sig og naga.

07.nóv. 2011 - 13:00 Ljósmæðurnar

Líkamsrækt á meðgöngu

Þegar ég gekk með yngsta barnið mitt var ég staðráðin í að vera dugleg að hreyfa mig. Ég hafði æft mikið áður en ég varð ófrísk og var í góðu líkamlegu formi. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það sé ástæða þess að meðgangan var mér mjög auðveld. Ég var líka ákveðin í að prófa sem flest af því sem boðið er upp á fyrir verðandi mæður þar sem ég hafði aldrei æft markvisst á fyrri meðgöngum. Mér fannst ég eiga það alveg inni núna og tók það svo sannarlega með trompi.
06.nóv. 2011 - 10:00

Missir eftir fósturlát - sorgin sem oft er ekki viðurkennd

Að missa fóstur er oft mjög einmanaleg reynsla. Foreldrar geta upplifað mikla sorg, mikinn tómleika og finnst þau fá lítinn skilning frá fjölskyldu, vinum og samfélaginu á tilfinningum sínum.
04.nóv. 2011 - 10:00

Að eignast systkini - Góð ráð fyrir foreldra

Að eignast systkini er stór viðburður í lífi hvers barns. Við foreldrar vitum að viðbrögð barna eru ófyrirséð og margvísleg. Þegar ég gekk með mitt annað barn átti það hug minn allan að gera stóra bróður sem best undirbúinn. Einnig veit ég sem ljósmóðir að þetta efni er ofarlega í huga flestra verðandi foreldra.
03.nóv. 2011 - 12:30

Að vinna á trompmiðann sinn – nokkur praktísk ráð við undirbúning komu tvíbura

Það má segja að það sé eins og happdrætti þegar maður bíður eftir barni – stundum getur maður meira að segja unnið á trompmiðann sinn og fengið tvöfaldan vinning!
02.maí 2012 - 09:30

Bjart og fallegt fjölskyldukaffihús í Búkarest - Eitthvað fyrir alla - MYNDIR

Það eru ekki mjög mörg kaffihús í heiminum sem henta allri fjölskyldunni. Þetta kaffihús heitir Phill og er í Búkarest og er alveg kjörið fjölskyldukaffihús. 


02.mar. 2012 - 17:00

Gullfalleg barnaherbergi - skemmtilegar hugmyndir hjá fræga fólkinu - Myndir

Jessica Alba Mikið barnafár hefur gengið yfir í Hollywood síðastliðin misseri en slúðurfréttasíðan people.com tók myndir af nokkrum gullfallegum barnaherbergjum hjá fræga fólkinu.
26.okt. 2011 - 13:00

Viltu gera þér dagamun? - Mömmu Morgnar í Sambíóunum eru um helgina

Sambíóin flytja ykkur þær gleðifregnir að föstudaginn 28.Október kl. 10:30 og föstudaginn 4.Nóvember kl. 10:30 á myndina THE HELP. Munu þessar sýningar nefnast Mömmu Morgnar.