20. sep. 2011 - 13:05

Hildur Líf ók undir áhrifum áfengis og var svipt ökuleyfinu
Kynbomban og djammdrottningin Hildur Líf má ekki keyra bíl. Hún var svipt ökuréttindum með dómi í héraðsdómi Vesturlands.
Hildur Líf Hreinsdóttir var ákærð fyrir að aka frá Háteigi yfir á Suðurgötu á Akranesi með 0,62 prómill af vínanda í blóðinu. Þetta var í júní 2010. Lögreglan stöðvaði aksturinn á Suðurgötu.
Eins og Pressan hefur greint frá neitaði hún sök en mætti svo ekki í dómsal til að halda uppi vörnum.
Lögreglustjórinn á Akranesi krafðist þess að hún yrði dæmd til refsingar og sviptingar ökuréttinda.
Dómur féll 21. júní síðastliðinn - án þess að Hildur Líf léti sjá sig.
Var litið á fjarveru hennar sem ígildi játningar „enda fer sú niðurstaða ekki í bága við sakargögn“.
Svo segir í dómnum:
Refsing ákærðu, sem er með hreint sakavottorð, þykir hæfilega ákveðin 70.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi sex daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Þá þykir rétt með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærðu ökurétti í fjóra mánuði frá birtingu dómsins að telja.
Hún þarf því að bíða í mánuð í viðbót eftir að fá leyfi til að stjórna ökutæki á ný.
Samkvæmt viðmiðun lögreglu þykir sá, sem er með vínandamagn í blóði yfir 0,50 prómillum, ekki hæfur til að aka bíl.
Hildur Líf er þekkt fyrir fyrirsætustörf og að efna til VIP-samkvæmis fyrir þotuliðið á Íslandi ásamt vinkonu sinni Lilju Ingibjargardóttur. Hún var síðast í fréttum í tengslum við sakamál sem varðaði líkamlegt ofbeldi og frelsissviptingu þar sem hún bar vitni fyrir dómi.